1.Samantekt sveitarstjóra og eða oddvita
2401007
Sveitarstjóri fór yfir minnisblað um ýmis mál sem hafa verið unnin milli sveitarstjórnarfunda síðan í október.
2.Næstu fundir sveitarstjórnar
2403024
Næsti fundur sveitarstjórnar vegna fyrri umræðu um fjárhagsáætlun 2025-2028
Lagt er til að næsti fundur sveitarstjórnar vegna fyrri umræðu um fjárhagsáætlun 2025-2028 verði aukafundur þann 27. nóv. nk. í kjölfar byggðarráðsfundar þar sem fjallað verður um fjárhagsáætlunina. Þar sem um aukafund er að ræða verður ekki beint streymi frá fundinum.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
3.Tillaga að útsvarshlutfalli fyrir árið 2025
2411011
Tillaga er að hálfu byggðarráðs um að útsvarshlutfall fyrir árið 2025 hjá sveitarfélaginu Rangárþingi ytra verði 14,97%.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
4.Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings ytra. Endurskoðun
2409018
Fyrri umræða
Lögð fram drög að breytingum á samþykktum sveitarfélagins til fyrri umræðu.
Lagt til að vísa málinu til nánari skoðunar í byggðarráði og til seinni umræðu í sveitarstjórn.
IPG tók til máls.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að vísa málinu til nánari skoðunar í byggðarráði og til seinni umræðu í sveitarstjórn.
IPG tók til máls.
Samþykkt samhljóða.
5.Helluvað. Kauptilboð vegna íþróttavallasvæðis
2311011
Lögð er fram umsögn Skipulagsstofnunar, dags. 16. september 2024, ásamt eignarnámsheimild Innviðaráðherra, dags. 21. október 2024, á grundvelli eignarnámssamnings milli aðila sem var undirritaður þann 3. maí 2024 og samþykktur á fundi sveitarstjórnar þann 8. maí 2024. Jafnframt eru lögð fram drög að afsali fyrir spilduna ásamt uppfærðum uppdrætti og merkjalýsingu, dags. 28. október 2024,en spildan er skv. henni 12,94 ha.
Að fenginni fyrirliggjandi heimild Innviðaráðherra er sveitarstjórn heimilt með vísan til 1. mgr. 50. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að taka landsvæðið eignarnámi í samræmi við eignarnámssamning aðila frá 3. maí 2024.
Lagt er til að staðfest verði ákvörðun sveitarstjórnar skv. samningi aðila frá 3. maí 2024 um eignarnám á umræddu landsvæðið eins og það er afmarkað í uppfærðum uppdrætti og merkjalýsingu, dags. 28. október 2024. Jafnframt verði samþykkt fyrirliggjandi drög að afsali og sveitarstjóra falið að undirrita það og vísa málinu til matsnefndar eignarnámsbóta til frekari meðferðar í samræmi við samning aðila frá 3. maí 2024.

6.Aðalfundur Bergrisans bs.
2410001
Fundargerð aðalfundar Bergrisans frá 14. október.
Breytingar á samþykktum Bergrisans bs. til fyrri umræðu.
Breytingar á samþykktum Bergrisans bs. til fyrri umræðu.
Lögð fram fundargerð aðalfundar Bergrisans bs. og tillögu að breytingum á samþykktum Bergrisans bs.
Lagt til að vísa tillögu til breytinga á samþykktum Bergrisans bs. til seinni umræðu í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að vísa tillögu til breytinga á samþykktum Bergrisans bs. til seinni umræðu í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
7.Staða hönnunar á nýjum leikskóla - ósk um kynningu
2410018
Á vinnufundi byggðarráðs þann 4. nóvember s.l. fór fram kynning á hönnun nýs leikskóla á Hellu.
Lagt til að haldinn verði íbúafundur fimmtudaginn 5. desember nk. kl. 19:30 í Safnaðarheimilinu á Hellu til að kynna vinnu við hönnun leiksskólans. Fundurinn verður jafnframt sendur út í streymi.
IPG tók til máls.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að haldinn verði íbúafundur fimmtudaginn 5. desember nk. kl. 19:30 í Safnaðarheimilinu á Hellu til að kynna vinnu við hönnun leiksskólans. Fundurinn verður jafnframt sendur út í streymi.
IPG tók til máls.
Samþykkt samhljóða.
8.Íbúaráð
2403036
Skipun sveitarstjórnarfulltrúa.
Lagt til að fulltrúi sveitarstjórnar í íbúaráði verði Eggert Valur Guðmundsson og til vara Margrét Harpa Guðsteinsdóttir.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Margrét Harpa, varaoddviti, tók við stjórn fundarins.
9.Snjómokstur 2024-2027 verðkönnun
2411017
Lögð fram niðurstaða verðkönnunar í snjómokstur og minnisblað frá forstöðumanni eigna- og þjónustusviðs.
Lagt til að fela forstöðumanni eigna- og þjónustusviðs, í samráði við sveitarstjóra og Vegagerðina, að semja við aðila um snjómokstur í samræmi við niðurstöður og skilmála verðkönnunarinnar.
Samþykkt samhljóða.
Eggert Valur og Ingvar Pétur víkja sæti við meðferð og afgreiðslu málsins.

Eggert Valur, oddviti, tók aftur við stjórn fundarins.
10.2024 málasafn - Til umsagnar frá nefndasviði Alþingis
2401005
Umsagnarbeiðnir Velferðarnefnd Alþingis um tillögu til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum og frumvarps til laga um breytingu á lögum um málefni aldraða.
Lagt fram til kynningar.
11.Byggðarráð Rangárþings ytra - 31
2409012F
Fundargerð byggðarráðs lögð fram og staðfest.
-
Byggðarráð Rangárþings ytra - 31 Farið var yfir starfslýsingu verkefnisstjóra íþrótta- og fjölmenningarmála og hvernig verkefnið hefði gengið.
Byggðarráð leggur til að auglýst verði starf íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa á grundvelli starfslýsingarinnar sem myndi taka til starfa um næstu áramót og sveitarstjóra verði falið að undirbúa auglýsingu fyrir starfið. Jafnframt verði óskað eftir því að Ásahreppur taki þátt í verkefninu á sama hátt og með önnur samstarfsverkefni sveitarfélagana.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að staðfesta bókun byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 31 Lagt fram minnisblað frá Tómasi Hauki Tómassyni forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs varðandi niðurstöðu verðkönnunar í trésmíði 2. áfanga.
Lagt er til að semja við lægstbjóðanda sem er, AL bygg ehf að fjárhæð kr. 106.243.000, sem er 72,4% af kostnaðaráætlun og sveitarstjóra falið að undirita samning við viðkomandi aðila.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að afgreiðsla byggðarráðs verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 31 Lagður fram samningur milli sveitarfélagsins, forsætisráðuneytisins og Landsvirkjunar um efnisnám og fyrirkomulag greiðslna fyrir efnisnám vegna vindorkuvers við Vaðöldu (Búrfellslundur) á Þjórsársvæði innan þjóðlendna.
Byggðarráð leggur til að samningurinn verði samþykktur og sveitarstjóra falið að undirrita hann.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að afgreiðsla byggðarráðs verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 31 Lagt fram minnisblöð frá fundi sveitarfélagsins, Landsvirkjunar og Orkídeu frá 23. sept. s.l. og fundi sveitarfélagsins og Landsvirkjunar frá 15. okt. s.l. vegna málefna Grænna iðngarða á Strönd.
Byggðarráð leggur til að skipaður verði undirbúningshópur vegna vinnu við þróun Græns iðngarðs á Stönd þar sem í verði fulltrúar Orkídeu, markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings ytra, byggðarþróunarfulltrúi, sveitarstjóri og tveir fulltrúar sveitarstjórnar og stýri byggðarþróunarfulltrúi starfi hópsins.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að fulltrúar sveitarstjórnar í undirbúningshópnum verði Eggert Valur Guðmundsson og Ingvar Pétur Guðbjörnsson og til vara Margrét Harpa Guðsteinsdóttir og Björk Grétarsdóttir.
Samþykkt samhljóða.
12.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32
2410005F
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformaða breytingu á afmörkun lóðarinnar og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulags- og umferðarnefnd telur að umrædd framkvæmd hafi ekki neikvæð áhrif á umhverfi sitt og sé því ekki þess eðlis að kalli á mat á umhverfisáhrifum. Nefndin telur ekki þörf á deiliskipulagi fyrir svæðið að sinni. Nefndin gerir ekki athugasemdir við að gefið verði út framkvæmdaleyfi vegna umræddrar framkvæmdar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að útgáfa framkvæmdaleyfis vegna efnistöku á allt að 40.000 m³ á efnistökustað E70 á Tungnaáreyrum á afmörkuðu 2,4 ha svæði sbr. framlagðan uppdrátt og önnur gögn málsins verði samþykkt enda er efnistakan í samræmi við skipulagsáætlanir. Nefndin telur ekki þörf á að kalla eftir umsögnum að nýju enda felur breytingin á framkvæmdaleyfisumsókninni í sér að dregið er úr þeim framkvæmdum sem voru fyrirhugaðar. Nefndin leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út leyfið og hafa eftirlit með framkvæmdunum. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulags- og umferðarnefnd hefur leitað álits hjá lögmanni sveitarfélagsins um stöðu þess gagnvart fyrirliggjandi dómsátt, sbr. bókun nefndarinnar á fundi dags. 3. október sl. Samkvæmt álitinu er sveitarfélagið ekki bundið af dómsátt í máli eigenda Minni-Valla og Stóru-Valla enda ekki aðili að því máli. Þá er óljóst á hvaða lagagrundvelli ósk landeigenda byggist um samþykki sveitarfélagsins á þann uppdrátt sem fylgdi erindi þeirra til sveitarfélagsins.
Nefndin telur að fyrirhuguð lagning vegstæðis á landi Minni-Valla kunni að vera háð gerð deiliskipulags og eftir atvikum samþykkis Vegagerðarinnar vegna vegtengingar. Ekki liggja fyrir nákvæmar hönnunarforsendur vegstæðisins. Auk þess er óljóst hvort landeigendur Stóru-Valla áformi að framhald skuli vera á vegstæðinu í landi Stóru-Valla.
Að svo stöddu telur nefndin ekki forsendur til að sveitarfélagið veiti umbeðið samþykki sitt á uppdrátt landeigenda. Komi fram ósk frá landeigendum um heimild til handa þeim til gerðar deiliskipulags, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga, verður slík beiðni tekin til nánari afgreiðslu. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ásamt því að vera grenndarkynnt til þeirra lóðarhafa sunnan lækjarins sem nýta viðeigandi vegtengingar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til deiliskipulagsgerðar. Nefndin telur að tillagan samræmist stefnu aðalskipulagsins sbr. ÍB2 í greinargerð þess og því sé ekki þörf á kynningu lýsingar. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Margrét Harpa, varaoddviti, tók við stjórn fundarins undir þessum lið.
Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
Eggert Valur víkur sæti með meðferð og afgreiðslu málsins. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til deiliskipulagsgerðar. Nefndin telur að tillagan samræmist stefnu aðalskipulagsins sbr. ÍB33 í greinargerð þess og því sé ekki þörf á kynningu lýsingar. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulags- og umferðarnefnd hefur fjallað um umsagnir umsagnaraðila og telur að uppfærð tillaga taki mið af þeim. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulags- og umferðarnefnd hefur fjallað um umsagnir umsagnaraðila og telur að uppfærð tillaga taki mið af þeim. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun.
Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulags- og umferðarnefnd hefur fjallað um umsagnir umsagnaraðila og telur að uppfærð tillaga taki mið af þeim. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. en leggur til að hún verði áður kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en af fundi sveitarstjórnar verður. Nefndin telur nægilegt að kynning tillögunnar fari fram á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem tillagan varðar ekki hagsmunaaðila utan sveitarfélagsins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynning lýsingar skal standa í a.m.k. tvær vikur talið frá birtingu auglýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins eða nánar tiltekið frá 14. - 28. nóvember 2024. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin vill árétta að lóðarhafar í kring samnýti vegtengingar eins og kostur er en Vegagerðin þarf að samþykkja fyrirhugaða tengingu við Hagabrautina. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulags- og umferðarnefnd telur að þær breytingar sem hér um ræðir séu það umfangsmiklar að þær kalli á endurauglýsingu tillögunnar. Nefndin samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ásamt því að nærliggjandi landeigendum verði kynnt tillagan sérstaklega. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til deiliskipulagsgerðar. Nefndin telur að tillagan samræmist stefnu aðalskipulagsins og því sé ekki þörf á kynningu lýsingar. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ásamt því að vera grenndarkynnt til þeirra lóðarhafa sem samnýta viðeigandi vegtengingar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Lagt fram til kynningar
Bókun fundar Lagt fram til kynningar. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 32 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
13.Húsakynni bs - 11
2410017F
Fundargerðin lögð að öðru leyti fram til kynningar.
- 13.2 2410078 Fjárhagsáætlun Húsakynna 2025Húsakynni bs - 11 Fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 lögð fram til umræðu og samþykktar.
Gert er ráð fyrir 15 mkr. í fjárfestingu árinu vegna áframhaldandi uppbyggingar á leikskóladeildum og viðhaldi á skólahúsnæði.
Stefnt að því að sambærilegt fjármagn verði lagt til reksturs og fjárfestingu til næstu fjögurra ára.
Lagt til að gera fjárfestingar- og viðhaldsáætlun í samræmi við frumdrög húsrýmisáætlunar sem verði tilbúin fyrir vinnu fjárhagsáætlunar 2026-2029.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að fjárhagsáætlun Húsakynna bs. 2025 verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
14.Tónlistarskóli Rangæinga bs - 34
2410014F
Fundargerðin lögð að öðru leyti fram til kynningar.
-
Tónlistarskóli Rangæinga bs - 34 Lögð fram rekstraráætlun ársins 2025
Gert er ráð fyrir:
Rekstrartekjum að upphæð kr. 162.866.000.
Rekstrargjöld að upphæð kr. 162.690.000, án fjármagnsliða.
Rekstrarframlög sveitarfélaganna verði kr. 138.322.000.
Stjórn samþykkir fjárhagsáætlun og vísar til staðfestingar aðildarsveitarfélaga. Bókun fundar Lagt til að fjárhagsáætlun Tónlistarskóla Rangæinga 2025 verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
15.Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps - 8
2411004F
Fundargerðin lögð fram að öðru leyti til kynningar.
IPG, JGV og BG tóku til máls.
IPG, JGV og BG tóku til máls.
-
Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps - 8 Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun ársins 2025.
Tillaga gerir ráð fyrir að tekjur verði 140mkr og rekstrarniðurstaða verði jákvæð um 16,8mkr. Fjárfesting ársins verði 37mkr.
Ekki er gert ráð fyrir lántöku á árinu.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að fjárhagsáætlun Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps 2025 verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps - 8 Lögð fram drög að gjaldskrá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps til samþykktar. Lagt er til að hækka gjaldskrá um 3,5%
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að gjaldskrá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps 2025 verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
16.Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 17
2410011F
Fundargerðin lögð fram að öðru leyti til kynningar.
-
Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 17 Tillaga verkefnisstjóra íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa, er eftirfarandi:
Ástþór Jón Ragnheiðarsson
Eydís Hrönn Tómasdóttir
Karen Eva Sigurðardóttir
Nefndin samþykkir þessa einstaklinga og ákveðið er að taka stöðuna á starfi hópsins í apríl 2025. Bókun fundar Lagt til að tillaga nefndarinnar verði samþykkt. Óskað er eftir því að verkefnisstjóri íþrótta- og fjölmenningarmála skilgreini hlutverk stýrihópsins og leggi fram fyrir næsta byggðarráðsfund.
IPG og VMÞ tóku til máls.
Samþykkt samhljóða. -
Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 17 Einn fulltrúi og einn til vara sem valinn er árlega úr 9. eða 10. Bekk grunnskólans á Hellu og einn fulltrúi og einn til vara sem valinn er árlega úr 9. eða 10. bekk grunnskólans á Laugalandi. Nemendaráð skólana velja fulltrúa skólans.
Grunnskólinn á Hellu -
Aðalmaður er Ómar Azfar Valgerðarson Chattha, 10.b.
Varamaður Kristín Birta Daníelsdóttir, 9.b.
Laugalandsskóli
Hafrún Ísleifsdóttir úr 10.bekk.
Varamaður er: Sóldís Lilja Sveinbjörnsdóttir -
Einn fulltrúi úr Félagsmiðstöðinni Hellinum og einn til vara sem valinn er árlega.
Hellirinn: er Þorgeir Óli Eiríksson og varamaður er Hafdís Laufey Ómarsdóttir.
HÍT nefnd
Tveir fulltrúar og tveir til vara sem Heilsu, íþrótta og tómstundanefnd Rangárþings Ytra velur úr hópi þeirra sem eru ekki á grunnskólaaldri. Kjörnir eru einn og tveir aðal- og varamenn til skiptis í eitt ár og hinir í tvö ár. Nefndin skal við valið hafa að leiðarljósi að þessir fulltrúar endurspegli sem breiðastan hóp þessa aldurshóps í Rangárþingi Ytra.
Tillögur nefndarinnar eru:
Eitt ár: Ari Rafn Jóhannsson, varamaður: Paulina Smaluga
Tvö ár: Anna Ísey Engilbertsdóttir, varamaður: Bragi Valur Magnússon.
Verkefnisstjóri íþrótta- og fjölmenningarmála mun hafa samband við þau sem fyrst til að staðfesta vilja þeirra til nefndarsetu.
Bókun fundar Lagt til að tillaga nefndarinnar verði samþykkt.
IPG tók til máls.
Samþykkt samhljóða.
17.Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 10
2409011F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
18.Oddi bs - 30
2410004F
Fundargerðin lögð að öðru leyti fram til kynningar.
-
Oddi bs - 30 Lögð fram skýrsla starfshóps um þróun leikskólastarfs þar sem lagar eru fram tíu tillögur til úrbóta við þróun og styrkingu leikskólastarfs. Tillögurnar voru eftirfarandi:
1. Foreldrum yngstu barnanna verði boðnar hærri heimgreiðslur og að þær verði hækkaðar að lágmarki um helming og eins verði gerð tilraun til hlutagreiðslna.
2. Markvisst verði unnið að því að starfsfólk geti fengið fulla vinnutímastyttingu.
3. Starfstími leikskólanna verði til kl. 14.00 á föstudögum. Eftir það verði aðeins gæsla í
boði fyrir foreldra sem búa við sérstakar aðstæður, gegn skráningu. Hið sama gildi um
hátíðar, þ.e. milli jóla og nýárs og í dymbilviku.
4. Dvalartími yngstu barnanna (12-18 mánaða) verði að jafnaði miðaður við sex klst að hámarki.
Gert er ráð fyrir því að hægt verði að sækja um lengri dvalartíma gegn rökstuðningi.
5. Báðir leikskólarnir geri tilraunir til að koma til móts við starfsfólk um sveigjanlegan
vinnutíma.
6. Boðið verði upp á sveigjanlegan dvalartíma fyrir börnin.
7. Jafnræðis sé gætt varðandi bifreiðastyrki (og miðist við þá sem eru í 50% vinnu eða meira).
8. Skoðaðir verði möguleikar á að veita starfsfólki leikskólanna aukna menntunarstyrki enda
nýtast þeir beint í leikskólastarfinu.
9. Í tengslum við mótun starfsmannastefnu verði sérstaklega skoðaðir möguleikar á að gera
starfsfólki, með annað móðurmál en íslensku, kleift að sækja íslenskunámskeið á vinnutíma.
10.Starfsfólki verði gert kleift að fara til sérfræðinga (lækna, sálfræðinga eða annarra
heilbrigðisstétta) á vinnutíma eftir tilvísun án þess að laun skerðist.
Í þessum tillögum er gengið úr frá því að dvalartími barnanna sé skilgreindur annars vegar sem tími markviss uppeldisstarfs (9.00-14.00) og gæslu (8.00-9.00 og eftir kl. 14.00).
Stjórn Odda samþykkir að tillögur númer 1, 3, 4 og 6 fari í nánari vinnslu. Tillögur 8-10 verði vísað til endurskoðun á starfsmannastefnu en aðrar tillögur komi til skoðunar hjá leikskólastjórum. Samhliða tillögum sem fara í vinnslu þarf að uppfæra og breyta gjaldskrá leikskólana þannig að hún styðji betur við markmið breytingana.
Bókun fundar Lagt til að samþykkja tillögur stjórnar Odda um aðgerðir til að þróa leikskólastarf og styrkja starfsumhverfi leikskólana. Tillaga um endanlegar útfærslur á heimgreiðslum er vísað til frekari vinnslu við gerð fjárhagsáætlunar.
IPG, JGV og MHG tóku til máls.
Samþykkt samhljóða.
19.Oddi bs - 31
2410006F
Fundargerðin lögð að öðru leyti fram til kynningar.
-
Oddi bs - 31 Viðauki 2 við fjárhagsáætlun Odda bs. 2024
Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir tillögu að viðauka 2 fyrir Odda bs.
Lagður fram viðauki 2 við rekstraráætlun Odda bs 2024. Greinargerð fylgir viðaukanum.
Viðaukinn gerir ráð fyrir auknum rekstarkostnaði að fjárhæð kr. 9.600.000.
Óskað er eftir að viðaukanum verði mætt með hækkun á framlagi frá Rangárþingi ytra að fjárhæð kr. 44.893.041 en lækkun framlaga frá Ásahreppi um kr.35.293.041.
Gert er ráð fyrir leiðréttingu framlaga sveitarfélaganna vegna uppfærslu á raunfjölda nemenda frá hvoru sveitarfélagi.
Stjórn Odda samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til sveitarfélaganna til endanlegrar afgreiðslu. Bókun fundar Lagt til að staðfesta framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun 2024.
Samþykkt samhljóða. -
Oddi bs - 31 Lögð fram og rædd tillaga að gjaldskrá fyrir Odda bs fyrir árið 2025. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á gjaldskrá leikskólana í kjölfar tillagna stýrihóps um þróun leikskólastarfs. Markmiðið með breytingum á gjaldskrá er m.a. að reyna að koma til móts við ákvæði kjarasamninga um styttingu vinnutímans og bæta rekstrarumhverfi leikskólanna.
Þar er verið að taka upp stigskipta gjaldskrá eftir vistunartíma. Jafnframt er verið að gera tillögu um leikskólarnir loki kl. 14:00 á föstudögum en boðið verði upp á sérskráningar eftir kl. 14:00 á föstudögum. Þá verði leikskólar lokaðir í jólafríi grunnskóla og dimilviku en í boði verði upp á sérskráningar í jólafríi og í dimbilviku en tekið sérstakt gjald fyrir.
Þá er lagt til að gjöld vegna fyrir hverjar 15 mín umfram 8 klst. vistun og gjald fyrir að sækja börn of seint í leikskóla hækki.
Gert er ráð fyrir að fæðisgjöld og gjöld vegna skóladagheimila hækki um 3,5% í samræmi við tilmæli kjarasamninga en gert er einnig ráð fyrir að skóladagheimli loki kl. 14:00 á föstudögum.
Gjaldskráin tekur gildi 1. janúar 2025.
Gjaldskráin samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að gjaldskrá Odda bs. 2025 verði samþykkt.
Jafnframt samþykkir sveitarstjórn þær tillögur sem stjórn Odda bs. hefur samþykkt á 30. fundi sínum um þróun leikskólastarfs til að styrkja starfsumhverfi leikskólana og mæta kröfum vegna styttingu vinnuvikunnar. Sveitarstjórn leggur áherslu á að í kjölfar þessara breytinga verði þær kynntar ítarlega fyrir foreldrum leikskólabarna og þeirra foreldra sem nýta sér skóladagheimili grunnskóla. Jafnframt er lagt til að breytingar á gjaldskrá og þróunar leikskólastarfs verði tekið til skoðunar eftir skólaárið.
Samþykkt samhljóða. -
Oddi bs - 31 Lögð er fram og rædd tillaga að fjárhagsáætlun 2025 fyrir Odda bs. Stjórnin hefur átt vinnufund m.a. með öllum skólastjórum byggðasamlagsins og farið yfir þeirra áherslur.
Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður sveitarfélaganna vegna Odda bs verði kr. 1.729.402.000 sem er 12% hækkun frá áætlun síðasta árs. Framlögin skiptast þannig að hlutur Rangárþings ytra verður kr. 1.531.924.469 og hlutur Ásahrepps kr. 197.477.531. Áætlunin miðar við fjölda grunn- og leikskólabarna þann 1. október 2024 sem er 270 grunnskólabörn og leikskólabörn sem telja 148,7 barngildi. Tillaga er um að samþykkja fjárhagsáætlun 2025 fyrir Odda bs.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
20.Oddi bs. - vinnufundur - 5
2410003F
Lagt fram til kynningar.
21.Byggðarráð - vinnufundur - 23
2410009F
Lagt fram til kynningar.
22.Byggðarráð - vinnufundur - 24
2410016F
Lagt fram til kynningar.
23.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 240
2410020F
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
-
Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 240 Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun 2024. Helstu breytingar skv. honum er að gert er ráð fyrir að tekjur hækki um 56,9 m.kr. vegna aukins móttekins úrgangs. Þá hækka laun um 8,5 m.kr. vegna aukinna umsvifa og forfalla vegna veikinda. Hliðgjöld hjá þjónustuaðila hækka um 9,5 m.kr vegna aukins magns sem sent er frá Strönd.
Stjórn samþykkir viðaukann og vísar honum til staðfestingar aðildarsveitarfélaga. Bókun fundar Lagt til að viðauki við fjárhagsáætlun 2024 verði samþykktur.
Samþykkt samhljóða. -
Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 240 Tillaga að gjaldskrá 2025 lögð fram. Lagt er til að sorphirðu- og sorpeyðingargjöld hækki um 3,5%. Móttökugjöld á gjaldskyldum úrgangi hækka í samræmi við hækkanir á afsetningu hjá þjónustuaðilum og vegna aukins kostnaðar við meðhöndlun og vinnslu úrgangs á Strönd fyrir afsetningu.
Stjórn samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá og vísar henni til afgreiðslu aðildarsveitarfélaga. Bókun fundar Lagt til að gjaldskrá Sorpstöðvar Rangárvallasýslu 2025 verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 240 Fjárhagsáætlun 2025 lögð fram. Gert er ráð fyrir að tekjurnar verði 270,7 m.kr. og gjöld fyrir utan fjármagnsliði 268,1 m.kr. Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 32,2 m.kr. og að fjárfestingar á árinu 2025 verði 51 m.kr.
Fjárhagsáætlun er samþykkt og vísað til staðfestingar aðildarsveitarfélaga. Bókun fundar Lagt til að fjárhagsáætlun Sorpstöðvar Rangárvallasýslu 2025 verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
24.Fundargerðir 2024 - Héraðsnefnd Rangæinga
2404160
Fundargerð 16. fundar Héraðsráðs og 6. fundar Héraðsnefndar.
Fjárhagsáætlun 2025 til afgreiðslu og liður 7.1 um bókhaldsþjónustu.
Fjárhagsáætlun 2025 til afgreiðslu og liður 7.1 um bókhaldsþjónustu.
Lagt til að fjárhagsáætlun Héraðsnefndar Rangæinga 2025 verði samþykkt og gengið verði til samninga um að Rangárþing ytra taka að sér bókhaldsþjónustu fyrir Héraðsnefndina.
Að öðru leyti er fundargerðin lögð fram til kynningar.
Samþykkt samhljóða.
Að öðru leyti er fundargerðin lögð fram til kynningar.
Samþykkt samhljóða.
25.Fundargerðir 2024 - Brunavarnir Rangárvallasýslu bs
2404126
Fundargerð 85. fundar stjórnar Brunavarna.
Fjárhagsáætlun 2025 til afgreiðslu.
Fjárhagsáætlun 2025 til afgreiðslu.
Lagt til að fjárhagsáætlun Brunavarna Rangárvallasýslu bs. 2025 verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
26.Stjórnarfundir 2024 - Arnardrangur hses
2405043
Fundargerð 18. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.
27.Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 2024
2409033
Fundargerð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga frá 9. október s.l.
Lagt fram til kynningar.
28.Fundargerðir stjórnar SíS - 2024
2401033
Fundargerð 953. og 954. funda stjórnar.
Lagt fram til kynningar.
29.Fundargerðir 2024 - Samtök orkusveitarfélaga
2401037
Fundargerð 77. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.
30.Stjórnarfundir 2024 - Bergrisinn bs
2401062
Fundargerð 78. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:00.
Það var samþykkt samhljóða og að aðrir fundarliðir færast til í samræmi við það.