Fundurinn haldin á móttökustöðinni á Strönd.
1.Vettvangsferð stjórnar á Strönd
Málsnúmer 2301066Vakta málsnúmer
Stjórn fær kynningu framkvæmdastjóra á starfsemi Sorpstöðvarinnar á Strönd.
Einar Bárðarson framkvæmdastjóri fór í vettvangsferð með stjórn á móttökustöðina á Strönd og kynnti fyrir henni starfsemina þar.
2.Vinnufundur stjórnar í febrúar 2023
Málsnúmer 2301067Vakta málsnúmer
Farið yfir fyrirkomulag fyrirhugaðs vinnufundar stjórnar sem halda á í febrúar nk.
Stjórn fór yfir komandi vinnufund stjórnar sem stefnt er að því að halda í febrúar. Framkvæmdastjóra falið að senda stjórn tillögu að dagskrá.
3.Fundargerðir Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2203021Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 12:00.