66. fundur 11. maí 2026 kl. 08:30 - 09:30 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Gunnar Aron Ólason formaður
  • Þórunn Dís Þórunnardóttir aðalmaður
  • Þröstur Sigurðsson aðalmaður
  • Sævar Jónsson varamaður
Starfsmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson embættismaður
  • Jón Ragnar Örlygsson
Fundargerð ritaði: Haraldur Birgir Haraldsson Skipulagsfulltrúi

1.Meiri-Tunga 1, leiðrétting á afmörkunum lóða.

2604070

Leiðrétta á stærð og afmörkun Meiri-Tungu 1, L201366 og Meiri-Tungu 5 lóð, L174664 og stærðir lóðanna Meiri-Tungu lóð Í1 - Í8, 207370-207377, Meiri-Tungu lóð G1, L207378.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við leiðréttingu á lóðamörkum umræddra lóða.
Þórunn Dís vék af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa erindis.

2.Meiri-Tunga 2. Landskipti. Ragnarslundur og Ragnarslundur 2.

2604073

Stofna á tvær lóðir úr jörðinni Meiri-Tungu 2, L165130. Meiri-Tunga 2, L165130, er með skráða stærð 99,1 ha skv. fasteignaskrá HMS. Ný lóð, Ragnarslundur, verður 36568,2 m² að stærð. Ný lóð, Ragnarslundur 2, verður 10000,0 m² að stærð.

Meiri-Tunga 2, minnkar um það sem nemur nýjum lóðum og verður 94,2 ha að stærð. Kvöð er á Ragnarslundi um aðkomu að Ragnarslundi 2. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur dags. 27.4.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
Þórunn Dís kom aftur á fundinn.

3.Vikurnám Merkihvolsland. MÁÚ

2509071

Lagt fram álit HMS á matsáætlun.
Lagt fram til kynningar
Gunnar Aron vék af fundi við meðferð og afgreiðslu málsins

4.Hvammur. Breyting á deiliskipulagi vegna vinnubúða

2605006

Landsvirkjun óskar eftir að breyta gildandi deiliskipulagi fyrir vinnubúðir að Hvammi. Helstu breytingar eru þær að byggingarmagn eykst úr 6000 m2 í 12000 m2 og að starfsmannafjöldi fer úr 400 í 500 manns á framkvæmdatíma.
Skipulagsnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.
Nefndin leggur því til að farið verði um málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en telur enga ástæðu til grenndarkynningar þar sem um tímabundna ráðstöfun lands er að ræða sem hefur engin áhrif á aðra en umsækjendur og sveitarfélagið.
Gunnar Aron kom aftur á fundinn.

5.Kaldárholt. Framkvæmdaleyfi til borunar eftir heitu vatni.

2603097

Veitur sækja hér með um framkvæmdaleyfi fyrir borun nýrrar vinnsluholu á jörðinni Kaldárholti (L165096) í Rangárþingi ytra. Holan verður boruð með 100 tonna bor (Rig-16) niður á um 800-1.000 m dýpi. Hún verður með 10 3/4? vinnslufóðringu og vinnsluhlutinn verður boraður með 8 1/2? krónu. Holan verður með steyptri vinnslufóðringu niður á 100 til 400 m dýpi. Áætlaður bortími er 3-5 vikur. Við borlok verður holan prófuð með stuttu blástursprófi (hámark 6 klst.).

Útbúa þarf um 3.200 m2 borplan fyrir borinn á framkvæmdatíma. Vegur liggur nú þegar að dælustöðinni, en þaðan þarf að leggja um 70 m langan veg frá norðurhlið dæluhússins að borplani. Aðflutt efni í borplan og veg verður um 3.000 m3 og verður efnið fengið úr nærliggjandi námum með tilskilin leyfi.
Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu málsins þar sem ekki liggur fyrir leyfi Fiskistofu

6.Veiðivötn. Breyting á deiliskipulagi.

2603074

Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi fyrir Veiðivötn í Rangárþingi ytra. Gildandi deiliskipulag fyrir þjónustusvæði við Tjaldvatn var staðfest í B-deild Stjórnartíðinda í júní 2011 og hefur tekið breytingum síðan. Með þessari breytingu er lagt til að gera breytingar á þrem svæðum B, C og E með það að markmiði að bæta nýtingu, fjölga húsum um tvö frá gildandi skipulagi og þar með fjölga gestum sem geta gist á hverjum tíma. Heildarfjöldi gesta verður áfram innan skilgreiningar aðalskipulags, innan við 200 gestir á hverjum tíma. Jafnframt eru skipulagsmörk aðlöguð að því svæði sem starfsemi nær yfir, og verður ein lóð K skilgreind fyrir svæðið í heild. Svæðið er við Tjaldvatn í Veiðivötnum sem er innan Þjóðlendu, Landmannaafréttur L229508 og er þar mikil aðsókn gesta, einkum veiðimanna. Að öðru leyti en því sem hér er greint frá gilda skilmálar eldra deiliskipulags með síðari breytingum.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.
Nefndin leggur til að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem tillagan hefur engin áhrif á aðra en sveitarfélagið og rekstaraðila á svæðinu.

7.Hagi v Selfjall 2. Ósk um deiliskipulag.

2505094

Eigendur lóðarinnar Hagi v/Selfjall 2, L176252, hafa fengið heimild til að fá að gera breytingar á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið, dags. 10.6.1992, þar sem heimiluð verði föst búseta og byggingarheimildir uppfærðar skv. því. Unnið er að breytingu á landnotkun lóðarinnar í aðalskipulagi þar sem henni verði breytt úr frístundasvæði í landbúnaðarsvæði til samræmis við fram lögð áform. Tillaga var endurauglýst frá og með 12.2.2026 til og með 1.4.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

8.Meiri-Tunga 1 201366 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2602058

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Árna Friðrikssyni, fyrir hönd Bjarna Valtýssonar, um byggingarheimild til að reisa 200 m² skemmu á lóðinni Meiri-Tungu lóð 1. Umsóknin er í samræmi við meðfylgjandi aðaluppdrætti frá ASK arkitektum, dagsetta 12.2.2026. Umsóknin var grenndarkynnt með fresti til athugasemda til og með 7. apríl og bárust engar athugasemdir.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur fjallað um umsókn umsækjanda og telur að þar sem engar athugasemdir bárust við grenndarkynningu málsins verði ekki gerðar neinar athugasemdir þótt veitt verði byggingar heimild- eða leyfi til byggingar á skemmu. Leiðrétting á afmörkun lóðarinnar hefur verið samþykkt og er í vinnslu.

9.Svínhagi 2. Deiliskipulag.

2601059

Eigandi lóðarinnar Svínhagi 2 leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Markmiðið er að skapa hágæða gistiaðstöðu sem styður við ferðaþjónustu á svæðinu auk þess að flytja lögheimili á lóðina.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

10.Austvaðsholt 2. Deiliskipulag

2509025

Eigendur jarðarinnar Austvaðsholt 2 leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir hluta jarðarinnar. Í undirbúningi er bygging á nýju íbúðarhúsi á jörðinni fyrir barn eigenda og er ætlunin að skipta út landskika fyrir hann þar sem hann gæti byggt íbúðarhús,bílskúr, skemmu, gestahús, gróðurhús og etv. hús til útleigu fyrir ferðamenn í samræmi við gildandi ákvæði aðalskipulags.

Eigendur jarðarinnar ætla að búa áfram í húsi þeirra á jörðinni en vilja útbúa lóð fyrir það og geta byggt gróðurhús og skemmu ásamt gestahúsi.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

11.Eystra-Fjallaland. Deiliskipulag.

2604079

Eigandi Leirubakka 2 óskar eftir að fá að leggja fram tillögu að deiliskipulagi. Deiliskipulagið nær yfir 49.260 m2 svæði í landi Leirubakka 2 en fyrirhugað er að hafa þar 52 frístundalóðir. Heimilt er að reisa frístundahús, aukahús/gestahús og geymslu á lóðunum með nýtingarhlutfallið 0,03 þ.e. 300 m2 á hverri 10.000 m2 lóð. Lögð er fram tillaga frá Eflu dags. 29.4.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

12.Bogatún 2. Ósk um stækkun lóðar.

2605001

Lóðarhafar að Bogatúni 2 á Hellu óska eftir að fá að færa lóðamörk lóðarinnar um 1,5 metra nær Helluvaðsveginum að sunnanverðu.
Skipulags- og umferðarnefnd telur ekki tímabært að tekin verði ákvörðun um minnkun vegsvæðis Helluvaðsvegar að svo stöddu og leggur til að erindi umsækjanda verði frestað þar til endanlegt skipulag skólasvæðisins liggur fyrir. Tekið verði tillit til beiðni umsækjanda við vinnu við skipulag svæðisins.
Fylgiskjöl:

Fundi slitið - kl. 09:30.