2. fundur 18. júní 2026 kl. 08:30 - 10:45 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Gunnar Aron Ólason formaður
  • Erla Sigríður Sigurðardóttir aðalmaður
  • Þórunn Dís Þórunnardóttir aðalmaður
  • Þröstur Sigurðsson aðalmaður
  • Gyða Árný Helgadóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson embættismaður
  • Jón Ragnar Örlygsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson Skipulagsfulltrúi

1.Faxaflatir. Landskipti, stækkun Faxaflata 4.

2603086

Stækka á lóðina Faxaflatir 4, L233063. Faxaflatir 4, L233063, er með skráða stærð 10626,0 m² í fasteignaskrá HMS. Lóðin stækkar um 7028,4 m² og verður 17654,4 m². Mismunurinn kemur úr Faxaflötum, L225962 sem minnkar um það sem því nemur og verður 31719,1 m². Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur dags. 31.10.2025. Afgreiðslu var frestað vegna óskýrra áforma lóðarhafa.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir stöðu málsins. Fyrir liggur að haldinn var fundur með lóðarhafa Faxaflata 4 og ráðgjafa hans þann 15. júní 2026 þar sem áform um uppbyggingu á lóðinni voru rædd og skýrð frekar.

Á fundinum kom fram að fyrirhuguð uppbygging lóðarhafa, þ.m.t. allt að 1.700 m² bygging undir lágvöruverðsverslun, rúmast innan núverandi afmörkunar lóðarinnar. Núverandi byggingarreitur heimilar allt að 2.000 m² byggingarmagn og samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hafa þegar verið nýttir 256 m² vegna núverandi byggingar á lóðinni.

Með vísan til framangreinds telur nefndin að ekki sé þörf á að halda áfram með fyrirliggjandi landskiptamál og fyrirhugaða stækkun Faxaflata 4 að svo stöddu. Nefndin leggur því til að fallið verði frá fyrirhugaðri stækkun lóðarinnar samkvæmt merkjalýsingu dags. 31.10.2025 og að lóð Faxaflata 4 verði áfram afmörkuð óbreytt
Gunnar Aron Ólason vék af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa erindis.

2.Tungnaáreyrar. Framkvæmdaleyfi til efnistöku.

2606028

Landsvirkjun óskar eftir að sveitarstjórn Rangárþings ytra gefi út framkvæmdaleyfi til handa fyrirtækinu fyrir efnistöku, allt að 30.000 m3, á efnistökusvæði E70 við Tungnaá. Fyrirhuguð efnistaka er ætluð til framkvæmda við Vaðölduver og aðrar framkvæmdir á vegum Landsvirkjunar á svæðinu. Álit HMS liggur fyrir þar sem það er mat stofnunarinnar að umrædd framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir greinargerð og áætlun umsækjanda. Nefndin gerir engar athugasemdir við fyrirliggjandi gögn og leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi að teknu tilliti til 5. greinar reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Gunnar Aron kom aftur inn á fundinn.

3.Móbakki úr landi Móeiðarhvols.

2511144

Rangárþing eystra hefur hafið vinnu við breytingar á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings eystra. Með breytingunni verður landnotkun svæðisins endurskilgreind þannig að heimiluð er föst búseta innan skógræktarsvæðis auk þess allt að 1 ha svæði fyrir samfélagsþjónustu og allt að 1 ha svæði fyrir verslun og þjónustu. Gert er ráð fyrir um 1500 m2 dýraspítala með áfastri reiðskemmu/hesthúsi, allt að 350 m2 íbúðarhús/bílskúr og gestahús og fimm til sex gestahúsum, fyrir allt að 20 gesti. Lögð er fram tillaga til umsagnar.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir engar athugasemdir við fyrirliggjandi tillögu.

4.Selás. Breyting á byggingarmagni Selás E6

2603092

Eigandi lóðar nr. Selás E6 í landi Seláss óskar eftir heimild til að gera breytingar á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið. Í fyrra ferli málsins óskaði hann eftir aukningu á byggingarmagni þar sem heimild til byggingar skemmu aukist úr 300 m² í 400 m² og fyrir gestahús úr 60 m² í 90 m². Um byggingu millilofts er að ræða í báðum húsategundum. Skipulagsnefndin bókaði á síðasta fundi sínum að hún gerði engar athugasemdir við erindið en áréttaði að um heildarflatarmál ætti að vera, en grunnflatarmál verði það sama.

Umsækjandi óskar eftir að stærðir verði skilgreindar svona: Gestahús skulu vera að hámarki 70 m² að grunnfleti, 90 m² með millilofti. Útihús, véla og/eða fóðurgeymslur verða að hámarki 330 m² að grunnfleti, 400 m² með millilofti.
Skipulags- og umferðarnefnd telur rétt að verða við beiðni umsækjanda og heimila því byggingar gestahúsa með allt að 90 m² heildarstærð með mænishæð allt að 10 m og byggingar véla og/eða fóðurgeymsla allt að 400 m² heildarstærð með mænishæð allt að 10 m. Tillagan skal grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5.Öldur III. Breyting á deiliskipulagi

2602002

Farið yfir áherslur gildandi deiliskipulags og rætt hvort eigi að breyta áherslum um byggingartegundir og heimila tveggja hæða fjölbýlishús, breikka vegi milli húsa um a.m.k. 1 metra og skilgreina tengingar gatna við Helluvang Ofanbyggðaveginn. Tillagan var auglýst frá og með 29.4.2026 til og með 10.6.2026. Umsagnir bárust frá alls 7 aðilum og má skoða umsagnir undir máli nr. 508/2026, https://skipulagsgatt.is/issues/2026/508. Athugasemdir bárust frá aðliggjandi lóðarhafa og er lögð fram samantekt með viðbrögðum.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir og athugasemdir ásamt samantekt og viðbrögðum við þeim.

Nefndin telur að hluti af fram komnum umsögnum gefi tilefni til breytinga á auglýstri tillögu sem þó kalli ekki á nýja auglýsingu. Nefndin leggur áherslu á að sjónarmið um umferð, bílastæði, göngu- og hjólatengingar verði höfð til hliðsjónar við áframhaldandi útfærslu og hönnun svæðisins.

Nefndin telur réttast að bílastæði verði 1.5 við fjölbýlishúsin og að lóðamörk verði þar með færð til norðurs. Að auki verði einungis leyfðar 8 íbúðir við Melöldu 6 og Móöldu 8.

Nefndin telur að þörf sé á umferðargreiningu skipulagssvæðisins og að opnun í gegnum gámasvæðið inn á Langasand sé nauðsynleg til að fyrirbyggja of mikla umferð inni í svæðinu og gegnum svæðið. Uppbygging á ofanbyggðarveginum er einnig talin nauðsynleg til að fyrirbyggja umferðartafir.

Nefndin leggur til að sveitarstjórn samþykki umræddar breytingar á auglýstri tillögu og að hún verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

6.Landmannahellir. Breyting á deiliskipulagi

2007003

Umhverfisstofnun, nú Náttúruverndarstofnun, óskaði á árinu 2020, eftir að gildandi deiliskipulag fyrir Landmannahelli verði endurskoðað í samráði við og með aðkomu sveitarfélagsins. Um er að ræða að gera bílastæði sem þörf er á á svæðinu ásamt því að gera áningasvæði við tjaldsvæðið með fræðslu og upplýsingaskiltum um friðlandið og gönguleiðir út frá Landmannahelli. Einnig er ráðgert að gera skipulag á tjaldsvæðinu sjálfu þar sem aðgreint verður svæði fyrir tjöld annars vegar og húsbíla og fellihýsi hinsvegar.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu til auglýsingar og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

7.Aldamótaskógur - Melaskógur. Deiliskipulag

2509041

Rangárþing ytra hefur lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir Aldamótaskóg og Melaskóg. Svæðið er hugsað sem útivistarsvæði til almennrar notkunar og snýst deiliskipulagið um að skipuleggja fjölbreyttar útivistarleiðir og áningarstaði. En einnig tryggja íbúum og almenningi gott aðgengi að útivistarsvæði. Tillaga var auglýst frá og með 16.4.2026 til og með 11.6.2026. Umsagnir bárust frá alls 8 aðilum og má skoða þær undir máli nr. 448/2026 í skipulagsgátt, https://skipulagsgatt.is/issues/2026/448. Engar athugasemdir voru gerðar en ábendingar komu fram frá hagsmunasamtökum Gaddstaða um bættari tengingar almennings, gangandi, ríðandi og hjólandi um svæðið auk þess að sýna verður reiðstíga undir Suðurlandsveginn gegnum Melaskóg, og frá Landsneti sem minnir á að lagnir á vegum fyrirtækisins liggja á eða nálægt skipulagssvæði.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

8.Hvammur L165091. Deiliskipulag.

2603096

Eigendur óska eftir heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir jörð sína, Hvamm L165091. Afmarkaðir verða tveir byggingareitir þar sem heimilt verði að byggja fjóra 40 m² gistiskála til útleigu auk, aðstöðuhúss og 100 m² starfsmannahúss og allt að 2400 m² geymsluhúsnæði. Einnig verða afmarkaðar og stofnaðar tvær nýjar lóðir innan jarðarinnar, önnur undir íbúðarhús allt að 300 m²og hin fyrir núverandi geymsluhúsnæði með möguleika á stækkun upp í allt að 8209,5 m², Skipulagsgögn frá Larsen dags. 19.3.2026. Tillagan var auglýst frá og með 29.4.2026 til og með 10.6.2026. Umsagnir bárust frá alls 8 aðilum og má skoða umsagnir undir máli nr. 509/2026, https://skipulagsgatt.is/issues/2026/509. Engar athugasemdir voru gerðar.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Gunnar Aron Ólason vék af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa erindis.

9.Ferjufit. Tilkynning um ákvörðun um matsskyldu.

2603090

Á grundvelli fyrirliggjandi gagna er það niðurstaða HMS að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. þau viðmið sem tilgreind eru í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Lagt fram til kynningar
Gunnar Aron kom aftur inn á fundinn
Gunnar Aron Ólason vék af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa erindis.

10.Tungnaáreyrar. Tilkynning um ákvörðun m matskyldu.

2603091

Á grundvelli fyrirliggjandi gagna er það niðurstaða HMS að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. þau viðmið sem tilgreind eru í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Lagt fram til kynningar.
Gunnar Aron kom aftur inn á fundinn
Gunnar Aron Ólason vék af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa erindis.

11.Hvammsvirkjun, breyting á deiliskipulagi.

2605041

Skeiða- og Gnúpverjahreppur lagði áherslu á að skýra betur framsetningu námusvæðis (E26) í deiliskipulagi, í samræmi við heimildir aðalskipulags Skeiða- og Gnúpverjarhrepps.

Því kemur hér uppfærð tillaga þar sem búið er að afmarka námu 26 í lónstæði, fyrri tillaga heimilaði efnistöku út öllu lónstæði.

Samhliða er sett inn breyting á afmörkun lóðar fyrir tengivirki - en Landsnet leggur áherslu á að lóð sé bara 1 ha.

Aðrar efnislegar breytingar eru ekki frá fyrri tillögu.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir gögn málsins þar sem Skeiða- og Gnúpverjahreppur leggur áherslu á að skýra betur samræmi aðalskipulags og deiliskipulags varðandi heimildir til efnistöku úr lónstæði. Tillaga hefur því verið uppfærð, þar sem náma 26 er afmörkuð og samhliða er sett inn breytt afmörkun lóðar fyrir tengivirki Landsnets.
Þar sem auglýsing á breytingu á deiliskipulagi Hvammsvirkjunar er hafin af hálfu Rangárþings ytra en án ofangreindra atriða telur nefndin réttast að skipulagsferli verði stöðvað og tillaga því auglýst að nýju. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir meðfylgjandi tillögu að breyttu deiliskipulagi Hvammsvirkjunar, dags. 15.06.2026 og leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samráði við Skeiða- og Gnúpverjahrepp.
Gunnar Aron kom aftur inn á fundinn

12.Orravellir 5. Umsókn um lóð

2605065

Laufey Ósk Christensen sækir um lóð nr. 5 við Orravelli til að byggja á henni hesthús úr stáli. Umsækjandi áætlar að byrjunartími framkvæmda sé ekki seinna en febrúar 2027 og áætlaður byggingartími framkvæmda sé ca. 6 mánuðir. Umsókn barst 26.5.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsókn aðila og telur að hún uppfylli skilyrði samþykktra úthlutunarreglna til afgreiðslu. Nefndin samþykkir að lóðinni Orravellir 5 verði úthlutað til Laufeyjar Óskar Christensen til að byggja á henni hesthús í samræmi við gildandi deiliskipulag svæðisins.
Fylgiskjöl:

Fundi slitið - kl. 10:45.