Nanna Jónsdóttir sat fundinn í fjarfundi. Þá sat Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fundinn undir lið 1.
1.Ársreikningur 2025
2604042
Klara Viðarsdóttir, fjármálastjóri fór yfir ársreikning Sorpstöðvarinnar. Tekjurnar námu 311,6 m.kr. og gjöldin 284,1 m.kr. Afkoman var jákvæð eftir fjármagnsliði um 17 m.kr. Eigið fé í árslok nam 202,8 m.kr.
Ársreikningur samþykktur og áritaður af stjórn.
Ársreikningur samþykktur og áritaður af stjórn.
2.Heimasíða Sorpstöðvar Rangárvallasýslu
2604043
Lögð fram tillaga frá byggðarþróunarfulltrúa Rangárvallasýslu um gerð vefsíðu fyrir Sorpstöð Rangárvallasýslu sem myndi þjóna sem helsta upplýsingaveita fyrir íbúa og aðra notendur þjónustunnar.
Stjórn samþykkir tillöguna samhjóða og felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.
Stjórn samþykkir tillöguna samhjóða og felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.
Fundi slitið - kl. 09:00.