244. fundur 21. mars 2025 kl. 08:15 - 09:45 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Eggert Valur Guðmundsson aðalmaður
  • Nanna Jónsdóttir aðalmaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
Starfsmenn
  • Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
  • Einar Bárðarson
  • Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Nanna og Anton Kári sátu fundinn í fjarfundi.

1.Deiliskipulag á Strönd

Málsnúmer 2409058Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að endurskoðaðu deiliskiplagi fyrir Strönd. Framkvæmdastjóri fór yfir helstu atriði breytinga á deiliskipulaginu.

Stjórn samþykkir drögin og ákveður að málið fari í formlegan skipulagsferil.

Samþykkt samhljóða.

2.Sorpbrennslustöð - Sorporka ehf.

Málsnúmer 2312018Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu máls varðandi áform Sorporku ehf um brennslustöð á Strönd. Lagt til að framlengja viljayfirlýsingu Sorpstöðvar Rangárvallasýslu við Sorporku ehf til 1. september 2025. Jafnframt kallar stjórn eftir því að Sorporka leggi fram frekari gögn og drög að samningum um verkefnið.

Samþykkt samhljóða.

3.Samþykktir Sorpstöð Rang. - Endurskoðun

Málsnúmer 2402056Vakta málsnúmer

Lagðar fram tillögur og hugmyndir Steinunnar Erlu Kolbeinsdóttur frá Lögmönnum Suðurlandi um breytingar á samþykktum SOR.

Stjórn leggur til að vísa málinu til næsta stjórnarfundar til afgreiðslu þar sem Steinunn Erla yrði fengin á fundinn.

Samþykkt samhljóða.

4.Starfslýsingar Sorpstöð Rang. - Endurskoðun

Málsnúmer 2502029Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að skipuriti SOR og fleiri upplýsingar sem tengist starfssemi SOR frá Rögn Ráðgjöf.

Stjórn felur formanni að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.
Framkvæmdastjóri vék af fundi undir þessum lið.

5.Framkvæmdastjóri 2025 Sorpstöð Rang.

Málsnúmer 2502028Vakta málsnúmer

Lagðar fram upplýsingar um umsækjendur um starf framkvæmdastjóra SOR. Framlengdur umsóknarfrestur rann út þann 19. mars s.l. og sóttu 10 um starfið.

Stjórn felur formanni að vinna úr umsóknum með ráðningarstofunni, taka viðtöl og leggja fram tillögu að nýjum framkvæmdastjóra.

Formanni falið að semja við fráfarandi framkvæmdastjóra um vinnu við innleiðingu nýs framkvæmdastjóra og önnur verkefni því tengdu.

Samþykkt samhljóða.

Fundi slitið - kl. 09:45.