1.Melalda 6. Stofnun lóðar
Málsnúmer 2608054Vakta málsnúmer
Lyngalda 5, L235512 breytir um afmörkun, stærð og staðfang. Lyngalda 5, L235512 er með skráða stærð 810 m² í fasteignaskrá HMS. Lóðin fær staðfangið Melalda 6 og stækkar um 1444,5 m² og verður 2254,5 m² að stærð. Mismunurinn kemur úr landi Gaddstaða, L164482 sem er ekki með skráða stærð en minnkar um það sem því nemur. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur dags. 24.8.2026.
Sveitarstjórn staðfesti afmörkun Melöldu 6 á síðasta fundi. Lagt fram til kynningar.
2.Meiri-Tunga 2. Landskipti. Ragnarslundur og Ragnarslundur 2.
Málsnúmer 2604073Vakta málsnúmer
Leiðrétting á stærðum frá síðustu afgreiðslu nefndarinnar:
Stofna á tvær lóðir úr jörðinni Meiri-Tungu 2, L165130.
Meiri-Tunga 2, L165130, er með skráða stærð 99,1 ha skv. fasteignaskrá HMS. Ný lóð, Ragnarslundur, verður 36063,4 m² að stærð. Ný lóð, Ragnarslundur 2, verður 10000,0 m² að stærð. Meiri-Tunga 2, minnkar um það sem nemur nýjum lóðum og verður 94,5 ha að stærð. Matshluti sem færist af Meiri-Tungu 2 yfir á Ragnarslund er 05 Hlaða
Kvöð er á Ragnarslundi um aðkomu að Ragnarslundi 2. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur dags. 24.8.2026.

Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
3.Austvaðsholt 2. Landskipti. Austvaðsholt 3 og Fjörholt.
Málsnúmer 2608056Vakta málsnúmer
Landeigendur óska eftir að fá að skipta út tveimur lóðum úr jörð sinni. Annars vegar lóð sem fengi heitið Austvaðsholt 3, stærð 25.500 m² og Lxxxxxx og hins vegar Fjörholt, stærð 54.700 m² og Lxxxxxx. Um áframhaldandi landbúnaðarnotkun verður að ræða. Merkjalýsing frá Kára Gunnarssyni dags. 24.8.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
4.Skýjaborgir. Landskipti. Skýjaborgir 1, 2, 3 og 4.
Málsnúmer 2608057Vakta málsnúmer
Eigendur Skýjaborga óska eftir að fá að skipta úr landi sínu, fjórum lóðum. Lóð sem fengi heitið Skýjaborgir 1, stærð 21.941,2 m² og Lxxxxxx, Skýjaborgir 2, stærð 21.630,7 m² og Lxxxxxx, Skýjaborgir 3, stærð 21.518,5 m² og Lxxxxxx og Skýjaborgir 4, stærð 21.439,5 m² og Lxxxxxx. Skýjaborgir L220350 yrði 78.722,5 m². Ekki er gert ráð fyrir breytingu á landnotkun. Merkjalýsing er frá Kristjönu Ólöfu Valgeirsdóttur dags. 11.8.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
5.Bakkakot, Landskipti, Vegsvæði
Málsnúmer 2609001Vakta málsnúmer
Vegagerðin, fyrir hönd eigenda að Bakkakoti L164473, óskar eftir að fá að skipta út 34.392 m² spildu undir vegsvæði Landeyjavegar skv. uppdrætti frá Vegagerðinni dags. 23.3.2026 . Ný spilda fengi landeignanúmerið LXXXXXX og heitið Bakkakot vegsvæði. Merkjalýsing frá Elínu Fjólu Þórarinsdóttur dags. 9.9.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
6.Stekkhólar. Landskipti og staðfesting á afmörkun
Málsnúmer 2609004Vakta málsnúmer
Afmörkun og hnitsetning útmarka landeignar og einnig Kvista L165240 sem er lóð innan landeignar Stekkhóla í eigu sömu landeigenda. Þá er einni nýrri spildu hér skipt frá landi Stekkhóla. Spildan fengi heitið Stekkhólar 2, stærðina 82.965,4 m² og Lxxxxxx. Eftir landskiptin mun Mhl02 0101 Hesthús færast af Stekkhólum yfir á nýja lóð Stekkhólar 2. Merkjalýsing frá Kristjönu Ólöfu Valgeirsdóttur dags. 23.7.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
7.Hagi 2, L165087. Landskipti
Málsnúmer 2609018Vakta málsnúmer
Eigandi Haga 2, L165087, óskar eftir að fá að skipta þremur lóðum úr jörð sinni. Fyrsta lóðin yrði 10101,9 m² að stærð, fengi heitið Hagi 2A og Lxxxxxx, önnur lóðin yrði 10127,6 m² að stærð, fengi heitið Hagi 2D og Lxxxxxx og þrijða lóðin yrði 10102,0 m² að stærð, fengi heitið Hagi 2E og Lxxxxxx. Hagi 2 L165087 verður um 64,1 ha eftir skiptin. Landnotkun verður í samræmi við upprunaland, landbúnaður. Aðkoma að lóðunum er um sama veg og að lóðinni Hagi 2C sem áður hefur verið stofnuð. Merkjalýsing er frá Kristjönu Ólöfu Valgeirsdóttur dags. 18.8.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Vegna stærða lóðanna þarf að skilgreina landnotkun eftir nýtingu lóðanna með vísan til kafla 2.3.1. í greinargerð aðalskipulags Rangárþings ytra 2016-2028.
Gunnar Aron vék af fundi við meðferð og afgreiðslu málsins.
8.Sigalda, Vatnsveita fyrir vinnubúðir. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis
Málsnúmer 2609009Vakta málsnúmer
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Landsvirkjunar um starfsleyfi fyrir vatnsveitu fyrir vinnubúðir í Sigöldu í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 08.09.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir beiðni Heilbigðiseftirlits Suðurlands og gerir engar athugasemdir við útgáfu starfsleyfis fyrir vatnsveitu þar sem staðsetning á borholu er í samræmi við gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.
Gunnar Aron kom aftur á fundinn
9.Rangárbakki 8A, 8B og 8C. Sameining í eina lóð
Málsnúmer 2609024Vakta málsnúmer
Haukur Óskarsson fyrir hönd Húsvakurs ehf, lóðarhafa Rangárbakka 8A, 8B og 8C, óskar eftir að fá að sameina lóðirnar í eina lóð. Áform eru uppi um frekari uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu og það myndi einfalda verulega allt skipulag ef staðsetning bygginga yrði ekki lengur háð afmörkun lóða innbyrðis.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við að lóðirnar verði sameinaðar í eina lóð undir heitinu Rangárbakki 8 og leggur til við sveitarstjórn að það verði samþykkt. Samhliða verði afmörkuð og staðfest lóðin undir núverandi hreinsivirki sveitarfélagsins sem staðsett er á svæðinu. Lagt er til að lóðin Rangárbakki 8 verði afmörkuð að nýju að teknu tilliti til að aðgengi almennings meðfram ánni verði tryggt.
10.Bjálmholt breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 2608060Vakta málsnúmer
Landeigandi óskar eftir heimild til að leggja fram tillögu að breytingum á gildandi deiliskipulagi fyrir Bjálmholt, sem samþykkt var í sveitarstjórn í janúar 2026. Gert verði ráð fyrir aukningu byggingarmagns úr 1500 m² í 2000 m² á hvorum byggingareit, mænishæð verði leiðrétt í samræmi við aðstæður í nærumhverfi og afmörkun byggigareita breytt innbyrðis. Skipulagsgögn frá HAX arkitektúr dags. 25.8.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytinga á deiliskipulagi og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að málsmeðferð verði eins og um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin metur það svo að óþarfi sé að grenndarkynna breytinguna þar sem hún hefur óveruleg áhrif á aðra en umsækjanda og sveitarfélagið.
11.Svínhagi Ás 8. Deiliskipulag
Málsnúmer 2609022Vakta málsnúmer
Landeigandi óskar eftir heimild til að leggja fram deiliskipulag fyrir lóð sína, Svínhaga Ás 8, þar sem gert er ráð fyrir að fara í byggingu á íbúðarhúsi. Innan byggingarreits verði heimilt að byggja 2 allt að 200m2 2ja hæða íbúðarhús, 2 allt að 150m2 2ja hæða frístunda-/gestahús auk annarra bygginga, m.a. til landbúnaðarnota. Hámarks heildar byggingarmagn er 2100m2. Gert er ráð fyrir að fjarlægja núverandi 26m2 gestahús.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
12.Hagi lóð L192681. Deiliskipulag.
Málsnúmer 2512034Vakta málsnúmer
Úlfar Ísfeld Rögnvaldsson fyrir hönd Lake Cabin ehf hefur fengið heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Gert verði ráð fyrir byggingu íbúðarhúss og gestahúsum til útleigu. Lögð er fram tillaga frá Pétri Jónssyni dags. 19.8.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
13.Oddspartur, breyting á deiliskipulagi.
Málsnúmer 2603094Vakta málsnúmer
Eigendur Oddsparts óska eftir heimild til að leggja fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi dags. 19.9.2025. Um er að ræða breytingar á legu vegar innan svæðis, aukning á fjölda bygginga og tilfærsla á byggingarreit. Tillagan var auglýstfrá og með 16.7.2026 til og með 2.9.2026. Umsagnir bárust frá alls 6 aðilum og má skoða allar umsagnir undir máli nr. 454/2026 í skipulagsgáttinni. Engar athugasemdir voru gerðar.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
14.Ægissíða 3 lóð 3. Deiliskipulag
Málsnúmer 2605026Vakta málsnúmer
Landeigandi hefur lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir land sitt, Ægissíðu 3 lóð 3. Gert verði ráð fyrir byggingu þriggja íbúðarhúsa, fimm gestahúsa, geymslu og skemmu. Tillagan var auglýst frá og með 28.5.2026 til og með 15.7.2026. Engar athugasemdir bárust frá umsagnaraðilum en athugasemd barst frá Skipulagsstofnun varðandi nýtingarhlutfall og samræmi við aðalskipulag. Lögð er fram uppfærð tillaga frá Eflu dags. 14.9.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
15.Bláholt. Breyting á deiliskipulagi.
Málsnúmer 2609011Vakta málsnúmer
Landeigandi óskar eftir að gera breytingar á gildandi deiliskipulagi dags. 11.6.2025. Helstu breytingar á deiliskipulagsinu eru eftirfarandi:
1. Byggingareitur B4 stækkar og færist fjær lóðarmörkum um 20m.
2. Byggingareitur B2 stækkar til suðurs um 40m.
3. Breyting á lið 6 í byggingarskilmálum.
Að auki verður heimilt að byggja samtals 200m²
gestahús á einni hæð. Hæð gestahúsa má vera allt að 6m í mæni, mælt frá gólfplötu.
Gera skal ráð fyrir minnst tveimur bílastæðum við gestahús.
Tillaga frá Larsen dags. 7.9.2026.
1. Byggingareitur B4 stækkar og færist fjær lóðarmörkum um 20m.
2. Byggingareitur B2 stækkar til suðurs um 40m.
3. Breyting á lið 6 í byggingarskilmálum.
Að auki verður heimilt að byggja samtals 200m²
gestahús á einni hæð. Hæð gestahúsa má vera allt að 6m í mæni, mælt frá gólfplötu.
Gera skal ráð fyrir minnst tveimur bílastæðum við gestahús.
Tillaga frá Larsen dags. 7.9.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytinga á deiliskipulagi og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að málsmeðferð verði eins og um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin metur það svo að óþarfi sé að grenndarkynna breytinguna þar sem hún hefur óveruleg áhrif á aðra en umsækjanda og sveitarfélagið.
16.Ægissíða 2, Rangárstígur, breyting á deiliskipulagi.
Málsnúmer 2606069Vakta málsnúmer
Landeigendur óska eftir heimild til breytinga á gildandi deiliskipulagi, dags. 27.11.2017. Lóð Rangárstígs 9 stækkar um 6374 m2 og er ný mæld stærð lóðar 12.143 m2. Skipulagssvæðið er stækkað sem um nemur lóð Rangárstígs 9 og er ný stærð svæðis 2,5 ha. Byggingarreitur er stækkaður til austurs og norðurs. Árbakki er aðlagaður í samræmi við fjarkönnunargögn. Hnitkrossum er bætt við á uppdrátt. Að undanskildum þeim breytingum sem fjallað er um hér gilda ákvæði í gildandi skipulagi.
Tillagan var auglýst frá og með 15.7.20026 til og með 2.9.2026. Umsagnir bárust frá alls 8 aðilum og má nálgast allar umsagnir undir máli nr. 886/2026 í skipulagsgátt. Engar athugasemdir voru gerðar við tillöguna á auglýsingatíma.
Tillagan var auglýst frá og með 15.7.20026 til og með 2.9.2026. Umsagnir bárust frá alls 8 aðilum og má nálgast allar umsagnir undir máli nr. 886/2026 í skipulagsgátt. Engar athugasemdir voru gerðar við tillöguna á auglýsingatíma.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
17.Höfuðból 203. Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 2608048Vakta málsnúmer
Eigendur lóða nr. 201 og 203 í Höfuðbóli óska eftir að gerð verði breyting á gildandi deiliskipulagi vegna aðkomu að lóð 203 (Landeignarnúmer 231999) skv. meðfylgjandi tillögu frá Pálu Minný Ríkharðsdóttur dags. 19.8.2026.. Fyrir liggur þinglýst kvöð með samþykki landeiganda að H201 (Landeignarnúmer 231997) Aroni Heimissyni 081094-2099.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að málsmeðferð verði eins og um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin metur það svo að óþarfi sé að grenndarkynna breytinguna þar sem hún hefur óveruleg áhrif á aðra en umsækjendur og sveitarfélagið.
Næsti fundur, sem átti að vera 1. október verður færður til 7. október 2026.
Fundi slitið - kl. 10:00.