50. fundur 10. desember 2025 kl. 08:15 - 10:45 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir varaoddviti
  • Eggert Valur Guðmundsson oddviti
  • Brynhildur Sighvatsdóttir varamaður
  • Eydís Þ. Indriðadóttir aðalmaður
  • Björk Grétarsdóttir aðalmaður
  • Viðar M. Þorsteinsson aðalmaður
  • Gústav Magnús Ásbjörnsson varamaður
Starfsmenn
  • Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Oddviti óskaði eftir því að mál nr. 11. yrði tekið fyrir í lok fundar og var það samþykkt samhljóða.

Gústav Magnús Ásbjörnsson situr fundinn sem varamaður Ingvars Péturs Guðbjörnssonar.

1.Samantekt sveitarstjóra og/eða oddvita

Málsnúmer 2502016Vakta málsnúmer

Oddviti fór yfir minnisblað um ýmis mál sem hafa verið unnin milli sveitarstjórnarfunda.
MHG tekur við stjórn fundarins sem varaoddviti.

2.Gaddstaðavegur

Málsnúmer 2501031Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningum milli sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar, sveitarfélagins og landeiganda á Gaddstöðum og kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar vegna uppbyggingu Gaddstaðavegar.

EÞI og EVG tóku til máls.

Lagt er til að samningur við Vegagerðina verði samþykktur.

Samþykkt með fjórum atkvæðum. EÞI, BG og GMÁ sitja hjá.

Lagt er til að samningur við landeigendur verði samþykktur.

Samþykkt með fjórum atkvæðum. EÞI, BG og GMÁ sitja hjá.

Bókun D-lista:
Fulltrúar D-lista taka undir bókun fulltrúa D-lista á byggðarráðsfundi 26. nóvember sl.

Það ber að fagna því að það náðist fram, með samstöðu málsaðila, að fá Gaddstaveginn metinn sem héraðsveg og tryggja þannig aðkomu Vegagerðarinnar að framkvæmdinni og kostun hennar. Ekki síður ber að fagna samkomulagi sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar um veg með vegi, tengingu Gaddstaðahverfisins við komandi hringtorg austan Helluþorps og fjármögnun verkefnisins. Mikil bót hvað varðar öryggi og aðgengi.

Hins vegar er aðkoma sveitarfélagsins að samningum við lóðarhafa við Gaddstaðaveg og kostun framkvæmda að hluta, verulega gagnrýniverð. Þar teljum við undirrituð að ekki sé gætt jafnræðis á meðal íbúa í sveitarfélaginu. (EÞI, BG, GMÁ).

Bókun Á-lista:
Í framhaldi af bókun fulltrúa D lista sem lögð var fram á fundi byggðarráðs þann 26. nóvember sl. leggur meirihluti sveitarstjórnar nú fram eftirfarandi bókun.
Á árunum 2017 til 2020 skipulagði Rangárþing ytra lóðirnar við Gaddstaðveg og seldi þær sem eignarlóðir. Í kaupsamningum vegna sölu lóðanna frá þeim tíma er ekki að finna ákvæði um hver skuli bera kostnað við lagningu vegar að lóðunum. Hins vegar má finna í deiliskipulagi, sem sveitarfélagið gerði fyrir svæðið, ákvæði um að aðkoma verði að lóðunum um nýjan veg sem muni liggja að lóðunum með tengingu við Suðurlandsveg. Það má færa rök fyrir því að kaupendur lóðanna hafi við kaup þeirra mátt hafa réttmætar væntingar til þess að seljandi lóðanna, sveitarfélagið, myndi standa straum af kostnaði við lagningu vegarins eins og kom fram í gildandi deiliskipulagi. Í því sambandi má einnig vísa til þess að verulegur aðstöðumunur er almennt á milli sveitarfélagsins og kaupenda lóða þar sem sveitarfélagið er mun betur í stakk búið til að gera sér grein fyrir réttarstöðu aðila í þessu tilliti, og ber að auki almenna upplýsinga og leiðbeiningarskyldu gagnvart viðsemjendum skv. meginreglum stjórnsýsluréttar. Kaupendur hafa þannig lýst því að umrædd vegtenging hafi verið forsenda kaupanna á sínum tíma og því eigi þeir kröfu til þess að sveitarfélagið standi straum af þeim kostnaði sem að öðrum kosti myndi falla á landeigendur við lagningu vegar að lóðunum að Gaddstöðum með tengingu við Suðurlandsveg eins og gert er ráð fyrir í deiliskipulagi svæðisins.

Á fundi byggðarráðs Rangárþings ytra þann 22. febrúar 2023 var lagt fram erindi frá Hagsmunafélagi Gaddstaða um að sveitarfélagið hlutaðist til um að sækja um til Vegagerðarinnar að vegur að svæðinu yrði héraðsvegur. Í erindinu var lýst óviðunandi ástandi vegslóðans að hverfinu og aðgerðarleysis sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar gagnvart uppbyggingu vegarins.

Á fundi byggðarráðs Rangárþings ytra þann 22. febrúar 2023 var sveitarstjóra falið að leggja fram umsókn til Vegagerðarinnar um héraðsveg að Gaddstöðum sem var gert þann 26. apríl 2023. Með ákvörðun Vegagerðarinnar, dags. 23. júní 2023, var umsókninni hafnað með nánari rökstuðningi. Ef sú niðurstaða hefði fengið að standa hefði það leitt til þess að vegtenging hverfisins hefði fallið undir skilgreiningu sveitarfélagsvegs og hefði þá sveitarfélagið alfarið borið kostnað af vegtengingunni sem veghaldari skv. 9. gr. vegalaga. Til nánari skýringar þá er gert ráð fyrir því í 1. mgr. 13. gr. vegalaga nr. 80/2007 að Vegagerðin fari með veghald þjóðvega, þ.m.t. héraðsvega, en sveitarfélög með veghald sveitarfélagsvega. Samkvæmt 20. gr. vegalaga er síðan gert ráð fyrir því að skráður eigandi fasteignar greiði helming kostnaðar við gerð nýs héraðsvegar á móti Vegagerðinni.

Á fundi byggðarráðs Rangárþings ytra þann 12. júlí 2023 voru lagðar fram niðurstöður Vegagerðarinnar í málinu. Samþykkt var á fundinum að fela sveitarstjóra í samráði við lögmann sveitarfélagsins að kæra ákvörðun Vegagerðarinnar til Innviðaráðuneytisins og óska eftir flýtimeðferð í málinu. Með úrskurði Innviðaráðuneytisins frá 5. mars 2024 í máli nr. IRN23060062 var felld úr gildi ákvörðun Vegagerðarinnar frá 29. júní 2023 um synjun umsóknar sveitarfélagsins um héraðsveg að Gaddstöðum. Ráðuneytið féllst með úrskurði sínum ekki á það með Vegagerðinni að synja bæri umsókn sveitarfélagsins um að vegtenging að Gaddstaðahverfi yrði skilgreindur héraðsvegur á þeim forsendum að skilyrði um að vegurinn væri utan þéttbýlis væri ekki uppfyllt. Með úrskurðinum var lagt fyrir Vegagerðina að taka umsókn sveitarfélagsins til meðferðar að nýju með hliðsjón af þeim sjónarmiðum sem rakin eru í úrskurðinum.

Eftir fundi bæði með Vegagerðinni og íbúum í Gaddstaðahverfi náðist samkomulag um útfærslu vegagerðar og kostnaðarskiptingu á þeim grunni að vegurinn verði skilgreindur sem héraðsvegur. Um er að ræða tvo samninga, sem byggja þó á þeim forsendum að báðir standi og öðlist gildi. Annars vegar er um að ræða samning við Vegagerðina um útfærslu framkvæmdarinnar og fjármögnun og svo hins vegar samning við eigendur lóða á svæðinu vegna kostnaðarhlutdeildar þeirra í lagningu bundins slitlags á veginn, sem er forsenda þess að Vegagerðin taki þátt í framkvæmdinni. Nánar tiltekið skiptist kostnaður við uppbyggingu núverandi vegar samkvæmt samningunum að jöfnu á milli Vegagerðarinnar og Rangárþings ytra, f.h. landeigenda, í uppgjöri gagnvart Vegagerðinni. Þannig greiðir Vegagerðin 50% hluta þess kostnaðar og Rangárþing ytra 50%. Hafa ber í huga að samningurinn við Vegagerðina um veg með vegi sem er órjúfanlegur hluti þessa samkomulags hefur mikið gildi fyrir starfsemi Skógræktarfélags Rangæinga og aðgengi almennings að aldamótaskóginum samhliða því að auka mjög á umferðaröryggi í sveitarfélaginu. Á sama tíma ábyrgjast landeigendur að greiða sveitarfélaginu þann hluta kostnaðarhlutdeildar sveitarfélagsins sem hlýst af lagningu bundins slitlags og burðarlagi þess. Með þessu er farið bil beggja þannig að upphaflegar skyldur seljanda lóðanna, sveitarfélagsins, eru uppfylltar um leið og sér til sólar varðandi endanlegan frágang og gerð héraðsvegarins.

Tilvísun fulltrúa D lista í bókun sinni til jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar á því ekki. Því er afgreiðsla málsins með ofangreindum hætti ekki fordæmisgefandi fyrir aðra héraðsvegi í sveitarfélaginu. Staðhæfingum sem fram koma í bókun fulltrúa D lista frá fundi byggðarráðs þann 26 nóv er því vísað til föðurhúsanna. (EVG, MHG, VMÞ, BS).
EVG tekur aftur við stjórn fundarins..

3.Þjónustustefna Rangárþings ytra

Málsnúmer 2507005Vakta málsnúmer

Seinni umræða.
Lögð er fram þjónustustefna Rangárþings ytra til seinni umræðu.

Lagt er til að þjónustustefnan sé samþykkt.

Samþykkt samhljóða.

4.Húsnæðisáætlun 2026

Málsnúmer 2511246Vakta málsnúmer

Lagt til að húsnæðisáætlun Rangárþings ytra fyrir árið 2026 verði samþykkt.

Samþykkt samhljóða.

5.Tillaga Á-lista um endurskoðun á reglum um afslætti á fasteignagjöldum

Málsnúmer 2509050Vakta málsnúmer

Styrkur til fyrstu kaupenda.
Lagðar eru fram reglur um styrk á móti fasteignaskatti fyrir fyrstu íbúðakaupendur sem eiga að gilda til reynslu í tvö ár.

BG tók til máls.

Lagt til að reglurnar séu samþykktar.

Samþykkt með fjórum atkvæðum. EÞI, BG og GMÁ greiða atkvæði á móti.

Bókun D-lista:
Fulltrúar D-lista sakna þess að nokkuð kostnaðarmat fylgi með tillögu Á-lista.

Fasteignaskattur A-hluta fyrir næsta ár er 0,265% sem er lágt miðað við mörg sambærileg sveitarfélög. Rangárþing ytra hefur því, nú þegar, forskot fyrir þá íbúðarkaupendur sem horfa sérstaklega til fasteignaskatta þegar þeir velja sér búsetu. Fyrir 50 milljóna króna fasteign eru fasteignaskattar á ári 132.500 kr og 50% afsláttur af þeirri upphæð er 66.250 kr.

Málið hefur ekki fengið umfjöllun á grundvelli 5. gr. laga nr. 4 frá 1995 um tekjustofna sveitarfélaga þar sem heimildir sveitarfélaga til þess að veita undanþágur frá fasteignaskatti eru tilgreindar sérstaklega. Auk þess er þessi leið flókin og ekki líkleg til að auka samkeppnisforskot. Í ljósi þess, og að engar greiningar um áætlaðan kostnað liggja fyrir, samþykkja fulltrúar D lista ekki umræddar reglur. (EÞI, BG, GMÁ).

6.Erindi vegna slæms símasambands

Málsnúmer 2511226Vakta málsnúmer

Lagt er fram erindi frá Hannesi Ólafssyni í Austvaðsholti um áhyggjur hans af slæmu farsímasambandi hjá Austvaðsholti og víðar í uppsveitum sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn tekur undir áhyggjur af slæmu farsímasambandi á svæðinu og felur sveitarstjóra að boða til fundar með Íslandsturnum, Mílu, Öryggisfjarskiptum og Fjarskiptastofu um stöðu mála og fyrirhugaðar úrbætur.

VMÞ tók til máls.

Samþykkt samhljóða.

7.Frístundastyrkur

Málsnúmer 2411004Vakta málsnúmer

Yfirlit vegna áranna 2023-2025.
Lagt fram til kynningar yfirlit frá íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa um notkun á frístundastyrkjum í Rangárþingi ytra fyrir árin 2023-2025.

BG og MHG tóku til máls

Sveitarstjórn þakkar fyrir gott yfirlit. Óskað að teknar verði saman upplýsingar um þróun æfingagjalda á tímabilinu og þær lagðar fyrir næsta reglulega fund sveitarstjórnar.

8.Tilboð í vátryggingar

Málsnúmer 2508032Vakta málsnúmer

Lagt var fram minnisblað fá Consello ráðgjöf varðandi útboð á vátryggingum fyrir sveitarfélagið og tengd byggðarsamlög.

Lagt til að taka tilboði lægsbjóðanda, Sjóvá, og fela sveitarstjóra að ganga frá samningi.

Samþykkt samhljóða.

9.Ferjufit. Stækkun efnistökusvæðis. Breyting á aðalskipulagi.

Málsnúmer 2510325Vakta málsnúmer

Rangárþing ytra vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin nær til efnistökusvæðis E122 við Ferjufit á Þjórsáreyrum (L238022). Svæðið stækkar úr 2,0 ha í allt að 5,0 ha og heimiluð efnistaka eykst úr 10.000 m³ í allt að 120.000 m³. Sameiginleg lýsing skipulagsáforma fyrir Tungnaáreyrar og Ferjufit var kynnt frá og með 6.10.2025 til og með 3.11.2025. Engar athugasemdir bárust við lýsinguna. Framlögð tillaga var samþykkt til auglýsingar í Skipulags- og umferðarnefnd á fundi 6.11.2025. Kynning tillögunnar á vinnslustigi skv. 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga fór fram í skipulagsgátt frá og með 20.11.2025 til og með 3.12.2025. Umsagnir við tillöguna á vinnslustigi bárust frá 5 aðilum og voru án athugasemda nema frá Vegagerðinni sem óskaði eftir að unnið yrði samgöngumat fyrir svæðið sem hluta af fyrirhuguðu umhverfismati. Lögð er fram samantekt umsagna og drög að viðbrögðum við þeim.

Sveitarstjórn hefur fjallað um umsagnir sem bárust á kynningartíma vinnslutillögu. Sveitarstjórn felur Landsvirkjun að gera nánari grein fyrir aukinni umferð vegna Ferjufitja t.d. í fyrirspurn varðandi umhverfismat og eftir atvikum gera grein fyrir aukinni umferð og mögulegum mótvægisaðgerðum, verði þeirra þörf í umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku. Sveitarstjórn ítrekar að utan framkvæmdartíma Vaðölduvers verður umferð vegna efnisvinnslu svipuð og verið hefur undanfarin ár. Sveitarstjórn áréttar því bókun sína frá síðasta fundi og leggur til að tillagan verði samþykkt til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2025.

Samþykkt samhljóða.

GMÁ vék sæti við meðferð og afgreiðslu málsins.

10.Tungnaáreyrar. Stækkun efnistökusvæðis. Breyting á aðalskipulagi.

Málsnúmer 2510324Vakta málsnúmer

Rangárþing ytra vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin nær til efnistökusvæðis E70 í Tungnaáreyrum (L229508). Með þessari breytingu er gert ráð fyrir stækkun svæðisins úr 2,5 ha í allt að 7,5 ha, þar sem heimiluð efnistaka eykst úr 50.000 m³ í allt að 100.000 m³. Sameiginleg lýsing skipulagsáforma fyrir Tungnaáreyrar og Ferjufit var kynnt frá og með 6.10.2025 til og með 3.11.2025. Engar athugasemdir bárust við lýsinguna. Framlögð tillaga var samþykkt til auglýsingar í Skipulags- og umferðarnefnd á fundi 6.11.2025. Kynning tillögunnar á vinnslustigi skv. 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga fór fram í skipulagsgátt frá og með 20.11.2025 til og með 3.12.2025. Umsagnir við tillöguna á vinnslustigi bárust frá 5 aðilum og voru án athugasemda nema frá Vegagerðinni sem óskaði eftir að unnið yrði samgöngumat fyrir svæðið sem hluta af fyrirhuguðu umhverfismati. Lögð er fram samantekt umsagna og drög að viðbrögðum við þeim.

Sveitarstjórn hefur fjallað um umsagnir sem bárust á kynningartíma vinnslutillögu. Sveitarstjórn felur Landsvirkjun að gera nánari grein fyrir aukinni umferð vegna Tungnaáreyra t.d. í fyrirspurn varðandi umhverfismat og eftir atvikum gera grein fyrir aukinni umferð og mögulegum mótvægisaðgerðum, verði þeirra þörf í umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku. Sveitarstjórn ítrekar að utan framkvæmdartíma Vaðölduvers verður umferð vegna efnisvinnslu svipuð og verið hefur undanfarin ár. Sveitarstjórn áréttar því bókun sína frá síðasta fundi og leggur til að tillagan verði samþykkt til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2025.

Samþykkt samhljóða.

GMÁ vék sæti við meðferð og afgreiðslu málsins.

11.Skólavist utan lögheimilissveitarfélags

Málsnúmer 2510288Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál.
Fært í trúnaðarmálabók.

12.Umsókn um styrk - HSK 2026

Málsnúmer 2511241Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá HSK um fjárstyrk sem næmi kr. 290 á hvern íbúa vegna ársins 2026.

Lagt til að styrkja HSK um 190 þúsund kr. Kostnaður færist á Æskulýðs- og íþróttamál (0689).

Samþykkt samhljóða

13.Styrkur v. tónleikanna Konur, 24. október 2025

Málsnúmer 2511075Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá Ingibjörgu Erlingsdóttur um fjárstyrk til að koma á móts við kostnað við tónleikana "Konur" sem haldnir voru í Hvolnum á Hvolsvelli 24. október s.l. ásamt kostnaðaðaráætlun.

BG tók til máls.

Lagt er til að málinu verði frestað til næsta fundar sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

14.Fundaáætlun 2026 -sveitarstjórn, byggðarráð, skipulags- og umf.nefnd

Málsnúmer 2511182Vakta málsnúmer

Lögð er fram tillaga að fundaráætlun árið 2026 fyrir sveitarstjórn, byggðarráð og skipulags- og umferðarnefnd.

Lagt til að fundaráætlun 2026 verði samþykkt.

BG tók til máls.

Samþykkt samhljóða.

15.Reglur um lóðaúthlutun. Breytingar

Málsnúmer 2505080Vakta málsnúmer

Lagðar eru fram tillögur til breytinga á reglum um lóðaúthlutanir til samræmis við breytingar á samþykkt um byggingargjöld.

Lagt til að vísa málinu til frekari umfjöllunar í skipulags- og umferðarnefnd.

Samþykkt samhljóða.

16.Samþykkt um byggingargjöld. Breytingar

Málsnúmer 2505079Vakta málsnúmer

Lagðar eru fram tillögur að breytingum á samþykkt um byggingargjöld þar sem þær eru m.a. uppfærðar til samræmis við önnur sveitarfélög til fyrri umræðu.

Lagt til vísa málinu til frekari umfjöllunar í skipulags- og umferðarnefnd og seinni umræðu á næsta reglulega fundi sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

17.Rangárljós. Gjaldskrá 2026

Málsnúmer 2510052Vakta málsnúmer

Lagt er til að gjaldskrá Rangárljósa 2026 verði samþykkt.

Samþykkt samhljóða.

18.Sorpstöð Rangárvallasýslu. Gjaldskrá 2026

Málsnúmer 2510023Vakta málsnúmer

Lagt er til að gjaldskrá Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. 2026 verði samþykkt.

Samþykkt samhljóða.

19.Gjaldskrá íþróttamiðstöðva 2026

Málsnúmer 2511247Vakta málsnúmer

Lagt er til að gjaldskrá íþróttamiðstöðva 2026 verði samþykkt

Samþykkt samhljóða.

20.Tillögur að öðrum gjaldskrám í Rangárþingi ytra 2026

Málsnúmer 2511248Vakta málsnúmer

Gjaldskrá fyrir geymslusvæði, gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald, gjaldskrá fyrir fráveitu og hreinsun rotþróa og gjaldskrá áhaldahús
Lagt er til að fyrirliggjandi gjaldskrá fyrir geymslusvæði, gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald, gjaldskrá fyrir fráveitu og hreinsun rotþróa í Rangárþingi ytra og gjaldskrá áhaldahús fyrir árið 2026 verði samþykktar.

Samþykkt samhljóða.

21.Fjárhagsáætlun Rangárljósa 2026

Málsnúmer 2510051Vakta málsnúmer

Lagt er til að sveitarstjórn samþykki fjárhagsáætlun fyrir Rangárljós 2026.

Samþykkt samhljóða.

22.Fjárhagsáætlun Odda bs. 2026

Málsnúmer 2509006Vakta málsnúmer

Lagt er til að sveitarstjórn samþykki fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun fyrir byggðasamlagið Odda bs. 2026.

Samþykkt samhljóða.

23.Fjárhagsáætlun Tónlistarskóla Rangæinga bs. 2026

Málsnúmer 2511150Vakta málsnúmer

Lagt er til að sveitarstjórn samþykki fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun fyrir byggðasamlagið Tónlistarskóla Rangæinga bs. 2026.

Samþykkt samhljóða.

24.Fjárhagsáætlun Húsakynna 2026

Málsnúmer 2510271Vakta málsnúmer

Lagt er til að sveitarstjórn samþykki fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun fyrir byggðasamlagið Húsakynni bs. 2026.

Samþykkt samhljóða.

25.Fjárhagsáætlun Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps 2026

Málsnúmer 2510015Vakta málsnúmer

Lagt er til að sveitarstjórn samþykki fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun fyrir byggðasamlagið Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs. 2026.

Samþykkt samhljóða.

26.Fjárhagsáætlun 2026. Sorpstöð Rangárvallasýslu.

Málsnúmer 2510022Vakta málsnúmer

Lagt er til að sveitarstjórn samþykki fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun fyrir byggðasamlagið Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. 2026.

Samþykkt samhljóða.

27.Fjárhagsáætlun 2026 - Suðurlandsvegur 1-3 hf

Málsnúmer 2511124Vakta málsnúmer

Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun fyrir Suðurlandsveg 1-3 hf 2026.

Samþykkt samhljóða.

28.Fundargerðir 2025 - Brunavarnir Rangárvallasýslu bs

Málsnúmer 2503004Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun 2026 til afgreiðslu
Lagt er til að sveitarstjórn samþykki fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun fyrir byggðasamlagið Brunavarna Rangárvallasýslu bs. 2026.

Samþykkt samhljóða.

29.Fundargerðir stjórnar Félag- og skólaþjónustu Rangárv. og V.Skaft.-2025

Málsnúmer 2501085Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun 2026 til afgreiðslu
Lagt er til að sveitarstjórn samþykki fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun fyrir Félags- og skólaþjónusta Rangárv/V-Skaft. 2026.

Samþykkt samhljóða.

30.Tillaga að reglum um afslætti til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2026

Málsnúmer 2511249Vakta málsnúmer

Lagt er til að tillaga að reglum um afslætti til elli- og örorkulífeyrisþega 2026 verði samþykkt en hækkunin nemur 7,5% á milli ára.

Samþykkt samhljóða.

31.Tillögur að álagningarprósentum, afsláttum og gjaldskrám fyrir árið 2026

Málsnúmer 2511250Vakta málsnúmer

Gildir frá og með 1. janúar 2026

1. Útsvar; 14,97%.
2. Fasteignaskattur;
A - 0,265% af fasteignamati: Íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, erfðafestulönd í dreifbýli og jarðeignir, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði, öll hlunnindi og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.
B - 1,32% af fasteignamati: Sjúkrastofnanir samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, skólar, heimavistir, leikskólar, íþróttahús og bókasöfn.
C - 1,40% af fasteignamati: Allar aðrar fasteignir, svo sem iðnaðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði, fiskeldismannvirki, veiðihús og mannvirki sem nýtt eru fyrir ferðaþjónustu.

3. Lóðarleiga; 1,0% af fasteignamati lóða í eigu sveitarfélagsins. Þó getur sveitarstjórn ákveðið annað leiguhlutfall eða álagningu í krónutölu á hvern fermetra lóðar við sérstakar aðstæður.

4. Vatnsgjald; skv. sérstakri gjaldskrá.

5. Aukavatnsgjald skv. sérstakri gjaldskrá.

6. Tengigjöld í Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps er samkvæmt sérstakri gjaldskrá.

7. Fráveitugjald á Hellu; 0,18% af fasteignamati húss og tilh. lóðar skv. sérstakri gjaldskrá.

8. Gjöld fyrir tæmingu rotþróa eru samkvæmt sérstakri gjaldskrá.

9. Sorphirðu- og sorpeyðingargjöld skv. sérstakri gjaldskrá.

Gjalddagar liða nr. 2, 3, 4, 7, 8 og 9 eru 1/2, 1/3, 1/4, 1/5, 1/6, 1/7, 1/8 og 1/9 2026. Þar sem fasteignagjöld verða samtals kr. 50.000 eða lægri skal þó aðeins vera einn gjalddagi; 1/5 2026. Einnig gefst aðilum kostur á að greiða fasteignagjöldin í einu lagi og skal gjalddagi vera eigi síðar en 1/6 2026. Eindagi er síðasti virki dagur í sama mánuði og gjalddagi.

Fasteignaeigendum 67 ára og eldri og öryrkjum 75% og meira, sem búa í eigin íbúðarhúsnæði, skal veittur afsláttur af fasteignaskatti og fráveitu-og rotþróargjaldi af viðkomandi íbúðarhúsnæði skv. reglum samþ. af sveitarstjórn.

10. Leyfisgjöld vegna hunda- og kattahalds er samkvæmt sérstakri gjaldskrá.

11. Byggingarleyfisgjöld, afgreiðslu-, úttekta og mælingagjöld skipulags- og bygginganefndar og skipulags- og byggingafulltrúa leggjast á skv. sérstakri gjaldskrá. Gjalddagar eru dags. reikninga og eindagar 30 dögum síðar.

Að öðru leyti gilda lög um tekjustofna sveitarfélaga og gjaldskrár um viðkomandi tekjuliði. Samþykkt þessi um álagningarprósentur, afslætti og gjaldskrár skal birt á heimasíðu Rangárþings ytra.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn tók ákvörðun um að lækka álagningarhlutfall a-hluta fasteignagjalda úr 0,28 í 0,265, c-hluta fasteignagjalda úr 1,45 í 1,40 og fráveitugjalda úr 0,20 í 0,18 til að koma til móts við fasteignaeigendur vegna hækkunar á fasteignamati. Samtals hefur sveitarstjórn lækkað álagningarhlutfall í a-hluta á kjörtímabilinu úr 0,36 í 0,265, c-hluta úr 1,50 í 1,40 og fráveitugjalda úr 0,22 í 0,18.

32.Fjárhagsáætlun 2026-2029

Málsnúmer 2509032Vakta málsnúmer

Seinni umræða.
Fjárhagsáætlun Rangárþings ytra 2026-2029 lögð fram til afgreiðslu í seinni umræðu.

Áætlaðar heildartekjur Rangárþings ytra (A og B hluta) árið 2026 nema alls 4.472.250 mkr. Rekstrargjöld eru áætluð 3.681.666 mkr. og þar af reiknaðar afskriftir 219.704 mkr. Fjármagnsgjöld eru áætluð 224.531 mkr. Rekstrarniðurstaða er áætluð jákvæð um 346.350 mkr.

Veltufé frá rekstri er 650.017 mkr. Í eignfærða fjárfestingu 1.011.967 mkr og nýrri lántöku að upphæð 567.000 mkr. á árinu 2026 aðallega vegna framkvæmda við skólasvæði á Hellu. Skuldir og skuldbindingar eru áætlaðar í árslok 2026 alls 4.272.276 mkr og eigið fé 4.418.510 mkr. Eignir í árslok eru áætlaðar 8.690.787 mkr.

Framlegðarhlutfall 2026 er áætlað 17,7.

Veltufjárhlutfall 2026 er áætlað 0,97.

Eiginfjárhlutfall 2026 er áætlað 0,50.

Skuldaviðmið skv. reglugerð 500/2012 er áætlað 70%.

Skuldahlutfall er áætlað 95,5%.

Rekstrarjöfnuður þriggja ára skv. sveitarstjórnarlögum er áætlaður jákvæður um 1.063.249 mkr.

JGV og EÞI tóku til máls.

Samþykkt samhljóða.

Bókun D-lista:
D listinn þakkar fulltrúum Á listans fyrir gott samstarf við gerð áætlunarinnar. (EÞI, BG, GMÞ)

Bókun Á-lista:
Á-listinn vill þakka fulltrúum D listans fyrir gott samstarf við gerð áætlunarinnar. Það er ánægjulegt að samþykkja sterka og árangursríka fjárhagsáætlun nú þegar líður að lokum kjörtímabilsins. Allt kjörtímabilið hefur verið í forgangi að tryggja farsæld og velferð íbúanna og framkvæma í mikilvægum innviðum sveitarfélagsins. Þar sem framtíðarsýn sem styður við börn, fjölskyldur og atvinnulíf hefur verið í forgrunni.

Á þessu kjörtímabili hefur verið ráðist í mikla uppbyggingu í grunn- og leikskólum sveitarfélagsins með verulegum framkvæmdum í bættu húsnæði, aðstöðu og þjónustu við nemendur og starfsfólk. Þá hefur verið stóraukið fjármagn til íþrótta-og tómstundamála, m.a. með byggingu nýs gervigrasvallar, kaupum á landspildu úr landi Helluvaðs, þar sem eru áætlanir uppi um íþrótta og útivistarsvæði, auk nýrrar íbúabyggðar.

Rekstur sveitarfélagsins hefur á sama tíma verið traustur og skilað mjög góðum rekstrarafgangi allt kjörtímabilið. Sterkur og ábyrgur rekstur hefur orðið til þess að lántaka hefur verið mun minni en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Það sýnir ábyrgð í fjármálastjórn að geta staðið undir metnaðarfullri uppbyggingu án þess að stofna fjárhagslegu jafnvægi sveitarfélagsins í hættu.

Fulltrúar Á-lista líta svo á að góð rekstrarafkoma sé forsenda þess að hægt sé að styðja við öflugt og fjölbreytt atvinnulíf. Margt er þegar komið af stað eða er í undirbúningi, t.d þjónustuhús Landsvirkjunar, áform um lágvöruverðsverslun, áform um stór hótel og uppbygging og stækkun hjá Reykjagarði. Allt eru þetta verkefni sem styrkja stoðir samfélagsins til lengri tíma.

Fulltrúar Á-lista eru stoltir af þeirri framsýni sem fram kemur í þessari fjárhagsáætlun og þeim framkvæmdum sem unnið hefur verið að á kjörtímabilinu. Nauðsynlegt er að halda áfram á sömu braut með ábyrgri fjármálastjórn, halda áfram að styrkja innviði sveitarfélagsins auk þess að styðja við gott starf í grunn- og leikskólunum og standa þétt við atvinnulífið.

Allt þetta mun skapa íbúum Rangárþings ytra trausta og fjölskylduvæna framtíð. (EVG, MHG, VMÞ, BS).

Bókun sveitarstjórnar: Sveitarstjórn þakkar starfsfólki sveitarfélagsins fyrir mjög gott starf við undirbúning og gerð fjárhagsáætlunarinnar. Jafnframt vill sveitarstjórn nota tækifærið og þakka öllu starfsfólki sveitarfélagsins fyrir vel unnin störf á árinu. Sveitarstjórn óskar starfsfólki og íbúum Rangárþings ytra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

33.Umsókn um stofnun lögbýlis - Ægissíða 5

Málsnúmer 2512004Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni frá eiganda Ægissíðu 5 um að jörðin verði gerð að lögbýli ásamt umsögn ráðunauts.

Lagt er til að sveitarstjórn geri ekki athugasemd við að Ægissíða 5 verði gerð að lögbýli.

Samþykkt samhljóða.

34.Hagi lóð, L192681. Lake cabin ehf. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2511223Vakta málsnúmer

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Úlfs Ísfelds Rögnvaldssonar fyrir hönd Lake cabin ehf., kt. 300495-2149 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" minna gistiheimili á lóðinni Hagi lóð, L192681, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 24.11.2025.

Lagt er til að sveitarstjórn gefi neikvæða umsögn varðandi erindið þar sem óheimilt er að starfrækja gistirekstur innan skipulagðra frístundasvæða í sveitarfélaginu nema heimild viðkomandi sumarhúsafélags liggi fyrir og heimild þess efnis liggi fyrir í deiliskipulagi.

Samþykkt samhljóða.

35.Rangárstígur 3. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis til útleigu gistingar í fklokki II, tegund C

Málsnúmer 2009005Vakta málsnúmer

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Ástu Kristínar Siggadóttur fyrir hönd Ægisbliks ehf, kt. 490816-1510, um rekstrarleyfi til gistingar í flokki II, tegund "C" í gistiskála félagsins að Rangárstíg 3, Rangárþingi ytra.

Lagt er til að sveitarstjórn geri ekki athugasemd við beiðnina.

Samþykkt samhljóða.

36.Byggðarráð Rangárþings ytra - 44

Málsnúmer 2510017FVakta málsnúmer

Fundargerð byggðarráðs lögð fram og staðfest.
  • Byggðarráð Rangárþings ytra - 44 Lögð fram drög að samningi til eins árs milli Jarðefnaiðnaðar og sveitarfélagsins um vinnslu vikurs úr Merkihvolssnámu.

    Byggðarráð leggur til að samningurinn verði samþykktur og sveitarstjóra falið að undirrita hann.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Lagt til að staðfesta bókun byggðarráðs.

    Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Rangárþings ytra - 44 Lagður fram viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2025. Greinargerð fylgir viðaukanum og fór Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri yfir breytingarnar.

    Viðauki 3 gerir ráð fyrir hækkun á rekstrarniðurstöðu um kr. 109 millj. og fjárfesting lækki um kr. 17,1 millj.

    Byggðarráð leggur til að viðaukinn verði samþykktur.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Lagt til að staðfesta bókun byggðarráðs.

    Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Rangárþings ytra - 44 Landeigendur að Gljánni L229525 óska eftir breytingu á nafni lóðarinnar. Nýtt nafn lóðarinnar ber heitið Gljábær.

    Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemd við breytingu á nafni lóðarinnar.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Lagt til að breyta niðurstöðu byggðarráðs þannig að Gljáin fái nafnið Sandnes þar nú þegar er nafnið Gljábær í notkun.

    Samþykkt samhljóða.

37.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 55

Málsnúmer 2511008FVakta málsnúmer

Fundargerð skipulags- og umferðarnefndar lögð fram og staðfest.

38.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56

Málsnúmer 2511019FVakta málsnúmer

  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Nefndin vill árétta að gera þarf tilheyrandi breytingar á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið komi til framkvæmda á lóðinni. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd gerir engar athugasemdir við áform Ferðafélags Íslands um bættar merkingar en leggur áherslu á að Náttúruverndarstofnun verði höfð með í ráðum við val á útliti og tegund merkinga og skilta þar sem um samræmt útlit er að ræða innan Fjallabaks. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í framkomnar hugmyndir G.G.Tré ehf. um smærri íbúðir og telur slíka uppbyggingu geta stutt við fjölbreyttara íbúðaframboð í sveitarfélaginu. Nefndin telur hins vegar rétt að kanna hvort verkefninu megi finna heppilegri staðsetningu norðar í hverfinu Öldur III, þar sem nú þegar er gert ráð fyrir tveggja hæða íbúðarhúsnæði í deiliskipulagi. Nefndin óskar eftir að metið verði hvort hentugra þyki að gera Móölduna tilbúna hvað þetta varðar áður en Melalda er tekin fyrir. Nefndin telur jafnframt æskilegt að deiliskipulagið verði tekið upp og skoðað hvort ekki sé hentugra að setja inn parhús á einni hæð í stað einbýlishúsa við enda gatnanna, eins og nú er auk þess að skoða með breidd gatna. Bókun fundar Lagt til að fresta afgreiðslu málsins.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðarinnar og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðarinnar og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd telur skýrsluna gefa góða mynd af áformum og mótvægisaðgerðum vegna mögulegrar mengunar. Nefndin telur að sorporkuver á Strönd stuðli að jákvæðum áhrifum á samfélagið. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að samið verði við Landhönnun þar sem tilboð þeirra var hagstæðast. Nefndin vill þakka öðrum sem buðu fyrir innsend verð. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við framlögð drög að fundaáætlun og samþykkir þau fyrir sitt leyti. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Kynning á stöðu verkefnisins. Skipulags- og umferðarnefnd undirstrikar að innleiðing gagnasjár er hugsuð til að tryggja betra flæði upplýsinga til framkvæmdasviðs, meðal annars um samgöngumannvirki og umferðaröryggismál. Nefndin gerir ráð fyrir að Framkvæmda- og eignanefnd og framkvæmdasvið nýti gagnasjána einnig sem vinnutæki til að auka skilvirkni í framkvæmd ákvarðana. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir gjaldskránna í heild sinni. Nefndin ítrekar fyrri bókun sína þar sem Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að breyting verði gerð á 9. grein Samþykktar um byggingargjöld, sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. desember 2024, þar sem bætt verði við ákvæðum í b-lið þeirrar greinar þess efnis að fyrir byggingar með gólfflöt milli 2.000 og 3.000 m² verði gjaldið 400%, fyrir gólfflöt milli 3.000 og 4.000 m² verði hlutfallið 500% og 600% fyrir gólffleti yfir 4.000 m². Við D-lið 9. greinar verði bætt við heimild til gjaldtöku vegna skilta. Verði hlutfallið 20%. Að auki verði fellt út ákvæði um húsaleiguúttektir í 11. grein sömu samþykktar. Þá er að auki lagt til að 2. mgr. 4. greinar verði felld niður. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í erindið og telur verslunar- og þjónustu eiga mun meira heima á þessu svæði en iðnaður þegar til framtíðar er litið. Nefndin leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að hefja breytingar á landnotkun í aðalskipulagi. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að erindið verði grenndarkynnt að nýju til sömu aðila og siðast. Þar sem staðsetning mastursins er hugsuð í miðri skipulagðri byggð telur nefndin réttast að umsækjandi geri nauðsynlegar breytingar á gildandi deiliskipulagi þar sem mastrið verði sett inn þegar staðsetning þess hefur verið staðfest.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.

    GMÁ víkur sæti við meðferð og afgreiðslu málsins.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir athugasemdir og umsagnir. Ekki þykir ástæða til að taka undir athugasemdir um verulega aukið álag á veg eða að þörf sé á samgöngumati vegna stækkunar námu, enda er náma í notkun og stækkun námunnar er til að tryggja svipaða nýtingu og verið hefur undanfarna áratugi.
    Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Í samræmi við 6. gr. laga nr. 106/2000 hefur Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra farið yfir tilkynningu framkvæmdaraðila. Niðurstaða nefndarinnar er að lagning Búðafossvegar milli Þjórsárdalsvegar og Landvegar sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 106/2000. Því skuli framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.

    GMÁ víkur sæti við meðferð og afgreiðslu málsins.
  • 38.22 2210013 Mosar deiliskipulag
    Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir og athugasemdir skipulagsstofnunar. Nefndin hefur talið það til hagsbóta fyrir samfélagið ef lögbýlistengd starfsemi á bújörð er efld á þennan hátt þrátt fyrir að byggingarmagn fari yfir skilgreind mörk á landbúnaðarlandi og hefur því heimilað tiltekna uppbyggingu án þess að vilja skilgreina landnotkun annað en landbúnað. Nefndin telur því enga ástæðu til að skilgreina umrædda starfsemi á lögbýlinu Bjálmholti til annars en lögbýlistengda starfsemi á bújörð og telur því ekki ástæðu til breytinga á landnotkun.
    Nefndin telur að fram komnar umsagnir leiði því ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur til að tillagan verði auglýst samhliða tillögu að breytingum á aðalskipulagi fyrir sama svæði þegar heimild til þess liggur fyrir. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við fram lagða skipulags- og matslýsingu. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Skipulags- og umferðarnefnd gerir engar athugasemdir við fram lögð áform. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 56 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

39.Framkvæmda- og eignanefnd - 7

Málsnúmer 2510021FVakta málsnúmer

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

40.Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 25

Málsnúmer 2511007FVakta málsnúmer

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

41.Heilsueflandi samfélag - 4

Málsnúmer 2510016FVakta málsnúmer

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

42.Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 18

Málsnúmer 2511020FVakta málsnúmer

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

43.Tónlistarskóli Rangæinga bs - 37

Málsnúmer 2511015FVakta málsnúmer

Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
  • Tónlistarskóli Rangæinga bs - 37 Lagður fram viðauki 1 við fjárhagsáætlun ársins 2025 að upphæð 5,7 milljónir sem snýr að mestu til að bregðast við kjarasamningshækkunum launa. Viðaukanum er mætt með lækkun á handbæru fé.

    Stjórn samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun 2025 og vísar til staðfestingar aðildarsveitarfélaga.
    Bókun fundar Lagt til að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun Tónlistarskóla Rangæinga bs. 2025.

    Samþykkt samhljóða.

44.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 251

Málsnúmer 2511005FVakta málsnúmer

Fundargerðin að öðru lagi lögð fram til kynningar.
  • Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 251 Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun 2025. Helstu breytingar skv. honum er að gert er ráð fyrir að tekjur hækki um 25,2 m.kr vegna aukins móttekins úrgangs og hærri flutningsjöfnunar. Þá hækka laun um 16,4 m.kr vegna fjölgunar stöðugilda og uppgjörs, annar rekstarkostnaður hækkar um 6,7 m. kr. og afskriftir lækka um 3,9 m. kr. Gert er ráð fyrir að fjárfesting hækki úr 43. m. kr. í 60,5 m.kr. Áhrif á rekstarniðurstöðuna er jákvæð um 6 m.kr.

    Stjórn samþykkir viðaukann og vísar honum til staðfestingar aðildarsveitarfélaga.
    Bókun fundar Lagt til að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. 2025.

    Samþykkt samhljóða.

45.Oddi bs - 44

Málsnúmer 2511006FVakta málsnúmer

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

BG tók til máls varðandi lið 3.

Bókun D-lista til stjórnar Odda bs.
Fulltrúar D-lista telja að mistök hafi verið gerð við breytingu á gjaldskrá leikskóla fyrir yfirstandandi og komandi ár varðandi skráningadaga milli hátíða. Í upphafi var ætlunin að skráningadagar og sérstök gjaldskrá vegna þeirra væri einungis á milli hátíða. Búið er að leiðrétta málið fyrir árið í ár en gjaldskrá næsta árs stendur óbreytt. Því telja fulltrúar D-lista rétt að samhliða afgreiðslu á skóladagatölum leikskóla fyrir næsta skólaár verði gjaldskrá leikskóla leiðrétt þannig að einungis verði sérstakt skráningagjald á milli hátíða í desember líkt og upphaflega var lagt upp með. (EÞI, BG, GMÁ).

46.Stjórn Suðurlandsvegar 1-3 hf - 29

Málsnúmer 2511014FVakta málsnúmer

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

47.Byggðarráð - vinnufundur - 29

Málsnúmer 2511003FVakta málsnúmer

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

48.Byggðarráð - vinnufundur - 30

Málsnúmer 2511009FVakta málsnúmer

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

49.Byggðarráð - vinnufundur - 31

Málsnúmer 2511023FVakta málsnúmer

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

50.Fundargerðir stjórnar SASS - 2025

Málsnúmer 2502012Vakta málsnúmer

Fundargerðir 629., 630. og 631. funda stjórnar SASS.

Liður 4 í 631. fundargerð þarfnast afgreiðslu.
Tekinn er sérstaklega fyrir liður 4. í fundargerð stjórnar Samtaka Sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) frá 5. desember 2025 vegna breytinga á umgjörð og rekstri SOS sem þarfnast aðkomu SASS.

Lagt er til að sveitarstjórn samþykki fyrir sitt leyti aðkomu SASS að verkefninu í samræmi við fyrirliggjandi ályktanir aðalfundar SOS og fyrirliggjandi samningsdrög.

JGV tók til máls.

Samþykkt samhljóða.

Fundargerðirnar að öðru leyti lagðar fram til kynningar.

51.Fundargerðir Fjallskiladeildar Rangárvallaafréttar 2025

Málsnúmer 2511224Vakta málsnúmer

Fundargerð 2. fundar frá 2. desember s.l.
Lögð fram fundargerð Fjallskiladeildar Rangárvallaafréttar frá 2. des. s.l. og drög að uppgjöri fyrir árið 2025 og lokauppgjör 2024.

Tekið stutt fundarhlé.

Lagt er til að sveitarfélagið taki á sig að þessu sinni greiðslu á mismun á kostnaði allt að kr. 800 þús. þar sem rekið fé af fjalli sé að litlu leiti frá upprekstarhöfum Rangárvallaafréttar og fækkunar ferðamanna. Tekið er undir bókun fjallskilanefndar um nauðsyn á fyrirkomulagi smölunar og þeir aðilar sem reka á fjall komi sem mest að skipulagningu og framkvæmd leita.

Samþykkt samhljóða.

MHG víkur sæti við meðferð og afgreiðslu málsins.

52.Stjórnarfundir 2025 - Bergrisinn bs

Málsnúmer 2501062Vakta málsnúmer

Fundargerð 89. stjórnarfundar
Lagt fram til kynningar.

53.Fundargerðir stjórnar SÍS - 2025

Málsnúmer 2502008Vakta málsnúmer

Fundargerð 988. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.

54.Aðalfundur Vottunarstofunnar Túns ehf 2025

Málsnúmer 2508035Vakta málsnúmer

Fundargerð aðalfundar frá 26. ágúst s.l.
Lagt fram til kynningar.

55.Fundargerðir 2025 - Heilbrigðiseftirlit Suðurlands

Málsnúmer 2501049Vakta málsnúmer

Fundargerð 250. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.

56.Samband íslenskra sveitarfélaga tekur við söfnun fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2026

Fundi slitið - kl. 10:45.