5. fundur 20. ágúst 2026 kl. 08:30 - 11:15 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Gunnar Aron Ólason formaður
  • Erla Sigríður Sigurðardóttir aðalmaður
  • Auður Erla Logadóttir varamaður
  • Þröstur Sigurðsson aðalmaður
  • Gyða Árný Helgadóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson Skipulagsfulltrúi

1.Kvisthagi landskipti vegsvæði

Málsnúmer 2608003Vakta málsnúmer

Eigendur að Kvisthaga, L198023 óska eftir að fá að skipta út 3.379,1 m² spildu undir vegsvæði á Hvammsvegi (2791) skv. uppdrætti frá Eflu dags. 1.7.2024. Ný spilda fengi landeignanúmerið LXXXXXX og heitið Kvisthagi vegsvæði. Merkjalýsing frá Eyþóru Hjartardóttur, dags. 30.9.2024
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

2.Hellar land, Landskipti, vegsvæði

Málsnúmer 2608004Vakta málsnúmer

Eigandi að Hellum landi L212072, óskar eftir að fá að skipta út 6.372,1 m² spildu undir vegsvæði á Hvammsvegi (2791) skv. uppdrætti frá Eflu dags. 1.7.2024. Ný spilda fengi landeignanúmerið LXXXXXX og heitið Hella land vegsvæði. Merkjalýsing frá Ástu Guðrúnu Beck, dags. 1.7.2024.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

3.Hella, Landskipti, Vegsvæði

Málsnúmer 2608005Vakta málsnúmer

Eigendur að Hellum, L164976, óska eftir að fá að skipta út 14.556,0 m² spildu undir vegsvæði á Hvammsvegi (2791) skv. uppdrætti frá Eflu dags. 1.7.2024. Ný spilda fengi landeignanúmerið LXXXXXX og heitið Hellar vegsvæði. Merkjalýsing frá Ástu Guðrúnu Beck, dags. 13.7.2024.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

4.Bjóla 1. Landskipti Bjóla 1a og staðfesting á afmörkun

Málsnúmer 2608006Vakta málsnúmer

Eigandi Bjólu 1 L165360 óskar eftir að fá að skipta úr jörð sinni, 3,16 ha spildu sem fengi heitið Bjóla 1a og landeignanúmerið L241946. Bjóla 1 L165360 hefur ekki skráða stærð. Matshlutarnir 02 0101 Einbýlishús og 05 0101 Véla- og verkfærageymsla fylgja yfir á nýja lóð. Samhliða landskiptunum er óskað eftir að staðfesta afmörkun þeirra spildna sem tilheyra Bjólu 1 og eru í samræmi við uppdrætti frá Verkís sem eru hluti af meðfylgjandi merkjalýsingu. Merkjalýsandi er Jóhann Birkir Helgason dags. 2.8.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

5.Gaddstaðir 44-46. Landskipti. Breytt afmörkun lóða

Málsnúmer 2608007Vakta málsnúmer

Eigendur lóðanna Gaddstaðir 44, 45 og 46 óska eftir að fá að breyta afmörkun lóða sinna innbyrðis frá núverandi skráningu. Gaddstaðir 44 stækkar til vesturs um 10 metra inná Gaddstaði 45. Gaddstaðir 45 stækkar um 109,5 metra inn á lóðir Gaddstaðir 44 og 46. Gaddstaðir 46 stækkar um 15 metra inná lóðina Gaddstaðir 45. Gaddstaðir 44 var 15.472 m² en verður 13.675 m². Gaddstaðir 45 var 7.809 m² en verður 11.118 m². Gaddstaðir 46 var 15.229 m² en verður 13.702 m². Tengingar af aðalvegi verða óbreyttar en gert er ráð fyrir að byggingarreitir breytist. Merkjalýsing frá Þóru Björg Ragnarsdóttur, dags. 4.11.2024.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við breytta afmörkun lóðanna en gerir kröfu til aðila að gerð verði breyting á gildandi deiliskipulagi svæðisins til samræmis við breytingar á lóðum og byggingareitum.

6.Hagi land vegsvæði, Leiðrétting

Málsnúmer 2608012Vakta málsnúmer

Verið er að leiðrétta stærð vegsvæðis sem stofnað var úr Haga landi, L178738, vegna skörunar við Haga lóð, L165223, Haga beitiland vegsvæði, L239590 og Haga L168085, sbr. meðfylgjandi merkjalýsingu frá Sigríði Önnu Ellerup, dags. 5.8.2026 og sáttagerð sýslumanns.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir engar athugasemdir við fram lagða leiðréttingu og leggur til að hún verði samþykkt.

7.Hagi Beitiland vegsvæði, Leiðrétting

Málsnúmer 2608013Vakta málsnúmer

Verið er að leiðrétta afmörkun og stærð vegsvæðisins Hagi beitiland vegsvæði vegna skörunar við Haga lóð 165223 og 165221 og Haga L165085 og Haga land vegsvæði sbr. meðfylgjandi merkjalýsingu frá Sigríði Önnu Ellerup, dags. 5.8.2026 og sáttagerð sýslumanns.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir engar athugasemdir við fram lagða leiðréttingu og leggur til að hún verði samþykkt.

8.Hekluskarð og Litli-Klofi lóð B4. Landskipti. Breyting á heiti

Málsnúmer 2608019Vakta málsnúmer

Eigandi óskar eftir að fá að skipta upp landi sínu. Verið er að skipta upp lóðinni Litla-Klofa lóð B4 L209909 í fjórar lóðir og samhliða að breyta staðfangi L209909 í Hekluskarð 2. Hinar lóðirnar verða Hekluskarð 3, stærð 39.670,8 m² og Lxxxxxx, Hekluskarð 4, stærð 25.674,5 m² og Lxxxxxx og Hekluskarð 5, stærð 20.832,0 m². Úr Litla-Klofa lóð B4 L209909 (Hekluskarð 2) fara 40.932,4 m² yfir til L205145 Hekluskarð 1 skika 1. Hekluskarð 2 (áður Litli-Klofi B4) verður 36.585,8 m² eftir skiptin. Hekluskarð 1, L205145, verður 160.479.7 m². Skiki 2, sem nær yfir aðkomuveginn og hluta vegarins að Stóru-Völlum, er óbreyttur. Merkjalýsing er gerð af Halldóru Narfadóttur, dags. 5.8.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

9.Holtsmúli 4. Landskipti. Fjórar lóðir

Málsnúmer 2608035Vakta málsnúmer

Eigendur Holtsmúla 4 L219495 óska eftir að fá að skipta úr landi sínu fjórum lóðum. Lóð sem yrði 10012,4 m² að stærð, fengi heitið Efri-Nátthagi og Lxxxxxx, lóð sem yrði 10023,0 m², fengi heitið Heiðarholt 1 og Lxxxxxx, lóð semyrði 9089,9 m² að stærð, fengi heitið Heiðarholt 1B og Lxxxxxx og lóð sem yrði 5956,9 m² að stærð, fengi heitið Heiðarholt 2 og Lxxxxxx. Matshluti 04 0101 færist yfir á Efri-Nátthaga, matshluti 06 0101 auk matshluta 05 0101 færast yfir á Heiðarholt 1 og matshluti 057 0101 færist yfir á Heiðarholt 1B. Stærð Holtsmúla 4 eftir skiptin verður 493286,9 m². Merkjalýsing frá Adam Hoffritz, dags. 8.6.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

10.Nes 2, stækkun lóðar.

Málsnúmer 2606042Vakta málsnúmer

Stækkun lóðarinnar er í samræmi við gildandi deiliskipulag. Nes 2 L193114 er með skráða stærð 500 m² skv. fasteignaskrá HMS. Lóðin stækkar nú um 527,8 m² og verður 1027,8 m². Mismunurinn kemur úr Lundur-Dvalarheimili, L164953 sem er með skráða stærð 25441 m² skv. fasteignaskrá HMS, og minnkar nú um 527,8 m² og verður 24913,2 m². Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur dags. 3.6.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

11.Borgir - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1

Málsnúmer 2607045Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Sveinbjörns Jónssonar, fh. Guðjóns Helgasonar, um byggingarheimild til byggingar 128,5 m² tækjageymslu á lóðinni Borgir (L231526), samkvæmt aðaluppdráttum hönnuðar, dags. 29.6.2026. Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu þar sem fyrirhuguð staðsetning mannvirkisins er utan þess byggingarreits sem skilgreindur er í gildandi skipulagi.
Skipulags- og umferðarnefnd telur réttast að umsækjandi geri nauðsynlegar breytingar á gildandi deiliskipulagi þar sem nýr byggingareitur verði skilgreindur undir áformaða skemmu. Nefndin telur að um óverulega breytingu verði að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá yfirbragði eða formi viðkomandi svæðis. Tillagan skuli jafnframt grenndarkynnt til eigenda Sólvalla auk rekstraraðila vatnsveitunnar og rafveitunnar.

12.Grásteinn. Breyting á deiliskipulagi.

Málsnúmer 2602023Vakta málsnúmer

Eigendur Grásteins L174770 óska eftir að fá að leggja fram tillögu að breytingum á gildandi deiliskipulagi dags. 30.6.2020. Afmarkaðar eru tvær nýjar lóðir, Túnbrekka og Sólbarð, og settir byggingarskilmálar fyrir þær. Á hvorri lóð er heimilt að byggja íbúðarhús með bílskúr, gestahús og skemmu, samtals allt að 1200 m². Byggingareitur B4 er felldur út. Áform eru um uppbyggingu íbúðarhúsa og tengdra bygginga í landbúnaðarnotum.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Ásgeir Jónsson frá Eflu fór yfir áherslur málsins

13.Svínhagi L7 og L8A. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi.

Málsnúmer 2601359Vakta málsnúmer

Sveitarfélagið samþykkti 22.10.2025 að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem núverandi landnotkun landbúnaðarsvæðis verði breytt í Verslunar- og þjónustusvæði. Tillaga var auglýst frá og með 28.5.2026 til og með 15.7.2026. Umsagnir bárust frá alls 8 aðilum. Vegagerðin fer fram á að unnið verði að gerð samgöngumats vegna mikillar aukningar á umferð um svæðið. Athugasemdir bárust frá nærliggjandi lóðareigendum norðan Selsundslækjar. Lögð er fram samantekt á athugasemdum og ábendingum og drög að viðbrögðum við þeim ásamt uppfærðum skipulagsgögnum. nefndin samþykkti á síðasta fundi að unnið yrði að samgöngumati fyrir heildarsvæðið.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun.
Skipulags- og umferðarnefnd áréttar og leggur til að unnið verði sérstakt samgöngumat fyrir ofanverða Rangárvelli og Landsveit með tilliti til mikillar uppbyggingar, bæði til íbúðar- og frístundabyggðar - og varðandi uppbyggingar verslunar- og þjónustusvæða.




Ásgeir Jónsson vék af fundi.
Ásgeir Jónsson frá Eflu fór yfir áherslur málsins

14.Svínhagi L7 og L8A. Deiliskipulag.

Málsnúmer 2605042Vakta málsnúmer

Lóðarhafar leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðir sínar. Lóðirnar eru samliggjandi, samtals 12,6 ha að stærð, en afmörkun deiliskipulagsins nær til um 10,5 ha svæðis innan þeirra. Svæðið er skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði skv. aðalskipulagsbreytingu sem auglýst hefur verið samhliða. Gert er ráð fyrir gistingu fyrir allt að 100 gesti í allt að 50 gistihúsum, auk þjónustuhúss sem einnig er hugsað fyrir starfsmannaaðstöðu/íbúðir, verslun og sölu einfaldra veitinga. Einnig er heimilt er að gera baðlaug og aðra afþreyingu fyrir gesti. Heildarbyggingarmagn beggja lóða skal ekki fara yfir 2.000 m². Tillaga var auglýst frá og með 28.5.2026 til og með 15.7.2026. Umsagnir má skoða undir máli nr. 676/2026 í skipulagsgátt. Umsagnir bárust frá alls 7 aðilum. Athugasemdir bárust frá nærliggjandi lóðareigendum norðan Selsundslækjar. Lögð er fram samantekt á athugasemdum og ábendingum og drög að viðbrögðum við þeim ásamt uppfærðum skipulagsgögnum.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að bregðast við fram komnum athugasemdum í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Ásgeir Jónsson vék af fundi

15.Landmannahellir. Breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2007003Vakta málsnúmer

Umhverfisstofnun, nú Náttúruverndarstofnun, óskaði á árinu 2020, eftir að gildandi deiliskipulag fyrir Landmannahelli verði endurskoðað í samráði við og með aðkomu sveitarfélagsins. Um er að ræða að gera bílastæði sem þörf er á á svæðinu ásamt því að gera áningasvæði við tjaldsvæðið með fræðslu og upplýsingaskiltum um friðlandið og gönguleiðir út frá Landmannahelli. Einnig er ráðgert að gera skipulag á tjaldsvæðinu sjálfu þar sem aðgreint verður svæði fyrir tjöld annars vegar og húsbíla og fellihýsi hinsvegar. Tillaga var auglýst frá og með 26.6.2026 til og með 12.8.2026. Umsagnir bárust frá alls 5 aðilum en ekki var um neinar athugasemdir að ræða. Allar umsagnir má skoða undir máli nr. 846/2026 í skipulagsgátt.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

16.Snjallsteinshöfði 1C ofl. Deiliskipulag

Málsnúmer 1905006Vakta málsnúmer

Landeigendur þriggja spildna úr landi Snjallsteinshöfða, Ásholt, Ytrivöllur og Stekkatún, hafa lagt fram deiliskipulag af svæðum sínum. Gert verði ráð fyrir þremur byggingareitum á hverri lóð fyrir íbúðarhús, geymslu og gestahúsum. Eftir fyrri auglýsingar á árinu 2022 voru lögð fram leiðrétt og uppfærð gögn. Þau eru hér lögð fram til umfjöllunar að nýju þar sem ekki náðist að birta auglýsingu í B-deild innan þeirra tímamarka sem gilda skv. skipulagsreglugerð.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um endurauglýsingu er að ræða.

17.Hella. Miðbæjarskipulag

Málsnúmer 2608034Vakta málsnúmer

Farið yfir áherslur í skipulagi miðbæjarins á Hellu.
Skipulags- og umferðarnefnd telur mikilvægt að vinnu við heildstætt miðbæjarskipulag á Hellu verði komið áfram í skýran farveg og að byggt verði á þeirri vinnu og þekkingu sem þegar liggur fyrir.
Nefndin telur jafnframt rétt að endurskoða afmörkun þess svæðis sem miðbæjarskipulagsvinnan tekur til, þannig að horft verði heildstætt til þróunar miðbæjarins, aðliggjandi lóða, tenginga milli svæða og framtíðaruppbyggingar. Við þá skoðun verði sérstaklega horft til þess hvort Rangárflatir 2, Rangárbakkar og önnur aðliggjandi svæði eigi að falla innan athugunarsvæðisins.
Nefndin leggur til að stýrihópur um miðbæjarskipulag á Hellu verði endurskipaður og honum falið að leiða áframhaldandi stefnumótun verkefnisins í samstarfi við skipulagsfulltrúa og eftir atvikum aðra ráðgjafa.
Stýrihópnum verði falið að fara yfir fyrirliggjandi gögn og fyrri hugmyndavinnu, leggja mat á afmörkun verkefnisins og setja fram tillögu að markmiðum, áherslum, næstu skrefum og tímaáætlun fyrir áframhaldandi skipulagsvinnu.
Niðurstaða stýrihópsins verði lögð fyrir skipulagsnefnd til frekari ákvörðunar áður en farið verður í næsta formlega áfanga skipulagsvinnunnar.

18.Svínhagi 2. Deiliskipulag.

Málsnúmer 2601059Vakta málsnúmer

Eigandi lóðarinnar Svínhagi 2 leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Markmiðið er að skapa hágæða gistiaðstöðu sem styður við ferðaþjónustu á svæðinu auk þess að flytja lögheimili á lóðina. Eftir auglýsingu tillögunnar bárust ábendingar frá Skipulagsstofnun sem þarfnast viðbragða. Lögð er fram uppfærð tillaga frá Landmótun.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir athugasemdir HMS og uppfærð skipulagsgögn. Nefndin telur að ekki hafi verið brugðist að fullu við öllum athugasemdum. Nefndin leggur til að byggingarreitur B verði færður þannig að 50 m fjarlægð frá Selsundslæk sé virt og sé í samræmi við skipulagsreglugerð nr. 90/2013, grein 5.3.2.14. Varðandi byggingarreit A gerir nefndin engar athugasemdir við að undanþága verði veitt til viðbyggingar eða aukabygginga sem þurfi þá að vera staðsettar fjær læknum.

19.Hrafntinnusker. Framkvæmdaleyfi til lagfæringar á vegslóða

Málsnúmer 2608038Vakta málsnúmer

Ferðafélag Íslands sækir hér með um framkvæmdaleyfi til þess að gera lagfæringar á þjónustuveginum sem liggur að skála Ferðafélags Íslands í Hrafntinnuskeri. Framkvæmdin er minni háttar og felst í hliðrun vegslóðans á einum stað þar sem leiðin liggur yfir djúpt og þröngt gil.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði framkvæmdaleyfi til lagfæringar á umræddum slóða að Hrafntinnuskeri í samræmi við fram lögð gögn. Skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út leyfið og hafa eftirlit með framkvæmdunum.

Fundi slitið - kl. 11:15.