251. fundur 10. nóvember 2025 kl. 16:30 - 18:00 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Eggert Valur Guðmundsson aðalmaður
  • Nanna Jónsdóttir aðalmaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
Starfsmenn
  • Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
  • Hulda Karlsdóttir
  • Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
  • Víðir Reyr Þórsson
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Nanna situr fundinn í fjarfundi.

Haukur Þórðarson verðandi framkvæmdastjóri sat fundinn.

Klara Viðarsdóttir, fjármálastjóri, sat fundinn undir liðum 5-7.

1.Sorpbrennslustöð - Sorporka ehf.

Málsnúmer 2312018Vakta málsnúmer

Á fundinn mæta Stefán Guðsteinsson og Ármann Kr. Ólafsson frá Sorporku og Stefán Gíslason frá Environice til að fara yfir mögulegar útfærslur á uppröðun brennslulínu o.fl.

Jafnframt er lögð fram drög að þjónustusamningi með athugasemdum sem SOR þyrfti að skoða í tengslum við verkefnið.

Stjórn þakkar fyrir góða kynningu.

2.Umhverfismat - endurskoðun

Málsnúmer 2504011Vakta málsnúmer

Á fundinn mætir Stefán Gíslason frá Environice til að fara yfir drög að umhverfismatskýrslu vegna sorporkuvers á Strönd.

Stjórn þakkar fyrir góða kynningu og samþykkir að skýrslan verði send til Skipulagsstofnunar.

3.Ýmsar upplýsingar úr daglegum rekstri 2025

Málsnúmer 2502036Vakta málsnúmer

Víðir Reyr Þórsson framkvæmdastjóri SOR fór yfir ýmis rekstrarmál sem tengjast SOR. Verkfræðistofan Cowi er að vinna að hönnun á lokafrágangi urðunareinar á Strönd. Í framhaldi af því þarf að fara í endurskoðun á starfsleyfi á Strönd.

4.Rekstraryfirlit 2025 - SOR

Málsnúmer 2504071Vakta málsnúmer

Farið yfir rekstrar- og fjárfestingaryfirlit janúar-september 2025.

Lagt fram til kynningar.

5.Fjárhagsáætlun 2025 - Viðauki

Málsnúmer 2511073Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun 2025. Helstu breytingar skv. honum er að gert er ráð fyrir að tekjur hækki um 25,2 m.kr vegna aukins móttekins úrgangs og hærri flutningsjöfnunar. Þá hækka laun um 16,4 m.kr vegna fjölgunar stöðugilda og uppgjörs, annar rekstarkostnaður hækkar um 6,7 m. kr. og afskriftir lækka um 3,9 m. kr. Gert er ráð fyrir að fjárfesting hækki úr 43. m. kr. í 60,5 m.kr. Áhrif á rekstarniðurstöðuna er jákvæð um 6 m.kr.

Stjórn samþykkir viðaukann og vísar honum til staðfestingar aðildarsveitarfélaga.

6.Gjaldskrá 2026

Málsnúmer 2510023Vakta málsnúmer

Tillaga að gjaldskrá 2026 lögð fram. Lagt er til að sorphirðu- og sorpeyðingargjöld hækki um 3,5%. Móttökugjöld á gjaldskyldum úrgangi hækka ekki nema blandaður heimilisúrgangur hækkar um 9% vegna hækkunar á afsetningu. Þá er lagt til að óhreint landbúnaðarplast flokkist eins og blandaður úrgangur og tekið vélagjald vegna affermingar á Strönd.

Stjórn samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá og vísar henni til afgreiðslu aðildarsveitarfélaga.

7.Fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2510022Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun 2026 lögð fram. Gert er ráð fyrir að tekjurnar verði 291,8 m.kr. og gjöld fyrir utan fjármagnsliði 293 m.kr. Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 29,9 m.kr. og að fjárfestingar á árinu 2026 verði 68 m.kr.

Fjárhagsáætlun er samþykkt og vísað til staðfestingar aðildarsveitarfélaga.

8.Villikettir á Suðurlandi - styrkbeiðni

Málsnúmer 2510251Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Villiköttum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir styrk til að standa straum að kostnaði vegna veiða og umsýslu á villköttum á Strönd.

Stjórn hafnar því að taka þátt í kostnaði vegna veiða og umsýslu á villiköttum á Strönd.

Fundi slitið - kl. 18:00.