1.Vindás vegstæði. Landskipti
2606045
Breyta á afmörkun lóðarinnar Vindás vegstæði (L219613) vegna breyttrar legu tilkomandi Búðafossvegar.
Tvær lóðir eru stofnaðar.
Vindás millispilda er 61225,9 m2. Lóðin er stofnuð úr jörðinni Vindási L 165015. Vindás er ekki með skráða stærð í fasteignaskrá HMS en minnkar um það sem því nemur. Vindás millispilda sameinast síðan Vindási vegstæði L219613 sem stækkar um það sem því nemur.
Vindás vegstæði millispilda er 38385,8 m2. Enginn matshluti er á lóðinni. Engin kvöð er á lóðinni.
Lóðin er stofnuð úr Vindási vegstæði L219513 sem er skráð 15900 m2.
Skráð stærð Vindáss vegstæðis í fasteignaskrá HMS er skv. staðfestingu landskipta nr. 431-4-000860/2010.
í umræddu skjali er vitnað í hnitsettan uppdrátt af vegstæðinu dags. 28.10.09. Engin stærð er á uppdrættinum en ef horft er til staðsetninga hnitpunkta og afmörkunar lóðarinnar er hún um 16,2 ha.
Mistök hafa því orðið við skráningu á stærð lóðarinnar við stofnun hennar.
Þegar búið er að stofna Vindás vegstæði millispildu úr Vindási vegstæði og bæta Vindási millispildu inn í vegstæðið, verður Vindas vegstæði (1219613) 18,5 ha að stærð.
Vindás vegstæði millispilda sameinast Vindási L165015.

Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
2.Tunguvirkjun í Keldnalæk. Erindi vegna matsfyrirspurnar
2408009
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun leitar umsagna umsagnaraðila vegna tilkynninga til ákvörðunar um matsskyldu á grundvelli 20. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Afl og Orka ehf. hefur gert samning við landeiganda að Keldnalæk í Rangárþingi ytra um uppbyggingu og rekstur Tunguvirkjunar í landi Keldna. Fyrirhuguð virkjun er allt að 3 MW rennslisvirkjun.
Framkvæmdin felur meðal annars í sér byggingu inntaksmannvirkis og inntakslóns, sem verður um 3,5
ha. að stærð, auk um 1,4 km langrar aðrennslispípu frá inntaki að stöðvarhúsi. Jafnframt er áætlað að leggja um 3,5 km af vegslóðum innan framkvæmdarsvæðis. Áætluð heildarstærð framkvæmdasvæðisins er talin nema um 25 ha. Á mynd 1.1 má sjá staðsetningu framkvæmdasvæðis við ármót Keldnalækjar og Eystri-Rangá.
Áður en lengra er haldið með undirbúning óskar Afl og Orka ehf. hér með eftir ákvörðun Húsnæðis- og
mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) um það hvort framkvæmdin sem lýst er sé matsskyld skv. lögum nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Virkjunin telst vera í flokki B samkvæmt skilgreiningu í viðauka 1 í fyrrgreindum lögum og er því tilkynningaskyld til HMS, sem metur framkvæmdina á grundvelli viðmiðana sem lýst er í viðauka 2 í þessum sömu lögum.

Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir matsskyldufyrirspurn vegna fyrirhugaðrar Tunguvirkjunar í Keldnalæk og þau gögn sem lögð hafa verið fram með erindinu.
Nefndin vísar til fyrri bókunar sinnar þar sem bent var á veruleg álitamál vegna menningarminja, sérstakrar verndar Tungufoss og Krókahrauns, áhrifa á vatnshlot og neysluvatn, auk verndargildis lífríkis og fuglalífs á svæðinu.
Þrátt fyrir að frekari rannsóknargögn hafi nú verið lögð fram telur nefndin að ekki hafi verið leyst með fullnægjandi hætti úr öllum þeim álitaefnum sem áður voru tilgreind. Sérstaklega liggur ekki fyrir endanleg afstaða Minjastofnunar Íslands til áhrifa framkvæmdarinnar á fornleifar, fullnægjandi og samræmt mat á áhrifum á vatnshlot og neysluvatn né skýrt valkostamat. Þá er ósamræmi í gögnum um umfang framkvæmdarinnar, meðal annars varðandi stærð inntakslóns og lengd vegslóða, og þær forsendur sem einstakar sérfræðirannsóknir byggja á.
Með hliðsjón af eðli og umfangi framkvæmdarinnar, viðkvæmni framkvæmdarsvæðisins og viðmiðum 2. viðauka laga nr. 111/2021 telur nefndin að ekki sé unnt að útiloka að framkvæmdin geti haft í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif.
Skipulags- og umferðarnefnd mælir því með að fyrirhuguð Tunguvirkjun verði háð umhverfismati samkvæmt lögum nr. 111/2021. Nefndin tekur með þessari umsögn ekki endanlega afstöðu til heimildar framkvæmdarinnar í skipulagi.

Gunnar Aron vék af fundi við meðferð og afgreiðslu málsins
3.Vaðölduver. Tillaga að starfsleyfi UOS
2606061
Umhverfis- og orkustofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi Landsvirkjunar fyrir vindorkuver við Vaðöldu á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Gert er ráð fyrir heimild til reksturs á allt að 28 vindmyllum með samanlagt uppsett afl allt að 120MW, auk safnstöðvar og tengdrar starfsemi.
Lagt fram til kynningar.
Gunnar kemur aftur inn á fund
4.Kosning varaformanns í Skipulags- og umferðarnefnd
2606067
Kosning varaformanns fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að varaformaður nefndarinnar kjörtímabilið 2026-2030 verði Þórunn Dís Þórunnardóttir.
5.Lækur 2. Breyting á deiliskipulagi
2605068
Nesbúegg ehf. óskar eftir heimild Rangárþings ytra til að hefja vinnu við gerð nýs deiliskipulags eða breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir jörðina Læk 2 í Holtum. Í gildi er deiliskipulag sem var samþykkt í sveitarstjórn Rangárþings ytra, dags. 8.2.2023 og fjallar um uppbyggingu á varphúsum og öðrum mannvirkjum tengdum eggjaframleiðslu. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er stærð skipulagssvæðisins u.þ.b. 3,5 ha. Í gildandi deiliskipulagi er heimild til uppbyggingar varphúsa fyrir allt að 25.000 fugla. Breytingin sem sótt er um felur í sér að fjölga varpfuglum í allt að 40.000 fugla (fjölgun um 15.000 fugla) og mannvirkjum því tengdu.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáform samræmast stefnu aðalskipulagsins.
6.Galtalækjarnáma merkurnáma fyrirspurn vegna MÁU
2605023
Á grundvelli fyrirliggjandi gagna er það niðurstaða HMS að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. þau viðmið sem tilgreind eru í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Lagt fram álit Skipulagsstofnunar.
Lagt fram til kynningar
7.Útskálar 1. Breyting á landnotkun
2606055
Sveitarfélagið óskar eftir að gerð verði breyting á landnotkun fyrir lóðina Útskálar 1 þar sem núverandi samfélagsþjónusta verði íbúðarlóð. Skipulagsgögn frá Eflu dags. 24.6.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að farið verði um málsmeðferð eins og um óverulega breytingu sé að ræða í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem tillagan hefur engin áhrif á aðra en sveitarfélagið. Staðsetning bílastæða skuli koma fram í skilmálum lóðarinnar.
Erla Björk Þorgeirsdóttir fór yfir helstu áherslur og stöðunmálsins
8.Tunguvirkjun í landi Keldna. Breyting á aðalskipulagi.
2506047
Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að lagðar verði fram tillögur að breytingum á aðalskipulagi vegna fyrirhugaðrar virkjunar í landi Keldna þar sem landnotkun undir virkjunarsvæðið verði gert að iðnaðarsvæði. Lýsing skipulagsáforma frá Eflu dags. 27.10.2025 var kynnt í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga og stóð kynning yfir frá og með 12.11.2025 til og með 29.12.2025. Umsagnir bárust frá alls 19 aðilum. Málinu var frestað í afgreiðslu nefndarinnar þar sem ekki lá fyrir skýr stefna Minjastofnunar um mótvægisaðgerðir og að niðurstaða matsfyrirspurnar þyrfti að liggja fyrir. Fyrir liggur að Minjastofnun hefur samþykkt að leita leiða til að raska ekki fornleifum að óþörfu en hefur fallið frá kröfu um friðlýsingu. Forsvarsmaður Afls og Orku fer yfir stöðu málsins.
Skipulags- og umferðarnefnd telur ekki forsendur til að halda áfram með málið fyrr en niðurstaða HMS liggur fyrir um hvort framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum.
Erlu þökkuð góð yfirferð.
Gunnar Aron vék af fundi við meðferð og afgreiðslu málsins
9.Sigölduvirkjun. Breyting á aðalskipulagi.
2605043
Landsvirkjun hefur óskað eftir að gerð verði minni háttar breyting á staðsetningu efnistökusvæðis við Sigöldu. Um er að ræða efnistökusvæðið E72 sem færist frá núverandi stað og suður fyrir Sigöldugljúfur, á þegar raskað svæði. Skipulagsgögn frá Eflu.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að farið verði um málsmeðferð eins og um óverulega breytingu sé að ræða í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem tillagan hefur engin áhrif á aðra en málsaðila og sveitarfélagið auk þess sem ný staðsetning efnistökusvæðisins verður á þegar röskuðu svæði við suðurenda Sigöldugljúfurs.
Gunnar Aron kom aftur á fundinn
10.Öldur III. Breyting á deiliskipulagi
2602002
Farið yfir áherslur gildandi deiliskipulags og rætt hvort eigi að breyta áherslum um byggingartegundir og heimila tveggja hæða fjölbýlishús, breikka vegi milli húsa um a.m.k. 1 metra og skilgreina tengingar gatna við Helluvang Ofanbyggðaveginn. Tillögunni var vísað aftur til nefndarinnar frá Byggðaráði þar sem áhöld voru uppi um hvort 10 íbúða fjölbýli ætti rétt á sér við enda Melöldu og Móöldu.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar breytingar á tillögunni frá síðsutu kynningu. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna áherslna í fyrirliggjandi tillögu. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nefndin vill árétta að sýnt sé fram á að pláss sé innan lóðar eða húss fyrir geymslur og sorpgerði. Að auki telur nefndin réttast að göngustígur verði ekki innan lóðar heldur færist austur fyrir lóðamörk.

11.Svínhagi 2. Deiliskipulag.
2601059
Eigandi lóðarinnar Svínhagi 2 hefur lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Markmiðið er að skapa hágæða gistiaðstöðu sem styður við ferðaþjónustu á svæðinu auk þess að flytja lögheimili á lóðina. Tillaga var auglýst frá og með 15. maí til og með 1. júlí 2026. Umsagnir hafa borist frá alls 6 umsagnaraðilum en engar athugasemdir voru gerðar. Skoða má allar umsagnir undir máli nr. 608/2026 í skipulagsgáttinni, https://skipulagsgatt.is/issues/2026/608.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
12.Faxaflatir. Breyting á deiliskipulagi.
2606056
Lóðarhafi Faxaflata 4 óskar eftir að gerð verði breyting á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið þar sem heimiluð verði útleiga gistingar til ferðaþjónustu í íbúðum á efri hæð veitingastaðarins eða til útleigu sem skrifstofurými. Skipulagsgögn frá Eflu dags. 24.6.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir erindi lóðarhafa og fyrirliggjandi gögn. Nefndin vísar til þess að samkvæmt grunnforsendum gildandi deiliskipulags er lóðin ætluð undir þjónustustarfsemi við þjóðveginn, einkum söluskála, eldsneytisafgreiðslu, bílaþvottastöð og tengda starfsemi. Gististarfsemi var hins vegar sérstaklega staðsett annars staðar innan skipulagssvæðisins og fellur því ekki að þeirri notkun og þeirri heildarsýn sem mótuð var fyrir þessa tilteknu lóð.
Nefndin vísar jafnframt til þess að áfram er unnið að því að ná niðurstöðu um framtíðarþróun og atvinnuuppbyggingu á Faxaflötum 4, meðal annars um áfangaskiptingu, starfsemi og heildstæð framkvæmdaáform. Að mati nefndarinnar væri óheppilegt að víkka nú út heimildir lóðarinnar með gististarfsemi eða annarri notkun sem getur breytt eðli uppbyggingarinnar áður en skýr og samræmd niðurstaða liggur fyrir um megináherslur svæðisins.
Með vísan til framangreinds telur nefndin ekki tímabært að breyta gildandi deiliskipulagi með umbeðnum hætti og hafnar erindinu að svo stöddu.

13.Lautir, Álfaborgir 5, Deiliskipulag.
2507053
Landeigandi hefur lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir spildu sína, hluta úr Álfaborgum 5 eða svæði sem mun fá heitið Lautir. Lautir eru hluti af Álfaborgum en staðsett sunnan Húsagarðsvegar. Áform eru að skilgreina Lautir sem lögbýli. Á jörðinni er fyrirhugað að stunda grænmetisræktun og sjálfbæra vöruþróun. Gert er ráð fyrir íbúðarhúsi og að hluti núverandi útihúsa verði nýttur sem vinnustofur fyrir myndlist og vöruhönnun. Útleiga og gisting verður tengd þeirri skapandi og sjálfbæru starfsemi sem fram fer á staðnum. Tillagan var auglýst frá og með 25.2.2026 til og með 8.4.2026. Allar fram komnar umsagnir má sjá undir máli nr. 114/2025 í skipulagsgáttinni. Athugasemd barst frá Vegagerðinni sem samþykkir ekki framlagða tillögu að tengingu; frá Náttúruverndarstofnun sem bendir á tengsl milli náttúruverndar og mótvægisaðgerða ef raska þarf landslagi eða vistgerðum; frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem áréttar að ef gert er ráð fyrir að vatn komi frá Vatnsveitunni þurfi að gera ráð fyrir öðrum möguleikum ef það gengur ekki eftir.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
14.Hellarnir við Hellu. Breyting á deiliskipulagi.
2606068
Breyting á deiliskipulagi. Afmarka á tvær nýjar lóðir; annars vegar lóð fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi og hins vegar lóð fyrir geymslusvæði sem tengist atvinnustarfsemi á svæðinu. Skipulagsgögn frá Eflu dags. 30.6.2026
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
15.Ægissíða 2, Rangárstígur, breyting á deiliskipulagi.
2606069
Landeigendur óska eftir heimild til breytinga á gildandi deiliskipulagi, dags. 27.11.2017. Lóð Rangárstígs 9 stækkar um 6374 m2 og er ný mæld stærð lóðar 12.143 m2. Skipulagssvæðið er stækkað sem um nemur lóð Rangárstígs 9 og er ný stærð svæðis 2,5 ha. Byggingarreitur er stækkaður til austurs og norðurs. Árbakki er aðlagaður í samræmi við fjarkönnunargögn. Hnitkrossum er bætt við á uppdrátt.
Að undanskildum þeim breytingum sem fjallað er um hér gilda ákvæði í gildandi skipulagi.
Að undanskildum þeim breytingum sem fjallað er um hér gilda ákvæði í gildandi skipulagi.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
16.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 177
2604006F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 177 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
17.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 178
2604011F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 178 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
18.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 179
2605001F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 179 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
19.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 180
2605004F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 180 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
20.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 181
2605006F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 181 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
21.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 1
2605009F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 1 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
22.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 2
2606005F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 2 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
23.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 3
2606008F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 3 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
Fundi slitið - kl. 11:15.