Nanna Jónsdóttir sat fundinn í fjarfundi.
1.Verkstjóri, verkamaður, sumarstarfsmenn 2025
2504050
Framkvæmdastjóri fór yfir umsóknir sem bárust um starf verkstjóra á Strönd og störf verkamanna auk umsókna um sumarstörf.
Stjórn samþykkir að ráða Þorvald Helgason sem verkstjóra á Strönd og einnig að ráðnir verði tveir í starf verkamanna auk þriggja sumarstarfsmanna. Framkvæmdastjóra falið að ganga frá ráðningarsamningum við viðkomandi.
Önnur starfsmannamál færð í trúnaðarmálabók.
Samþykkt samhljóða.

2.Opnunartími á móttökustöðinni á Strönd
2504051
Lagðar fram upplýsingar um opnunartíma á Strönd og framkvæmdastjóri fór yfir tillögur um breytingar á opnunartíma.
Stjórn samþykkir að lokað verði á Strönd fyrir almenna sorpmóttöku á mánudögum til að mæta styttingu vinnuvikunnar og ekki verði breytingar á opnunartíma milli sumars og veturs þannig að núverandi vetraropnunartími gildi allt árið. Breytingarnar taki gildi 1. júní n.k.

3.Fyrirspurnir fulltrúa D-lista
2408013
Fyrirspurn um þróun starfsmannamála hjá Sorpstöð Rangárvallasýslu á árunum 2022-2024
Lagt fram til kynningar svar við fyrirspurn um þróun starfsmannamála 2022-2024.
4.Umhverfismat - endurskoðun
2504011
Lögð fram drög að matsáætlun vegna umhverfismats framkvæmda vegna sorporkuvers á Strönd.
Stjórn leggur til að matsáætlunin verði samþykkt og send til Skipulagsstofnunar, sbr. 21. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021.
Samþykkt samhljóða.
Stjórn leggur til að matsáætlunin verði samþykkt og send til Skipulagsstofnunar, sbr. 21. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021.
Samþykkt samhljóða.
5.Sorpbrennslustöð - Sorporka ehf.
2312018
Stjórn samþykkir drög að auglýsingu vegna þjónustusamnings til brennslu á 2500 tonnum/ári á Strönd af óendurnýtanlegum úrgangi frá heimilum, fyrirtækjum og iðnaði á starfssvæðinu með þeim fyrirvörum að skipulag, umhverfismat og starfsleyfi á Strönd verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
6.Rekstraryfirlit 2025 - SOR
2504071
Farið yfir rekstraryfirlit janúar-mars 2025.
Hulda fór yfir rekstur fyrstu þrjá mánuði ársins. Reksturinn er í samræmi við áætlanir.
Hulda fór yfir rekstur fyrstu þrjá mánuði ársins. Reksturinn er í samræmi við áætlanir.
Fundi slitið - kl. 17:40.