1.Verkefnastjóri úrgangsmála
2603053
2.Ýmsar upplýsingar úr daglegum rekstri 2026
2601010
Haukur Þórðarsson framkvæmdastjóri SOR fór yfir ýmis rekstrarmál SOR. Pappírspressa er komin úr viðgerð en kostnaður við nauðsynlegar viðgerðir varð meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þá er verið að vinna að lausnum varðandi móttöku á spilliefnum og lituðu timbri. Verið er að vinna að tiltekt á svæðinu og viðhaldi á tækjum. Geymsluaðstaðan í skemmunni á Strönd er í vinnslu og stefnt að hún verði tilbúin í vor. Samhliða er verið að greina betur kostnað við að hita upp skemmuna og þróa hugmyndir að nýs móttökuhúss. Stjórn felur framkvæmdastjóra að hefja vinnu við hönnun hússins.
3.Rekstraryfirlit 2026 - SOR
2603052
Farið yfir rekstraryfirlit janúar-febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
4.Eftirlit á Strönd 2024-2028 - Umhverfis-og orkustofnun
2508018
Lögð fram til kynningar eftirlitsskýrsla Umhverfis- og orkustofnunar vegna starfsemi Sorpstöðvar Rangárvallasýslu á Strönd og úrbótaáætlun SOR vegna skýrslunnar.
5.Fundargerðir Sorpstöðvar Suðurlands 2026
2601018
Lagðar fram til kynningar fundargerðir 342. og 343. fundar stjórnar SOS.
Fundi slitið - kl. 09:50.
Stjórn þakkar Árna fyrir góða kynningu.