252. fundur 12. janúar 2026 kl. 08:30 - 10:45 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Eggert Valur Guðmundsson aðalmaður
  • Nanna Jónsdóttir aðalmaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
Starfsmenn
  • Hulda Karlsdóttir
  • Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
  • Haukur Þórðarson
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Í upphafi fundar þá þakkaði formaður Víði Reyr Þórssyni fyrirverandi framkvæmdastjóra fyrir góð á störf og bauð Hauk Þórðarsson nýjan framkvæmdastjóra SOR velkominn til starfa.

1.Rekstraryfirlit 2025 - SOR

2504071

Farið yfir rekstraryfirlit janúar-nóvember 2025. Reksturinn er í samræmi við viðaukaáætlun.

Lagt fram til kynningar.

2.Ýmsar upplýsingar úr daglegum rekstri 2026

2601010

Haukur Þórðarsson framkvæmdastjóri SOR fór yfir ýmis rekstrarmál sem tengjast SOR og leggur fram minnisblað.

Huga þarf að viðbrögðum við skýrslum eftirlitsaðila, m.a. vottun o.fl. vegna vigtunar. Nauðsynlegt er að breyta verklagi varðandi móttöku á dýraleifum o.fl. þar sem aðilum á starfssvæði SOR verði veittur forgangur, m.a. vegna takmarkana á starfsleyfi á Strönd. Stjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að vinna málið áfram. Vegna takmarkana á starfsleyfi SOR þá sér stjórn ekki fært að taka á móti dýraleifum frá öðrum en þeim sem eru með starfssemi á starfssvæði SOR. Framkvæmdastjóra falið að fylgja málinu eftir og tilkynna viðeigandi aðilum.

Það þarf að fara í að tryggja rekstraröryggi og aðstöðu á Strönd. Hefta þarf fok af svæðinu, bæta móttöku á spilliefnum, fara í viðgerð á pressu og bæta vinnuaðstæður í skemmu. Stjórn samþykkir að fara í viðgerðir á pressu, að komið verði upp ca. 40m2 upphitaðri geymslu inn í skemmunni á Strönd og bæta móttöku spilliefna.

Það er mat framkvæmdastjóra að endurnýja þurfi krókheysisbílinn. Þá leggur hann til að frestað verði að selja aðra gröfuna vegna verkefna sem eru nauðsynleg að fara í. Lagt er til að selja varabíl í sorphirðu og kassavagn. Huga þarf síðan að viðhaldi á sorphirðubifreiðum.

Það þarf að auglýsa eftir nýjum starfsmanni með a.m.k. með vinnuvélaréttindi. Þá þarf að auglýsa eftir þremur sumarstarfsmönnum. Stjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að auglýsa eftir starfsmönnum.

3.Beiðni um gögn vegna úrgangsþjónustu

2512096

Lagt fram erindi frá Samkeppniseftirlitinu til aðildarsveitarfélaga SOR þar sem óskað er eftir upplýsingum og gögnum frá árinu 2019 sem varði útboð sveitarfélaganna í tengslum við úrgangsþjónustu við fyrirtækin Terru umhverfisþjónustu hf og Kubbi ehf.

Þar sem Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. (SOR) hefur haft sjálft með höndum sorphirðu og úrgangsþjónustu frá 2019 fyrir sveitarfélögin þá telur stjórn SOR að ekki sé ástæða til að bregðast sérstaklega við erindi Samkeppniseftirlitsins.

Samþykkt samhljóða.

4.Auka aðalfundur SOS

2512097

Lögð fram beiðni Sorpstöðvar Suðurlands (SOS) um skipan fulltrúa SOR á aukaaðalfund SOS sem fram fer föstudaginn 16. janúar n.k. í fjarfundi. Þar verður m.a. tekin afstaða til breytinga á samþykktum SOS, samnings SOS við SASS og viðauka við fjárhagsáæltun SOS.

Stjórn samþykkir að Tómas Birgir Magnússon verði aðalmaður á aðalfundi SOS og Eggert Valur Guðmundsson til vara sem haldinn verður á fjarfundi 16. janúar. nk.

5.Botnþétting - urðun dýrahræja

2508019

Lagt fram minnisblað COWI vegna urðunargryfju á Strönd
Lagt fram til kynningar.

6.Eftirlit á Strönd 2024-2028 - Umhverfisstofnun

2508018

Lögð fram drög að eftirlitsskýrslu
Lagt fram til kynningar. Stjórn felur framkvæmdastjóra að bregðast við skýrsludrögunum.

7.Sorpbrennslustöð - Sorporka ehf.

2312018

Farið var yfir stöðu á málum varðandi erindi Sorporku ehf um brennslustöð á Strönd.

Stjórn telur vegna umfangs verkefnisins og fjölda annarra verkefna SOR ekki tímabært að taka ákvörðun í málinu að svo stöddu. Stjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að útbúa minnisblað til að meta kosti og galla við uppsetningu á brennslustöð á Strönd m.t.t hagsmuna SOR.

8.Fundargerðir Sorpstöðvar Suðurlands 2025

Stjórn samþykkir að næsti stjórnarfundur SOR verði mánudaginn 26. janúar nk. kl. 16.00.

Fundi slitið - kl. 10:45.