Nanna sat fundinn í fjarfundi.
1.Orkugerðin - Heimsókn
Málsnúmer 2601057Vakta málsnúmer
Fulltrúar Orkugerðarinnar koma á fundinn.
Á fundinn mæta Steinþór Skúlason, formaður stjórnar Orkugerðarinnar og Benedikt Benediksson, framleiðslustjóri SS og fóru yfir sameiginleg málefni.
Stjórn þakkar Steinþóri og Benedikti fyrir góðar upplýsingar.
Stjórn þakkar Steinþóri og Benedikti fyrir góðar upplýsingar.
2.Ýmsar upplýsingar úr daglegum rekstri 2026
Málsnúmer 2601010Vakta málsnúmer
Haukur Þórðarsson framkvæmdastjóri SOR fór yfir ýmis rekstrarmál SOR sem tengjast minnisblaði sem lagt var fram á síðasta stjórnarfundi.
3.Nytjagámur á Strönd
Málsnúmer 2601055Vakta málsnúmer
Rædd var hugmynd um að koma upp nytjagám á Strönd.
Stjórn SOR felur framkvæmdastjóra að skoða að koma upp nytjagám á Strönd í tilraunaskyni með vorinu.
Samþykkt samhljóða
Stjórn SOR felur framkvæmdastjóra að skoða að koma upp nytjagám á Strönd í tilraunaskyni með vorinu.
Samþykkt samhljóða
4.Auka aðalfundur SOS - breyting á samþykktum og viðauki við fjárhagsáætlun 2026.
Málsnúmer 2512097Vakta málsnúmer
Lögð fram fundargerð aukaaðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands (SOS). Þá voru lagðar fram breytingar á samþykkt SOS og viðauki við fjárhagsáætlun SOS fyrir árið 2026.
Stjórn SOR óskar eftir því við aðilarsveitarfélögin að þau taki fyrir breytingar á samþykktum SOS í tveimur umræðum og viðauka við fjárhagsásáætlun 2026.
Að öðru leyti er fundargerðin lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:00.