7. fundur 07. október 2026 kl. 08:30 - 10:45 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Gunnar Aron Ólason formaður
  • Erla Sigríður Sigurðardóttir aðalmaður
  • Eggert Valur Guðmundsson varamaður
  • Þröstur Sigurðsson aðalmaður
  • Sævar Jónsson varamaður
Starfsmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson Skipulagsfulltrúi

1.Rangárflatir 4 og 6. Sameining lóða.

Málsnúmer 2609027Vakta málsnúmer

Lóðarhafi Rangárflata 4 og Rangárflata 6 óskar eftir að fá að sameina lóðirnar í eina lóð. Lóðin héldi heitinu Rangárflatir 4 og verði 49.764,8 m² að stærð. Áform eru uppi um frekari uppbyggingu í tengslum við rekstur hótelsins á svæðinu.
Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir upplýsingum frá lóðarhafa um hvenær fyrirhugað sé að hefja framkvæmdir á vesturhluta Rangárflata 4, þar sem áður var gert ráð fyrir uppbyggingu gistihúsa sbr. bókun Byggðarráðs frá janúar 2020. Lóðarhafa verði gert að leggja fram framkvæmdaáætlun um uppbyggingu fyrir næsta fund skipulags- og umferðarnefndar 22. október nk.

2.Lýtingsstaðir land 2, Landskipti, Holtagrjót.

Málsnúmer 2609040Vakta málsnúmer

Landeigandi Lýtingsstaða lands 2 óskar eftir að fá að skipta úr landi sínu, lóð sem fengi heitið Holtagrjót, yrði 13,0 ha að stærð og Lxxxxxx. Um landbúnaðarnotkun yrði að ræða. Merkjalýsing er frá Hugrúnu Hörpu Björnsdóttur, dags. 21.9.2026.
Skipulags- og umferðarmefnd gerir ekki athugasemdir við landskiptin né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

3.Byggingar reistar á hamfarasvæðum.

Málsnúmer 2509036Vakta málsnúmer

Bréf sent 10. september 2025 um áhrif 16. gr. laga nr. 55/1992 ef byggingar eru reistar á svæðum sem fyrir fram er vitað að eru sérlega næm fyrir náttúruhamförum sem eru bótaskyldar hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Endursent vegna nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga.
Skipulags- og umferðarnefnd áréttar fyrri bókun sína um mikilvægi þess að náttúruvá, sérstaklega flóðahætta, sé skilgreind með skýrum hætti í skipulagsáætlunum sveitarfélagsins. Nefndin leggur til að málið verði tekið sérstaklega til skoðunar við endurskoðun aðalskipulags Rangárþings ytra og felur skipulagsfulltrúa að afla nauðsynlegra gagna og samráðs vegna þeirrar vinnu.

4.Hellarnir við Hellu. Breyting á deiliskipulagi.

Málsnúmer 2606068Vakta málsnúmer

Breyting á deiliskipulagi. Afmarka á tvær nýjar lóðir; annars vegar lóð fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi og hins vegar lóð fyrir geymslusvæði sem tengist atvinnustarfsemi á svæðinu. Tillagan var auglýst frá og með 15.7.2026 til og með 2.9.2026. Umsagnir bárust frá alls 6 aðilum og má skoða allar umsagnir undir máli nr. 888/2026 í skipulagsgátt. Athugasemd barst frá Vegagerðinni þess efnis að betra sé að tengjast við Þykkvabæjarveginn þar sem tengingar við Suðurlandsveginn eru orðnar of margar og þéttar á þessu svæði.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir framkomnar umsagnir og tekur undir áhyggjur Vegagerðarinnar af fjölda og þéttleika tenginga við Suðurlandsveg á þessu svæði.

Nefndin samþykkir framlagða breytingu á deiliskipulagi með þeirri breytingu að vestari tengingin við Suðurlandsveg verði aðalaðkoma að svæðinu og heimili innakstur hvort sem komið er úr austri eða vestri. Eystri tengingin verði takmörkuð þannig að einungis verði heimilt að aka út af svæðinu til austurs. Gert verði ráð fyrir miðdeili eða sambærilegri umferðaröryggislausn á Suðurlandsvegi við eystri tenginguna, í samráði við og að fengnu samþykki Vegagerðarinnar.

Nefndin telur jafnframt mikilvægt að unnin verði heildstæð framtíðarlausn fyrir aðkomu og umferð á svæðinu með það að markmiði að fækka og bæta tengingar við Suðurlandsveg og auka umferðaröryggi. Sú vinna verði unnin í góðu samráði við Vegagerðina, landeigendur og íbúa á svæðinu og taki meðal annars til mögulegra framtíðartenginga við Þykkvabæjarveg.

Skipulagsfulltrúa er falið að láta uppfæra skipulagsgögn í samræmi við framangreint og ganga frá tillögunni til gildistöku."

5.Leirubakki. breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2610008Vakta málsnúmer

Landeigandi óskar eftir að gerð verði breyting á deiliskipulagi dags. 29.7.2010 þar sem hluti þess verði felldur út. Um er að ræða íbúðarlóðir og tengingu þeirra við Landveg.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.
Nefndin leggur því til að farið verði um málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en tillagan skuli jafnframt grenndarkynnt öðrum hagsmunaaðilum á svæðinu.

6.Eystra-Fjallaland. Deiliskipulag.

Málsnúmer 2604079Vakta málsnúmer

Eigandi Leirubakka 2 óskar eftir að fá að leggja fram tillögu að deiliskipulagi. Deiliskipulagið nær yfir 49.260 m2 svæði í landi Leirubakka 2 en fyrirhugað er að hafa þar 52 frístundalóðir. Heimilt er að reisa frístundahús, aukahús/gestahús og geymslu á lóðunum með nýtingarhlutfallið 0,03 þ.e. 300 m2 á hverri 10.000 m2 lóð. Lögð er fram tillaga frá Eflu dags. 30.9.2026 auk samantektar á umsögnum aðila og drögum að viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt áréttar nefndin að ef flóttaleið af svæðinu og út á Landveg verði ekki tilbúin fyrir lok árs 2028 verði ekki veitt byggingarleyfi til byggingar á fleiri húsum fyrr en því er lokið.

7.Endurskoðun aðalskipulags Rang ytra 2026

Málsnúmer 2609008Vakta málsnúmer

Að loknum sveitarstjórnarkosningum metur sveitarstjórn hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið.

Skipulagsfulltrúi fer yfir áherslur sem hann telur að meta þurfi við endurskoðun aðalskipulagsins 2016-2028.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að kominn sé tími á endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins 2016-2028. Nefndin leggur til að óskað verði eftir verðtilboðum frá þremur aðilum hið minnsta sem gefa sig út fyrir slíka vinnu og niðurstaða verði lögð fram í lok ársins. Nefndin telur best ef hægt verður að vinna að endurskoðun strax á næsta ári og leggur því til að fjárhagsáætlun næsta árs taki mið af því.

8.Öldur III. Breyting í aðalskipulagi

Málsnúmer 2609023Vakta málsnúmer

Gerð er breyting á aðalskipulagi Rangárþings ytra og snýr hún að húsagerðum og fjölda íbúða/ha í íbúðarbyggð í þéttbýlinu á Hellu. Íbúðarbyggð á Hellu samanstendur nánast eingöngu af einbýlis-, parog raðhúsum en eftirspurn er eftir íbúðum í litlum fjölbýlishúsum. Gerð er breyting á skilmálum fyrir íbúðarbyggð á Hellu og fyrir íbúðarbyggðina ÍB23 Öldur. Skipulagsuppdráttur breytist ekki.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og leggur til hún verði áður kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. sömu laga. Nefndin telur nægilegt að kynning tillögunnar fari fram á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem tillagan varðar ekki hagsmunaaðila utan sveitarfélagsins.

9.Öldur III. Breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2602002Vakta málsnúmer

Farið yfir áherslur gildandi deiliskipulags og rætt hvort eigi að breyta áherslum um byggingartegundir og heimila tveggja hæða fjölbýlishús, breikka vegi milli húsa um a.m.k. 1 metra og skilgreina tengingar gatna við Helluvang Ofanbyggðaveginn. Tillagan var auglýst frá og með 29.4.2026 til og með 10.6.2026. Umsagnir bárust frá alls 7 aðilum og má skoða umsagnir undir máli nr. 508/2026, https://skipulagsgatt.is/issues/2026/508.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur áherslu á að breyting á aðalskipulagi verði auglýst samhliða.

10.Tillaga um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði

Málsnúmer 2609032Vakta málsnúmer

Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar hefur sett tillögu um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði í samráðsgátt stjórnvalda sbr. lög 48/2011. Erindi vísað frá Byggðaráði 23.9.2026. Slóð á samráðsgáttina en þar má nálgast frekari gögn og upplýsingar: https://island.is/samradsgatt/mal/4309
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir tillögu verkefnisstjórnar 6. áfanga rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk og afmörkun verndarsvæða.
Nefndin bendir á að Bjallavirkjun/Sköflungur og Tungnaárlón eru þegar skilgreind í verndarflokki í Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 og telur fyrirliggjandi tillögu um áframhaldandi flokkun þeirra því samræmast gildandi stefnu sveitarfélagsins.

Nefndin gerir ekki athugasemd við tillöguna að því er varðar Tungnaársvæðið og leggur til, með þeim fyrirvara að endanleg afmörkun verndarsvæðisins verði tekin inn í vinnu við skipulagsgögn sveitarfélagsins, við endurskoðun aðalskipulags Rangárþings ytra.

11.Krikakot - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Málsnúmer 2508027Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsókn Íslandsturna ehf um uppsetningu á fjarskiptamastri á lóðinni Krikakot úr landi Köldukinnar í samræmi við aðaluppdrætti frá Bjarka Guðmundssyni dags. 28.7.2025. Málið hefur tvisvar verið grenndarkynnt nærliggjandi lóðarhöfum. Athugasemdir bárust í bæði skiptin frá nærliggjandi eiganda lands þar sem gerðar voru athugasemdir við áformaða staðsetningu.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur fjallað um fram komnar umsagnir og athugasemdir og metið áherslur varðandi staðsetningu fjarskiptamasturs á svæðinu. Nefndin telur að sú tillaga að staðsetningu sem lögð er fram á síðari stigum sé skásti kosturinn til að auka við fjarskiptaskilyrði á svæðinu og leggur því til að umsókn umsækjanda verði samþykkt.

12.Íþrótta- og útivistasvæði á Hellu. Deiliskipulag

Málsnúmer 2508043Vakta málsnúmer

Landhönnun er að vinna að skipulagsmálum á efri hluta skóla- og íþróttasvæðisins á Hellu. Lagt er fram deiliskipulag að uppbyggingu svæðisins.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að bætt verði í tillöguna að gert verði ráð fyrir í framtíðinni að reist verði fjölnota íþróttahöll norðan frjálsíþróttavallar og að gert verði ráð fyrir slíku á uppdrætti. Gert verði ráð fyrir aðkomu, bílastæðum og stærð.

13.Hverfisskipulag

Málsnúmer 2311053Vakta málsnúmer

Kynnt hefur verið lýsing skipulagsáforma vegna vinnu við hverfisskipulag fyrir elsta bæjarhluta Hellu. Um er að ræða svæði sem afmarkast af Leikskálum til suðurs, Ytri-Rangá til vesturs, lóðum við Ártún og Nestún til norðurs og lóðum við Hólavang til austurs. Hverfisskipulagið nær til elsta bæjarhluta Hellu en innan skipulagssvæðisins eru um 42 lóðir og eru flestar þeirra nú þegar byggðar. Lögð er fram tillaga og greinargerð ásamt húsakönnun.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir áherslur skipulagsins. Nefndin leggur til að ráðgjafi verði kallaður til á sérstakan vinnufund um áherslur svæðisins.

14.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 4

Málsnúmer 2606009FVakta málsnúmer

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 4 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

15.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 5

Málsnúmer 2607001FVakta málsnúmer

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 5 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

16.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 6

Málsnúmer 2607005FVakta málsnúmer

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 6 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

17.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 7

Málsnúmer 2608001FVakta málsnúmer

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 7 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

18.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 8

Málsnúmer 2608006FVakta málsnúmer

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 8 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

19.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 9

Málsnúmer 2608008FVakta málsnúmer

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 9 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

20.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 10

Málsnúmer 2609004FVakta málsnúmer

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 10 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:45.