30. fundur 12. júní 2024 kl. 08:15 - 10:50 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir varaoddviti
  • Eggert Valur Guðmundsson oddviti
  • Þórunn Dís Þórunnardóttir aðalmaður
  • Eydís Þ. Indriðadóttir aðalmaður
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson aðalmaður
  • Björk Grétarsdóttir aðalmaður
  • Viðar M. Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Oddviti lagði til að við dagskránna myndu bætast við eitt mál, liður 16, umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir göngustíg milli Eyjasands og Heiðvangs.

Það var samþykkt samhljóða og að aðrir fundarliðir færast til í samræmi við það.

1.Samantekt sveitarstjóra og/eða oddvita

Málsnúmer 2401007Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri fór yfir minnisblað um ýmis mál sem hafa verið unnin milli sveitarstjórnarfunda.

2.Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings ytra. Breytingar.

Málsnúmer 2404101Vakta málsnúmer

Seinni umræða
Lagðar fram breytingar á samþykkt sveitarfélagins til seinni umræðu um skipan ungmennaráðs og íbúaráðs.

Lagðar fram breytingar á skipan ungmennaráðs.
Samþykkt samhjóða.

Lagðar fram breytingar á skipan íbúaráðs.
Samþykkt með fjórum atkvæðum. (IPG, EÞI og BG sitja hjá).

3.Erindisbréf ungmennaráðs

Málsnúmer 2401060Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að endurskoðuðu erindisbréfi fyrir ungmennaráð.

IPG og JGV tóku til máls.

Samþykkt samhljóða.

4.Fundaáætlun 2024 -sveitarstjórn, byggðarráð, skipulags- og umf.nefnd

Málsnúmer 2311067Vakta málsnúmer

Sumarleyfi sveitarstjórnar.
Lögð fram tillaga um að sumarleyfi sveitarstjórnar árið 2024 verði frá 13. júní til og með 13. ágúst. Byggðarráði er veitt umboð til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða

5.Sameining sveitarfélaga

Málsnúmer 2402061Vakta málsnúmer

Erindi frá Ásahreppi.
Lagt fram erindi frá hreppsnefnd Ásahrepps þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarstjórna Rangárþings ytra og Rangárþings eystra um að hefja formlegar viðræður þessara þriggja sveitarfélaga í Rangárvallasýslu um sameiningu.

Tekið stutt fundarhlé.

IPG, BG og EÞI tóku til máls.

Lagt til að hafna erindi Ásahrepps.

Samþykkt með fimm atkvæðum. EÞI og BG greiða atkvæði á móti.

Bókun Á-lista
Þann 26 september 2021 höfnuðu íbúar Ásahrepps með miklum meirihluta sameiningu fimm sveitarfélaga á Suðurlandi. Meðfylgjandi erindi Ásahrepps nú er niðurstaða úr skoðanakönnun sem framkvæmd var samhliða forsetakosningunum þann 1 júní s.l. Þar kemur fram að meirihluti íbúa Ásahrepps eða 56% þeirra sem afstöðu tóku eru ekki hlynntir því að sveitarfélagið sameinist öðru sveitarfélagi. Það er því mat undirritaðra að það sé ekki gott veganesti inn í sameiningarviðræður þessara sveitarfélaga. Staða sveitarfélagsins Ry er sterk og mikil uppbygging í gangi og álögur á íbúa hóflegar í samanburði við sambærileg sveitarfélög. Það er skoðun undirritaðra að það sé ekkert sem þrýsti á að Ry hefji formlegar sameiningarviðræður allra sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu að svo stöddu. Sveitarfélögin þrjú í Rangárvallasýslu hafa um árabil átt í farsælu samstarfi um fjölmörg verkefni og fyrir það ber að þakka (EVG, MHG, VMÞ, ÞDÞ).

Bókun IPG:
Fyrir liggur erindi frá sveitarstjórn Ásahrepps um að hafnar verði sameiningarviðræður sveitarfélagana þriggja í Rangárvallasýslu. Í ljósi þess hve óafgerandi niðurstaða þeirra sem vilja sameinast við önnur sveitarfélög er, telur undirritaður ekki tímabært að hefja sameiningarviðræður allrar sýslunnar á þessu stigi.

Bókun EÞI og BG:
Það er skylda sveitarstjórnar að taka þátt í þeirri vinnu sem henni er falin og því ekki rétt að hafna beiðni um sameiningu. Því væri eðlilegra að gefa íbúum Rangárþings ytra færi á að taka afstöðu til málsins með því að kjósa um þennan sameiningarkost.

6.Viðhorfskönnun vegna vindorkuvers við Vaðöldu

Málsnúmer 2402035Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða viðhorfskönnunar meðal íbúa sveitarfélagsins vegna vindorkuvers í Vaðöldu. Könnunin var gerð með rafrænum hætti í kerfi sem sveitarfélagið hefur nýlega tekið í notkun og má því segja að um tilraunaverkefni hafi verið að ræða hvað það varðar. Alls svöruðu 103 íbúar könnuninni eða um 8%. Helstu niðurstöður könnunarinnar voru að flestir svarenda höfðu kynnt sér áformin og meirihluti svarenda lýsti yfir jákvæðu viðhorfi. Meirihluta fannst einnig skipta máli að hluti orkunnar yrði nýttur í heimahéraði og að ef það yrði gert yrði viðhorf þeirra jákvæðara.

Lagt fram til kynningar.

7.Drög að samningi og samþykktum v. Sæmundarstofu

Málsnúmer 2406002Vakta málsnúmer

Erindi frá Oddafélaginu.
Lagt fram erindi frá Oddafélaginu um stofnun Sæmundarstofu og lögð fram drög að skipulagsskrá fyrir Sæmundarstofu í Odda og drög að samningi milli menningar- og viðskiptaráðuneytisins við Sæmundarstofu í Odda.

Sveitarstjórn fagnar erindinu og tekur jákvætt í að koma að stofnun Sæmundarstofu og felur sveitarstjóra og oddvita að vinna málið áfram.

IPG og MHG tóku til máls.

Samþykkt samhljóða.

8.Frístundavefur

Málsnúmer 2404183Vakta málsnúmer

Samstarfssamingur vegna Suðurlífs.
Lagður fram samningur vegna "Suðurlífs" sem væri sameiginleg heimasíða fimm sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellsýslu til að upplýsa íbúa o.fl. um viðburði, frístundir, hreyfingu, útivist o.fl.

Lagt til að fresta afgreiðslu málsins til næsta fundar byggðarráðs.

IPG og EÞI tóku til máls.

Samþykkt samhljóða.

9.Endurnýjun samstarfssamnings við Íþróttafélagið Garp

Málsnúmer 2405029Vakta málsnúmer

Lagður fram endurnýjaður þjónustusamningur við Íþróttafélagið Garp.

Lagt til að samþykkja samninginn og fela sveitarstjóra að undirrita hann.

IPG og JGV tóku til máls.

Samþykkt samhljóða.

10.Endurnýjun samstarfssamnings við Golfklúbbinn Hellu

Málsnúmer 2405032Vakta málsnúmer

Lagður fram endurnýjaður þjónustusamningur við Golfklúbbinn Hellu.

Lagt til að samþykkja samninginn og fela sveitarstjóra að undirrita hann.

Samþykkt samhljóða.

11.Endurnýjun samstarfssamnings við Hestamannafélagið Geysi

Málsnúmer 2405031Vakta málsnúmer

Lagður fram endurnýjaður þjónustusamningur við Hestamannafélagið Geysi.

Lagt til að samþykkja samninginn og fela sveitarstjóra að undirrita hann.

Samþykkt samhljóða.

12.Endurnýjun samstarfssamnings við KFR

Málsnúmer 2405028Vakta málsnúmer

Lagður fram endurnýjaður þjónustusamningur við KFR.

Lagt til að samþykkja samninginn og fela sveitarstjóra að undirrita hann.

Samþykkt samhljóða.

13.Endurnýjun þjónustusamnings UMF Hekla

Málsnúmer 2405027Vakta málsnúmer

Lagður fram endurnýjaður þjónustusamningur við Ungmennafélagið Heklu.

Lagt til að samþykkja samninginn og fela sveitarstjóra að undirrita hann.

Samþykkt samhljóða.

Varðandi greiðslu að fjárhæð kr. 2.813.266 til félagsins vegna kaupa á eignarhlut UMF Heklu í íþróttavellinum á Hellu er lagt til að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun sem mætt verði með lækkun á handbæru fé.

IPG og JGV tóku til máls.

Samþykkt samhljóða.

14.Samstarfssamningur við Skotfélagið Skyttur

Málsnúmer 2405030Vakta málsnúmer

Lagður fram þjónustusamningur við Skotfélagið Skyttur.

Lagt til að samþykkja samninginn og fela sveitarstjóra að undirrita hann.

Samþykkt samhljóða.

15.Tillaga D-lista um vinnuhóp vegna dagdvalar fyrir fólk með heilabilun og tengda sjúkdóma

Málsnúmer 2406014Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga D-lista leggja til að settur verði á fót vinnuhópur um dagdvöl fyrir fólk með heilabilun og tengda sjúkdóma þar sem sitji tveir fulltrúar úr sveitarstjórn Rangárþings ytra og fulltrúi Ásahrepps. Vinnuhópurinn hafi það hlutverk að kanna til hlítar fýsileika þess að koma á fót dagdvöl í samstarfi við Hjúkrunar- og dvalarheimilið Lund sem allra fyrst. Vinnuhópurinn vinni náið með hjúkrunarforstjóra og stjórn Lundar, kalli til fulltrúa heilsugæslu, fulltrúa Skóla- og félagsþjónustu og verði í samskiptum við viðeigandi ráðuneyti. Eins verði vinnuhópnum falið að kanna rekstrarform dagdvalarúrræðis hjá öðrum sveitarfélögum.
Vinnuhópnum verði hvort tveggja falið að skoða allar leiðir til að koma upp úrræði til bráðabirgða í samstarfi við Lund á þessu ári, en eins eins að horfa til framtíðar með fullbúið úrræði og hvað þurfi til svo það geti gerst.

IPG, MHG, BG, JGV og EÞI tóku til máls.

Tekið stutt fundarhlé.

Lagt til að samþykkja tillöguna og henni verði vísað til frekari útfærslu hjá byggðarráði. Jafnframt er sveitarstjóra falið að senda erindið til Ásahrepps um aðkomu þeirra að vinnuhópnum.

Samþykkt samhljóða.

16.Göngustígur milli Eyjasands og Heiðvangs. Framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2406016Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá þjónustumiðstöð Rangárþings ytra um framkvæmdaleyfi fyrir göngustíg milli Eyjasands og Heiðvangs á Hellu.

Lagt til að samþykkja framkvæmdaleyfi fyrri stíginn með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar.

Samþykkt samhljóða.

17.2024 málasafn - Til umsagnar frá nefndasviði Alþingis

Málsnúmer 2401005Vakta málsnúmer

Umsagnarbeiðnir Atvinnuveganefndar um tillögu til þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til ársins 2030, Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldfrjálsar skólamáltíðir) og Allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis um frumvarp til laga um lögræðislög (nauðungarvistanir, yfirlögráðendur o.fl.).
Lagt fram til kynningar.

18.Byggðarráð Rangárþings ytra - 26

Málsnúmer 2404030FVakta málsnúmer

Fundargerð byggðarráðs lögð fram og staðfest.
  • Byggðarráð Rangárþings ytra - 26 Lögð fram drög að endurnýjuðum samningum milli sveitarfélagsins og Lands- og Skóga um afnot af tveim svæðum á Geldingarlæk sem hugsuð eru til að minnka beitarálag á Rangárvallarafrétti.

    Byggðarráð leggur til að sveitarfélagið verði áfram milligönguaðili að svæðin verði til afnota fyrir alla afréttarhafa Rangárvallaafréttar sem eftir því óska. Þeir sem nýta sér svæðin sjái um og beri ábyrgð á umsjón þeirra, kosti og sjái um allt viðhald á öllum girðingum og einnig um smölun þeirra. Á móti muni sveitarfélagið veita styrk á móti álögðum fjallskilagjöldum þeirra jarða sem nýta sér svæðin. Sveitarstjóra falið að undirrita samninga og tilkynna skilyrðin til afréttarhafa.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Lagt til að samþykkja afgreiðslu byggðarráðs.

    Samþykkt samhljóða.

19.Húsakynni bs - 9

Málsnúmer 2405010FVakta málsnúmer

  • Húsakynni bs - 9 Lögð fram fumdrög Arkís arkitekta um framtíðar skipulag og notkun á húsnæði Laugalands. Eftir er að fara í nánari deilihönnun en út frá fyrirliggjandi gögnum er óhætt að fara í breytingar á bókasafni og skipta því í tvær kennslustofur, vinna að opnun á milli íbúðar og kennslurýma á efri hæð gamla skóla til að nýta það rými betur fyrir skólastarfsemi. Stjórn samþykkir að fara í þessar framkvæmdir og gera það með hógværum fjárútlátum.

    Einnig er á einfaldan máta hægt að innrétta leikskólapláss í skrifstofu Ásahrepps samhliða því að koma góðri skrifstofuaðstöðu í hluta neðrihæðar skólastjórabústaðar. Þetta þarf að kostnaðargreina frekar ásamt því að skoða eigna og kostnaðarskiptingu milli Ásahrepps og Húsakynna. Stjórn leggur til að sveitarstjórar og forstöðumaður eigna og framkvæmdasviðs ásamt fjármálastjóra leggi fram tillögur um samkomulag og kostnað ásamt tímalínu.
    Samþykkt.
    Bókun fundar Lagt til samþykkja tillögu stjórnar.

    IPG tók til máls.

    Samþykkt samhljóða.

    Bókun fulltrúa D-lista:
    Fulltrúar D-lista eru hlynntir breytingum á húsnæði leik- og grunnskóla á Lauglandi til að bæta þar aðstöðu, fjölga leikskóladeildum og gera aðstöðu Laugalandsskóla betri.
    Fulltrúar D-lista telja forgangsmál að vinna að þeim endurbótum á húsnæði á Laugalandi sem fram koma í fundargerð Húsakynna, enda var lagt upp með það í upphafi. Nauðsynlegt er að lokið verði við áætlanagerð þar að lútandi, þ.m.t. viðauka við fjárhagsáætlun og gerð tímalínu.
    Á nýlegum fundi með íbúum, sem haldinn var á Laugalandi, voru lagðar fram nokkuð ítarlegar frumteikningar sem gera ráð fyrir rúmlega 1.200 fermetra viðbyggingum við húsnæðið á Laugalandi. Í máli oddvita kom fram í framhaldi af fyrirspurn að vænta mætti þess að uppbyggingu yrði lokið á 6 árum. Þetta kemur fulltrúum D-lista í opna skjöldu enda hefur engin efnisleg umræða farið fram í sveitarstjórn þar sem lögð eru fram gögn m.a. um þarfagreiningu, kosnaðarmat eða áfangaskiptingu.
    Mikill munur er á undirbúningsvinnu við uppbygginguna á Hellu eða á Lauglandi ? ekki síst varðandi upplýsingaflæði og aðkomu sveitarstjórnarmanna. Ekki liggur fyrir hvernig mörg hundruð milljóna króna framkvæmd á að rúmast innan fjárfestingaáætlana sveitarfélagsins á næstu 6 árum ofan á þá miklu uppbyggingu sem sveitarfélagið stendur nú þegar í.
    Áður en lengra er haldið með framtíðaruppbyggingu á Laugalandi, umfram þær breytingar sem gert er ráð fyrir í fundargerð Húsakynna, er nauðsynlegt að ráðist verði í alvöru þarfagreiningu og þverpólitíska vinnu. Þar eigi sæti sveitarstjórnarfulltrúar beggja framboða og Ásahrepps ásamt fagaðilum. Þannig verði hægt er að fara með faglegum hætti yfir þörfina og um leið hægt að áfangaskipta nauðsynlegum framkvæmdum þannig að þær rúmist innan fjárfestingagetu sveitarfélaganna. (IPG, EÞI, BG).

20.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 25

Málsnúmer 2405007FVakta málsnúmer

  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 25 Farið yfir ýmis mál sem tengjast umferðaröryggismálum og þar með talið fjölda gagnlegra ábendinga frá íbúum í sveitarfélaginu og hvað betur mætti fara. Listinn verðu afhentur ráðgjafa í umferðaröryggismálum og mun hann leggja til úrbætur, Ráðgjafinn mun fara í verkið í júní. Nefndin leggur einnig til að staða eldri mála nefdarinnar sem tengjast umferðaröryggismálum verði fastur liður á fundum nefndarinnar hér eftir. Nefndin telur að útbúa þurfti heidaryfirlit og yfirlitskort varðandi umferðaröryggimál í þéttbýli og öðrum svæðum sem þurfa nánari skoðun vegna umferðaröryggismála. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

21.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26

Málsnúmer 2405002FVakta málsnúmer

  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að þau verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð. Nefndin leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð. Nefndin leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemd við flutning á húsinu sem slíku en telur ekki, að svo stöddu, að aðkoman að umræddri lóð sé til þess fallin að þar verði heilsársbúseta. Það þyrfti frekar að skilgreina nýja aðkomu frá Þykkvabæjarvegi og hvetur nefndin umsækjanda til að ganga frá því við nærliggjandi landeigendur áður en af skipulagsferli getur orðið. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd telur umrædda breytingu hafa mjög neikvæð áhrif á umhverfið. Nefndin telur afar óljóst hvernig brugðist verður við áhrifum af þverun árinnar, gagnvart mengun atvinnutækja á lífríki árinnar, af aukinni umferð atvinnutækja, rykmengun og fleira. Nefndin gerir einnig athugasemd við áform um að tengjast Landvegi eins og sýnt er og telur brýnt að sveitarstjórn skili inn umsögn sem taki á þessum þáttum. Nefndin bendir á að meðan á nýtingu námunnar hefur staðið undanfarin ár hefur allri umferð verið beint niður Skeiða- og Gnúpverjahrepp.


    Bókun fundar Lögð fram drög að umsögn sveitarfélagins varðandi matsáætlun fyrir vikurnám fyrir vikurnám við Búrfellshólma.

    Tekið stutt fundarhlé.

    Lagt til að samþykkja umsögnina með þeim breytingu sem lagðar eru til á fundinum og sveitarstjóra falið að skila henni til Skipulagsstofnunar.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að heimild verði veitt fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli heimilda innan aðalskipulags Rangárþings ytra þar sem gert er ráð fyrir umræddri framkvæmd.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Sveitarstjórn leggur jafnframt til að fela skipulags- og umferðarnefnd að skoða leiðir til að fylgjast betur með hvort framkvæmdaaðilar vinna innan skilmála framkvæmdaleyfis og aðalskipulags.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að heimild verði veitt fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli heimilda innan aðalskipulags Rangárþings ytra þar sem gert er ráð fyrir umræddri framkvæmd. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Í samræmi við lög nr. 111/2021 hefur Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra farið yfir umsókn framkvæmdaraðila um uppsetningu 37 skilta innan Friðlands að Fjallabaki. Niðurstaða nefndarinnar er að umrædd áform séu ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 111/2021. Því skuli framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Skipulagsnefnd leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi að teknu tilliti til 4. greinar reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Í samræmi við lög nr. 111/2021 hefur Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra farið yfir umsókn framkvæmdaraðila um gerð bílastæðis á Fjallabaksleið við upphaf gönguleiðarinnar að Grænahrygg. Niðurstaða nefndarinnar er að umrædd áform séu ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 111/2021. Því skuli framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Skipulagsnefnd leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi að teknu tilliti til 5. greinar reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Í samræmi við lög nr. 111/2021 hefur Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra farið yfir umsókn framkvæmdaraðila um lagningu ljósleiðara og rafstrengs frá Sultartanga blöðrum að vinnusvæði vindlundarins Vaðölduvers. Niðurstaða nefndarinnar er að umrædd áform séu ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 111/2021. Því skuli framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Skipulagsnefnd leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi að teknu tilliti til 5. greinar reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd fagnar framlögðu erindi um gerð ljósgæðastefnu og gerir engar athugasemdir við hugmyndina. Með þátttöku sveitarfélagsins kæmi fram vilji þess til að huga almennt að ljósgæðum íbúum og fyrirtækjum til hagsbóta. Verði hún síðan hluti af gerð aðalskipulags hefði hún sem slík, mikið gildi fyrir markaðssetningu fyrirtækja í sveitarfélaginu.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd hefur fjallað um erindi framkvæmdaaðila. Verkefnið byggir á að gera fiskiveg framhjá Tungufossi í Eystri Rangá og gera efri hluta árinnar fiskgengan og sjálfbæran.
    Skipulags- og umferðarnefnd getur ekki tekið afstöðu til veitingar framkvæmdaleyfis fyrir viðkomandi framkvæmd þar sem áherslur hafa breyst á þann veg að áður fram komnar umsagnir umsagnaraðila eins og frá Fiskistofu, Umhverfisstofnun og veiðifélagi fjalla í raun ekki um fyrirhugaða framkvæmd eins og hún er skilgreind nú. Það er mat nefndarinnar að afgreiðslu skuli frestað þar til skýrari upplýsingar framkvæmdaaðila liggja fyrir ásamt því að umsagnir berist um hina tilgreindu framkvæmd með heildaráhrif á lífríki árinnar í huga í fullu samræmi við grein 10 í leigusamningi milli aðila.
    Bókun fundar Lagt til að samþykkja afgreiðslu nefndarinnar um frestun málsins.

    IPG tók til máls.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulagsnefnd telur að gera þurfi breytingar á aðalskipulagi vegna áforma um aukna ferðaþjónustu. Núverandi lóð er á skilgreindu landbúnaðarsvæði skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028.
    Umsækjanda er veitt heimild til að leggja fram tillögu að breytingu á fyrirliggjandi deiliskipulagi fyrir lóð sína. Jafnframt er skipulagsfulltrúa falið að vinna að breytingu á gildandi aðalskipulagi til samræmis við áform umsækjanda þar sem hluta jarðarinnar verði breytt í Verslunar- og þjónustusvæði.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulagsnefnd telur að gera þurfi breytingar á aðalskipulagi vegna áforma um aukna ferðaþjónustu. Núverandi lóð er á skilgreindu landbúnaðarsvæði þótt hluti af núverandi starfsemi sé merkt sem Verslunar- og þjónustusvæði innan við 5ha. skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028.
    Umsækjanda er veitt heimild til að leggja fram tillögu að breytingu á fyrirliggjandi deiliskipulagi fyrir lóð sína. Jafnframt er skipulagsfulltrúa falið að vinna að breytingu á gildandi aðalskipulagi til samræmis við áform umsækjanda þar sem afmarkaður verði hluti jarðarinnar og breytt í Verslunar- og þjónustusvæði.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynnningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynnningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd hefur móttekið erindi nýrra eigenda og fellst á að málið verði fellt niður og ekki verði því um breytingu að ræða á greinargerð í aðalskipulagi eins og til stóð. Öllum þeim sem gerðu athugasemdir við áður fyrirhuguð áform verði send afgreiðsla nefndarinnar og þeim kynnt þessi niðurstaða. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt. Lýsing skal kynnt í samræmi við 1. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Kynning lýsingar skal standa í a.m.k. tvær vikur talið frá birtingu auglýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins og í staðarblaði, eða nánar tiltekið frá 13. - 27. júní 2024. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. en leggur til að hún verði áður kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en af fundi sveitarstjórnar verður. Nefndin telur nægilegt að kynning tillögunnar fari fram á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem tillagan varðar ekki hagsmunaaðila utan sveitarfélagsins.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd telur ekki rétt að skilgreina sérstaklega landnotkunarflokk undir fræræktun, þar sem afar erfitt er að gera greinarmun í landnotkun á fræframleiðslu, repjuolíu, byggræktun eða túna. Nefndin samþykkir tillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. en leggur til að hún verði áður kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en af fundi sveitarstjórnar verður. Nefndin telur nægilegt að kynning tillögunnar fari fram á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem tillagan varðar ekki hagsmunaaðila utan sveitarfélagsins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. en leggur til að hún verði áður kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en af fundi sveitarstjórnar verður. Nefndin telur nægilegt að kynning tillögunnar fari fram á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem tillagan varðar ekki hagsmunaaðila utan sveitarfélagsins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. en leggur til að hún verði áður kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en af fundi sveitarstjórnar verður. Nefndin telur nægilegt að kynning tillögunnar fari fram á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem tillagan varðar ekki hagsmunaaðila utan sveitarfélagsins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna og leggur til hún verði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði auglýst að nýju skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna ákvæða um tímamörk. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis og hefur engin áhrif á aðra en hlutaðeigandi og sveitarfélagið. Nefndin leggur til að sveitarstjórn samþykki tillöguna með þeim fyrirvara að nýting á nýrri tengingu, sem umsækjendur greiða fyrir sjálfir, verði heimiluð ef frekari uppbygging á sér stað ofan lóðarinnar.
    Nefndin leggur því til að farið verði um málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en tillagan skuli jafnframt grenndarkynnt öðrum lóðarhöfum á svæðinu.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar afstaða ráðuneytis liggur fyrir. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulags- og umferðarnefnd fagnar tilkomu göngustígarins og leggur til að ráðist verði í gerð skipulags fyrir hólinn í heild sinni hvað varðar göngu- og hjólastíga og meta tækifæri til frekari útivistar. Nefndin leggur þó áherslu á að framkvæmdir af þessari stærðargráðu skuli ávallt kynntar íbúum sveitarfélagsins áður en ráðist er í þær. Nefndin telur að umrædd framkvæmd sé framkvæmdaleyfisskyld og að sækja þurfi um leyfi vegna þess.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 26 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.

22.Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 10

Málsnúmer 2405001FVakta málsnúmer

Fundargerðin staðfest,

Samþykkt samhljóða.

23.Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 11

Málsnúmer 2405008FVakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

24.Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 14

Málsnúmer 2405000FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

25.Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 15

Málsnúmer 2405005FVakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

IPG og JGV tóku til máls.

26.Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 6

Málsnúmer 2403011FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

27.Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 7

Málsnúmer 2405012FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

28.Oddi bs - 24

Málsnúmer 2404029FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

29.Oddi bs - 25

Málsnúmer 2404032FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

30.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 237

Málsnúmer 2405009FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

31.Tónlistarskóli Rangæinga bs - 33

Málsnúmer 2405013FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

32.Fundargerðir 2024 - Héraðsnefnd Rangæinga

Málsnúmer 2404160Vakta málsnúmer

Fundargerð 5. fundar Héraðsnefndar frá 23. maí s.l.og ársreikningur 2023 til staðfestingar.
Ársreikningur 2023 staðfestur en fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.

Samþykkt samhljóða.

33.Stjórnarfundir Lundar 2024

Málsnúmer 2403011Vakta málsnúmer

Fundargerð 9. fundar stjórnar ásamt ársreikningum Lundar.
Lagt fram til kynningar.

34.Fundargerðir 2024 - stjórn Félags- og skólaþj. Rangárv. og V-Skaft.

Málsnúmer 2401042Vakta málsnúmer

Fundargerð 82. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.

35.Skoteldasýning á Töðugjöldum 2024

36.Sumarhópur SAMAN

Málsnúmer 2405074Vakta málsnúmer

Hvatning til samveru fjölskyldunnar.
Lagt fram til kynningar.

37.Aðalfundur Suðurlandsvegur 1-3 hf 2024

Málsnúmer 2404098Vakta málsnúmer

Fundargerð aðalfundar frá 27. maí s.l.
Lagt fram til kynningar.

38.Aðalfundur Veiðifélags Ytri-Rangár og vesturhl Hólsár 2024

Málsnúmer 2405046Vakta málsnúmer

Upplýsingar frá aðalfundi.
Lagt fram til kynningar.

39.Aðalfundur Veiðifélags Eystri-Rangár

Málsnúmer 2406007Vakta málsnúmer

Aðalfundarboð þann 14. júní n.k.
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

Fundi slitið - kl. 10:50.