1.Samantekt sveitarstjóra og/eða oddvita
2502016
Sveitarstjóri fór yfir minnisblað um ýmis mál sem hafa verið unnin milli sveitarstjórnarfunda.
2.Kjör nefnda, ráða og stjórna
2206014
Breytingar á fulltrúum í Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd.
Lögð fram beiðni frá Á-lista um breytingu á skipan aðalmanns Á-lista í Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd. Lagt til að Viðar M. Þorsteinsson verði aðalmaður í Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd í stað Brynhildar Sighvatsdóttir og varamaður verði Brynhildur Sighvatsdóttir.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
3.Mannauðsstefna 2024
2410054
Mannauðsstefna Rangárþings ytra 2025-2030
Lögð fram drög að mannauðsstefnu Rangárþings ytra 2025-2030.
Lagt til að mannauðsstefnan verði samþykkt.
JGV tók til máls.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að mannauðsstefnan verði samþykkt.
JGV tók til máls.
Samþykkt samhljóða.
4.Ályktun um heilbrigðisþjónustu. FEBRANG
2502015
Lögð fram svohljóðandi ályktun Félags eldri borgara í Rangárvallasýslu um bætta læknisþjónustu í Rangárþingi:
"Heilbrigðisþjónusta er einn af innviðum þjóðfélagsins, rétt eins og vegakerfið. Eftir því sem aldurinn færist yfir vex þörfin fyrir heilbrigðisþjónustu. Það rímar ekki við algera vöntun á heimilislæknum á svæðinu. Aðalfundur Félags eldri borgara í Rangárvallasýslu fer fram á að snarlega verði bætt úr læknisþjónustu á svæðinu. Það nær engri átt að 4.000 íbúar, þar af um 1.000 60 ára og eldri séu án læknis dögum saman. Auk þess sem hundruð þúsunda ferðalanga ferðast um svæðið á ári hverju"
Sveitarstjórn tekur undir ályktun félagsins.
Samþykkt samhljóða.
"Heilbrigðisþjónusta er einn af innviðum þjóðfélagsins, rétt eins og vegakerfið. Eftir því sem aldurinn færist yfir vex þörfin fyrir heilbrigðisþjónustu. Það rímar ekki við algera vöntun á heimilislæknum á svæðinu. Aðalfundur Félags eldri borgara í Rangárvallasýslu fer fram á að snarlega verði bætt úr læknisþjónustu á svæðinu. Það nær engri átt að 4.000 íbúar, þar af um 1.000 60 ára og eldri séu án læknis dögum saman. Auk þess sem hundruð þúsunda ferðalanga ferðast um svæðið á ári hverju"
Sveitarstjórn tekur undir ályktun félagsins.
Samþykkt samhljóða.
5.Gjaldskrá leikskóla Odda bs. Verkalýðsfélag Suðurlands
2501061
Lagt fram erindi frá Verkalýðsfélagi Suðurlands varðandi þær breytingar sem urðu á þjónustustigi og gjaldskrá leikskóla Odda bs frá og með síðustu áramótum.
Lagt til að vísa erindinu til stjórnar Odda bs. og að fulltrúar Verkalýðsfélagsins verði boðaðir á næsta stjórnarfund Odda bs.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að vísa erindinu til stjórnar Odda bs. og að fulltrúar Verkalýðsfélagsins verði boðaðir á næsta stjórnarfund Odda bs.
Samþykkt samhljóða.
6.KPMG. Árskýrsla regluvarðar 2024
2502023
Lögð fram ársskýsla regluvarðar frá KPMG fyrir árið 2024.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
7.Fundargerðir 2025 - Samtök orkuveitarfélaga
2501069
Fundargerð 79. fundar stjórnar. Umsögn um frumvarp umhverfis-, orku- og lofslagsráðherra um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunnar og samræmingar leyfisferla á svið umhverfis- og orkumála.
Lagt til að tekið sé undir umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um frumvarp umhverfis-, orku- og lofslagsráðherra um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunnar og samræmingar leyfisferla á svið umhverfis- og orkumála.
Að öðru leyti er fundargerðin til kynningar.
Samþykkt samhljóða.
Að öðru leyti er fundargerðin til kynningar.
Samþykkt samhljóða.
8.Samráðsgátt 2024-2028- Umhverfis-, orku- og loftlagsr
2412038
Tilkynning Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um samráð í samráðsgátt vegna tillagna að flokkun tíu vindorkuverkefna og breytingu á reglugerð um urðun úrgangs nr. 738/2003.
Lagt fram til kynningar.
9.Byggðarráð Rangárþings ytra - 33
2411023F
Fundargerð byggðarráðs lögð fram og staðfest.
Tekið stutt fundarhlé.
EÞI tók til máls.
Tekið stutt fundarhlé.
EÞI tók til máls.
-
Byggðarráð Rangárþings ytra - 33 Lögð fram drög að erindisbréfi fjölmenningarráðs. Á fundinn mætir Jóhann G. Jóhannsson, íþrótta- og fjölmenningarfulltrúi og fór yfir erindisbréfið.
Byggðarráð leggur til að gerðar verði breytingar á 2. gr. erindisbréfsins þannig að hún hljóði svo:
Fjölmenningarráð er skipað fimm fulltrúum og jafn mörgum til vara. Stefnt skal að því að hafa hópinn fjölbreyttan þannig að hann endurspegli sem best þann fjölda þjóðerna sem fyrir eru í sveitarfélaginu. Auglýst er eftir áhugasömum einstaklingum í þrjár stöður í ráðinu, atvinnulífið tilnefnir einn fulltrúa og ferðaþjónustan í Rangárþingi ytra tilnefnir einn fulltrúa. Kjörtímabil fulltrúa miðast að jafnaði við kosningar til sveitarstjórnar nema sveitarstjórnin ákveði annað. Að jafnaði kýs sveitarstjórn formann nefndarinnar og á fyrsta fundi nefndarinnar fer fram kjör varaformanns.
Að öðru leyti er lagt til að erindisbréfið verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Tekið stutt fundarhlé.
Lögð fram tillaga að breytingu á orðalagi: "Auglýst er eftir fimm áhugasömum einstaklingum og leitast skal við að þeir komi sem víðast að úr samfélaginu og atvinnulífinu"
IPG tók til máls.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 33 Lögð fram samþykkt um gjaldskrá um matarvagna á Hellu.
Byggðarráð leggur til að gjald fyrir langtímastæði í eitt ár verði kr. 150.000 og langtímastæði í 6 mánuði verði kr. 100.000 sem uppfærist síðan árlega í samræmi við byggingarvísitölu.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að staðfesta bókun byggðarráðs en í gjaldskrá komi einnig fram raunkostnaður á mánuði. Einungis er leigt stæði til 6 eða 12 mánaða í senn.
IPG og EÞI tók til máls.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 33 Lögð var fram tillaga að skoðað verði að nefndir og ráð sveitarfélagsins hætti að nota fundargerðarbækur til að skrá niður fundarsókn.
Byggðarráð leggur til að hætt verði að nota fundargerðarbækur til staðfesta fundarsókn en haldið verði áfram að nota trúnaðarmálabækur.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að staðfesta bókun byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 33 Lagt fram minnisblað frá Tómasi Hauki Tómassyni forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs varðandi niðurstöður verðkannana í verkfræðihönnun vegna raflagna, brunahönnunar, jarðvinnu, burðarvirkis, lagna- og loftræstingar og hljóðvistar vegna nýbyggingar leikskólans Heklukots á Hellu.
Lagt er til að semja við lægstbjóðendur sem eru, Voltorka ehf vegna raflagna að fjárhæð kr. 5.795.000, Lotu ehf vegna brunahönnunar að fjárhæð kr. 2.380.060, Verkfræðistofunar Þráinn og Benedikt ehf vegna jarðvinnu, burðarvirkis, lagna- og loftræstingar að fjárhæð kr. 23.990.000 og Myrru hljóðstofu ehf vegna hljóðvistar að fjárhæð kr. 2.721.800 eða samtals að fjárhæð kr. 34.886.800. Tilboðin voru innan kostnaðaráætlunar. Jafnframt verði sveitarstjóra falið að undirita samninga við viðkomandi aðila.
Samþykkt samhljóða.
Bókun fundar Lagt til að staðfesta bókun byggðarráðs.
BG og JGV tóku til máls.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 33 Lagður fram lóðaleigusamningur vegna Dynskála 45 á Hellu við Olíudreifingu.
Byggðarráð leggur til að lóðaleigusamningum verði sagt upp skv. efni sínu þannig að hann renni endanlega út 31. desember 2027. Jafnframt verði sveitarstjóra falið að ræða við Olíudreifingu um möguleika þess að flýta fyrir samningslokum.
Samþykkt samhljóða.
Bókun fundar Lagt til að staðfesta bókun byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 33 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Lagt til að gerðar verði athugasemdir við niðurfellingu Akurhólsvegar úr vegaskrá þar sem hann er aðkomuleið að Kornbrekku þar sem er skráð búseta.
Samþykkt samhljóða.
10.Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 14
2501008F
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
-
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 14 Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd leggur til að sveitarstjórn láti skoða utanvegaakstur og meta umfang hans á hálendinu innan sveitarfélagsmarka Rangárþings ytra og skeri upp herör gegn þessum ófögnuði t.d. með uppsetningu skilta og með aukinni fræðslu. Utanvegaakstur er bannaður. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur undir áhyggjur nefndarinnar og leggur til að sveitarfélagið fari í formlegt samráð við Náttúruverndarstofnun/Umhverfis- og orkustofnun til að bregðast við utanvegaakstri á hálendinu í sveitarfélaginu. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða. -
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 14 Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að skoða og eftir atvikum gera áætlun um hvernig hrossaskítur frá hesthúsahverfinu sé nýttur og að með öllum ráðum koma í veg fyrir urðun hans sem er óheimil skv. reglugerð um meðhöndlun úrgangs 803/2023. Einnig leggur nefndin til að skoða meðhöndlun lífræns úrgangs frá rekstri sveitarfélagsins s.s. garðaúrgang og hvort hann sé meðhöndlaður skv. fyrrnefndri reglugerð. Bókun fundar Lagt til að fela sveitarstjóra að skoða lausnir varðandi afsetningu á þeim lífræna úrgangi sem nefndin nefnir í samráði við Sorpstöð Rangárvallasýslu og þjónustumiðstöð Rangárþings ytra.
Samþykkt samhljóða.
11.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 36
2501001F
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 36 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 36 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 36 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að Þórunn Dís Þórunnardóttir verði varaformaður nefndarinnar í stað Steindórs Tómassonar.
Nefndin þakkar Steindóri fyrir gott samstarf. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 36 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 36 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar tillögur og leggur eftirfarandi til við sveitarstjórn:
Aðalgatan beri heitið Bjargsbrún
Aðrar götur ættu að bera heiti sem enda á bjargi, t.d.
(eftir stafrófsröð)
Brekkubjarg, Heiðarbjarg, Heklubjarg, Hellubjarg, Holtabjarg, Rangárbjarg, Ægisbjarg
Þær götur sem byrja á H....bjarg ættu að vera ofan við aðalgötuna í stafrófsröð. Fyrir neðan ætti Brekkubjarg að vera fyrst, svo Rangárbjarg og Ægisbjarg næst Auðkúlu.
Skipulags- og umferðarnefnd vill þakka þeim sem sáu sér fært að senda inn tillögur. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt. Sveitarstjórn þakkar öllum þeim sem sendu inn hugmyndir í nafnasamkeppnina.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 36 Skipulags- og umferðarnefnd frestar erindinu Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 36 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 36 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 36 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 36 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 36 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 36 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
IPG vék af fundi við meðferð og afgreiðslu málsins. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 36 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
EVÞ víkur sæti við meðferð og afgreiðslu málsins. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 36 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin leggur til að erindið verði grenndarkynnt hagsmunaaðilum á svæðinu að nýju að teknu tilliti til uppfærðra gagna málsins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
12.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 37
2501007F
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 37 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við veitingu framkvæmdaleyfis fyrir þann hluta framkvæmdarinnar sem er innan Rangárþings ytra. Mælist nefndin til þess að áður en leyfið verður samþykkt til útgáfu verði leitað umsagna viðeigandi umsagnaraðila og forsætisráðuneytisins þar sem um svæði á þjóðlendu er að ræða. Sett verði fram skilyrði fyrir útgáfu leyfisins á grundvelli þeirra umsagna sem berast vegna málsins. Lagnaleiðin skal vera í samræmi við deiliskipulag svæðisins. Þar sem vinna við breytingar á samþykktu deiliskipulagi stendur yfir leggur nefndin til að lagnaleiðir sem þessar skuli skilgreindar í því.
Að auki er það niðurstaða nefndarinnar að lagning rafstrengs og ljósleiðara á umræddu svæði sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 111/2021. Því skuli framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 37 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að útgáfa framkvæmdaleyfis vegna uppsetningu vinnubúða vegna stækkunar Sigölduvirkjunar sbr. framlagðan uppdrátt og önnur gögn málsins verði samþykkt enda er framkvæmdin í samræmi við skipulagsáætlanir. Kallað skuli eftir umsögn frá Forsætisráðuneytinu þar sem efnistökusvæðið er innan þjóðlendu. Nefndin leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út leyfið og hafa eftirlit með framkvæmdunum. Nefndin vill jafnframt árétta að uppsetning tilheyrandi mannvirkja, s.s. vinnubúða, er háð byggingarleyfi og skuli sækja um það sérstaklega. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 37 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að útgáfa framkvæmdaleyfis vegna efnistöku á allt að 250.000 m³ á efnistökustað E124 við Langöldu sbr. framlagðan uppdrátt og önnur gögn málsins verði samþykkt enda er efnistakan í samræmi við skipulagsáætlanir. Kallað skuli eftir umsögn frá Forsætisráðuneytinu þar sem efnistökusvæðið er innan þjóðlendu. Nefndin leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út leyfið og hafa eftirlit með framkvæmdunum. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 37 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 37 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. en leggur til að hún verði áður kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en af fundi sveitarstjórnar verður. Nefndin telur nægilegt að kynning tillögunnar fari fram á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem tillagan varðar ekki hagsmunaaðila utan sveitarfélagsins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 37 Skipulags- og umferðarnefnd telur heppilegast að unnið verði með útgáfur nr. 4 og 5. Nefndin leggur til að skoðað verði heildarsamhengið gagnvart tengingum við nánasta umhverfi þjóðvegarins á þessum vegakafla. Nefndin leggur til að Vegagerðin vinni áfram með tilheyrandi útgáfur í samráði við sveitarfélagið. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 37 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til nauðsynlegra breytinga á aðalskipulagi sveitarfélagsins hvað varðar aukna efnistöku. Nefndin leggur líka mikla áherslu á að samræma sveitarfélagamörk og leggur til að haft verði fullt samráð við viðkomandi landeigendur ef um er að ræða aðra en sveitarfélagið. Nefndin leggur til að Efla verði fengin til að sjá um slíkt samráð og ganga frá réttum mörkum í kjölfarið.
Að auki er það niðurstaða nefndarinnar að aukning á efnismagni sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 111/2021. Því skuli framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 37 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 37 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði send Skipulagsstofnun til varðveislu skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 37 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 37 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila og telur þær ekki gefa tilefni til breytingar á auglýstri tillögu. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 37 Skipulags- og umferðarnefnd fór yfir fram komnar áherslur einstakra svæða. Nefndin leggur til að flokkun landbúnaðarlands skv. fram lögðum gögnum frá Eflu verði kynnt landeigendum ásamt því að kallað verði eftir umsögnum búnaðarráðunauts. Nefndin leggur til að fundað verði með fulltrúum Lands og Skógar og Eflu til að samræma verklag. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
13.Oddi bs - 33
2412005F
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
-
Oddi bs - 33 Lögð fram drög að mannauðsstefnu Odda bs. 2025-2030.
Lagt til að mannauðsstefnan verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að mannauðsstefna Odda bs. verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
14.Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 13
2501004F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
15.Starfshópur gervigrasvallar - 1
2501010F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
16.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 241
2501006F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
17.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 242
2502001F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
18.2025 - Fundargerðir stjórnar Félag- og skólaþjónustu Rangárv. og V.Skaft.
2501085
Fundargerð 88. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.
19.Stjórnarfundir 2025 - Bergrisinn bs
2501062
Fundargerð 80. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.
20.Fundargerðir 2025 - Heilbrigðiseftirlit Suðurlands
2501049
Fundargerð 241. fundar.
Lagt fram til kynningar.
21.Fundargerðir stjórnar SASS - 2025
2502012
Fundargeðr 618. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.
22.2025 - Fundargerðir stjórnar SÍS
2502008
Fundargerðir 961. og 962. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.
23.Fundargerðir stjórnar 2025 - Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum
2501075
Fundargerð 78. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.
24.Strandavöllur ehf. Aðalfundur 2025
2501086
Fundarboð á aðalfund 12. febrúar.
Lagt til að Viðar M. Þorsteinsson verði fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Fundi slitið - kl. 09:45.