1.Lækur 14. Minnkun lóðar
Málsnúmer 2605052Vakta málsnúmer
Land og skógur óskar eftir breytingu á stærð lóðarinnar Lækur 14 ? L193534 en lóðin er í dag skráð 5,4 ha. hjá HMS en yrði eftir breytingu á lóðarstærð 4,9 ha. Land það sem lóðin minnkar um fellur aftur til upprunajarðarinnar Reyðarvatns L164544. Merkjalýsing frá Páli Sigurðssyni dags. 18.5.2026.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við minnkun lóðarinnar. Nefndin telur ekki þörf á breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið þar sem ný afmörkun lóðar hefur engin áhrif á staðsetningu byggingareita eða byggingarmagn viðkomandi lóðar.
2.Lækur 10 - Minnkun lóðar
Málsnúmer 2606002Vakta málsnúmer
Land og skógur óskar eftir breytingu á stærð lóðarinnar Lækur 10 L186653 en lóðin er í dag skráð 65.000 m² hjá HMS en yrði eftir breytingu á lóðarstærð 49.000 m². Land það sem lóðin minnkar um fellur aftur til upprunajarðarinnar Reyðarvatns L164544. Merkjalýsing frá Páli Sigurðssyni dags. 12.5.2026.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við minnkun lóðarinnar. Nefndin telur ekki þörf á breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið þar sem ný afmörkun lóðar hefur engin áhrif á staðsetningu byggingareita eða byggingarmagn viðkomandi lóðar.
3.Holtsmúli 1 land B. Landskipti Holtsmúli 1C
Málsnúmer 2606004Vakta málsnúmer
Landeigandi óskar eftir að fá að skipta ur jörð sinni, Holtsmúla 1 land B L216469, um 89 ha spildu sem fengi heitið Holtsmúli 1C og Lxxxxxx. Stærð upprunajarðar yrði 111,1 ha eftir skiptin. Merkjalýsing frá Kristjönu Ólöfu Valgeirsdóttur dags. 12.5.2026.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
4.Landmannalaugar. Framkvæmdaleyfi vegna ræsis í Námskvísl.
Málsnúmer 2605049Vakta málsnúmer
Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi til að setja ræsi undir Námskvísl á vað að Landmannalaugum. Fyrir liggur leyfi frá Fiskistofu, umsagnir frá Hafrannsóknarstofnun, Náttúruverndarstofnun og Náttúrufræðistofnun. Skipulagsstofnun telur framkvæmdina ekki falla undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og sé því ekki tilkynningaskyld.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að útgáfa framkvæmdaleyfis til endurbóta á vaðinu í Námskvísl sbr. framlagðan uppdrátt og önnur gögn málsins verði samþykkt enda hefur framkvæmdin engin áhrif á skipulagsáætlanir fyrir Landmannalaugar. Nefndin leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út leyfið og hafa eftirlit með framkvæmdunum.
Gunnar Aron vék af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa erindis.
5.Þjórsá. Efnistökusvæði E67 og E33. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis
Málsnúmer 2605048Vakta málsnúmer
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Landsvirkjunar um starfsleyfi fyrir efnistöku úr E33 allt að 50.000 m³ af fokmold og úr E67 allt að 200.000 m³af grjóti, í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 19.05.2026.
Skipulagsnefnd gerir engar athugasemdir þótt veitt verði starfsleyfi til efnistöku úr E33 og E67 þar sem efnistakan er í fullu samræmi við skipulagsáætlanir auk þess sem fyrir liggur útgefið framkvæmdaleyfi til efnistöku úr þessum stöðum.
Gunnar Aron kom aftur á fundinn
Gunnar Aron vék af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa erindis.
6.Vaðfitjanáma. Efnistökusvæði E125. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis
Málsnúmer 2605047Vakta málsnúmer
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Landsvirkjunar um starfsleyfi fyrir efnistöku allt að 40.000 m³ í Vaðfitjanámu efnistökusvæði E125 auk haugsetningu allt að 200.000 m³ úr nálægum námum, í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 19.05.2026.
Skipulagsnefnd gerir engar athugasemdir þótt veitt verði starfsleyfi til efnistöku úr E125 þar sem efnistakan er í fullu samræmi við skipulagsáætlanir auk þess sem fyrir liggur útgefið framkvæmdaleyfi til efnistöku úr námunni.
Gunnar Aron kom aftur á fundinn.
7.Keldur og fl jarðir. Skógrækt. Birki
Málsnúmer 2605074Vakta málsnúmer
Land og skógur hefur á undanförnum árum gróðursett umtalsvert magn af birki innan afmörkunar Hekluskóga, stór hluti af þessum svæðum eru innan Rangárþings Ytra. Eitt af þeim svæðum sem ráðgert er að gróðursetja í, í sumar, er sunnan Eldiviðarhrauns, svæði þetta fellur innan eftirtaldra jarða, Keldur, Dagverðarnes og Reyðarvatn. Dagverðarnes og Reyðarvatn er í umsjón Lands og skógar en Keldur er í einkaeigu. Gróðursetning á birki í landi Keldna er gerð með vitund og vilja eiganda Keldna. Um er að ræða u.þ.b. 89 ha lands að þessu sinni.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að um málsmeðferð fari sem um framkvæmdaleyfi sé að ræða. Nefndin telur einnig réttast að breyting verði gerð á landnotkun svæðisins sem um ræðir í aðalskipulagi sveitarfélagsins en telur hentugast að slík breyting verði gerð samhliða endurskoðun aðalskipulagsins.
8.Meiri-Tunga 1B. Deiliskipulag.
Málsnúmer 2606001Vakta málsnúmer
Eigendur óska eftir heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir land sitt. Umsækjendur hyggjast stofna lögbýli á jörðinni og byggja þar m.a. íbúðarhús, reiðhöll og vélaskemmu. Auk þess eru áform um að byggja 4-5 gestahús til útleigu.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins.
9.Norður Nýibær. Framkvæmdaleyfi til vegagerðar
Málsnúmer 2606003Vakta málsnúmer
Landeigandi óskar eftir framkvæmdaleyfi til vegagerðar í skipulögðu íbúðasvæði innan jarðar sinnar. Vegurinn tengir allt að 16 íbúðalóðir auk þjónustulóðar og aðkoma verður af Þykkvabæjarvegi um svokallaða Ástarbraut.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að útgáfa framkvæmdaleyfis til vegagerðar í Norður-Nýjabæ sbr. framlagðan uppdrátt og önnur gögn málsins verði samþykkt enda er framkvæmdin í samræmi við skipulagsáætlanir. Nefndin leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út leyfið og hafa eftirlit með framkvæmdunum.
10.Þjóðólfshagi 1. Breyting á landnotkun í Verslunar- og þjónustusvæði
Málsnúmer 2510315Vakta málsnúmer
Rangárþing ytra vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin nær til hluta úr jörðinni Þjóðólfshaga 1 þar sem áform eru uppi um rekstur gistiþjónustu í gistiskálum fyrir allt að 40 manns. Tillaga var auglýst frá og með 1.4. til og með 13.5.2026. Umsagnir má nálgast undir máli nr. 1517/2025 í skipulagsgátt.
Breytingin nær til hluta úr jörðinni Þjóðólfshaga 1 þar sem áform eru uppi um rekstur gistiþjónustu í gistiskálum fyrir allt að 40 manns. Tillaga var auglýst frá og með 1.4. til og með 13.5.2026. Umsagnir má nálgast undir máli nr. 1517/2025 í skipulagsgátt.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur fjallað um fram komnar umsagnir og telur að þær hafi ekki efnisleg áhrif á tillöguna en tekið verður tillit til þeirra við útfærslu deiliskipulags. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun.
11.Gaddstaðaeyja. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi
Málsnúmer 2401044Vakta málsnúmer
Rangárþing ytra hefur samþykkt að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á landnotkun í aðalskipulagi í Gaddstaðaeyju, þar sem gert verði ráð fyrir breytingu á landnotkun þar sem núverandi Óbyggt svæði verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði. Lýsing skipulagsáforma hefur verið kynnt auk þess að kynning vinnslutillögu hefur farið fram. Lögð er fram tillaga frá Eflu dags. 11.9.2025.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynning vinnslutillögunnar hefur þegar farið fram. Nefndin ítrekar að tillaga að deiliskipulagi verður auglýst samhliða.
12.Gaddstaðaeyja L196655. Deiliskipulag
Málsnúmer 2303048Vakta málsnúmer
Eigandi Gaddstaðaeyju leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi í eyjunni. Gert er ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu í eyjunni, í formi allt að 160 herbergja hótels með afþreyingu s.s. baðlóni, á suðurtanga eyjunnar, auk byggingu allt að 30 smáhýsa til útleigu inn af árbökkum norðurhluta eyjunnar. Smáhýsin munu tengjast rekstri hótelsins. Breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins verður hér auglýst samhliða þar sem landnotkun verður breytt úr óbyggðu svæði í landnotkun verslunar- og þjónustu. Tillaga frá Zeppelin arkitektum dags. 6.1.2026.
Skipulagsnefnd hefur farið yfir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
13.Orravellir 5. Umsókn um lóð
Málsnúmer 2605065Vakta málsnúmer
Laufey Ósk Christensen sækir um lóð nr. 5 við Orravelli til að byggja á henni hesthús úr stáli. Umsækjandi áætlar að byrjunartími framkvæmda sé ekki seinna en mars/apríl 2027 og áætlaður byggingartími framkvæmda sé ca. 6 mánuðir. Umsókn barst 26.5.2026
Skipulagsnefnd hefur farið yfir umsókn aðila og telur að hún uppfylli ekki meginskilyrði samþykktra úthlutunarreglna til afgreiðslu þar sem framkvæmdatími er utan þeirra 8 mánaða sem reglur kveða á um. Skipulagsfulltrúa er falið að hafa samband við umsækjanda til að uppfæra áætlaðan framkvæmdatíma.
14.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 177
Málsnúmer 2604006FVakta málsnúmer
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 177 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
15.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 178
Málsnúmer 2604011FVakta málsnúmer
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 178 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
16.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 179
Málsnúmer 2605001FVakta málsnúmer
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 179 er að ræða.
Lagt fram til kynningaar
17.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 180
Málsnúmer 2605004FVakta málsnúmer
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 180 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
18.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 181
Málsnúmer 2605006FVakta málsnúmer
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 181 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
Fundi slitið - kl. 11:00.