51. fundur 14. janúar 2026 kl. 08:15 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir varaoddviti
  • Eggert Valur Guðmundsson oddviti
  • Þórunn Dís Þórunnardóttir aðalmaður
  • Eydís Þ. Indriðadóttir aðalmaður
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson aðalmaður
  • Björk Grétarsdóttir aðalmaður
  • Viðar M. Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri

1.Reglur um lóðaúthlutun. Breytingar

2505080

Lagðar eru fram tillögur til breytinga á reglum um lóðaúthlutanir til samræmis við breytingar á samþykkt um byggingargjöld.

Lagt til að samþykkja reglurnar með þeim breytingum að 4. mgr. 4. gr. um greiðsluhæfi umsækjenda falli út. Breytingarnar myndu taka gildi við birtingu samþykkta um byggingargjöld í B-deild stjórnartíðinda.

JGV og IPG tóku til máls.

Tekið stutt fundarhlé.

Samþykkt samhljóða.

2.Samþykkt um byggingargjöld. Breytingar

2505079

Seinni umræða
Lagðar eru fram tillögur að breytingum á samþykkt um byggingargjöld þar sem þær eru m.a. uppfærðar til samræmis við önnur sveitarfélög til seinni umræðu.

Lagt til samþykkja breytingar á samþykkt um byggingargjöld með þeim breytingum álagningarhlutfall gatnagerðargjalda skv d) og e) lið 4. gr. vegna verslunar- og iðnaðarhúsnæðis lækkar úr 4% í 3% og að 5. gr. gildi um gatnagerðargjöld af byggingarleyfisskyldum húsum.

JGV og IPG tóku til máls.

Samþykkt samhljóða.

3.Lánasjóður sveitarfélaga. Framkvæmdalán.

2601006

Lagt er til að veita heimild til lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 300 millj. sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins til byggingar á grunnskólanum og leikskólanum á Hellu.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 300.000.000,- á árinu 2026 með þeim lánaskilmálum sem býðst á þeim tíma sem lántaka fer fram. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, sem og langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður sveitarfélögum upp á hverju sinni og hefur sveitarstjórnin kynnt sér skilmála skuldabréfaflokkanna eins og þeir koma fyrir á heimasíðu Lánasjóðsins.

Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Er lánið tekið til að fjármagna nýframkvæmdir við grunnskólann á Hellu sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Jóni G. Valgeirssyni, sveitarstjóra, kt. 060568-4809, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Rangárþings ytra að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

JGV og IPG tóku til máls.

Samþykkt samhljóða.

4.Nýsköpunarstefna fyrir Suðurland

2512066

Skipun fulltrúa.
Háskólafélag Suðurlands og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hafa undirritað samning vegna áhersluverkefnisins "Nýsköpunarstefna fyrir Suðurland". Verkefnið, sem styrkt er af Sóknaráætlun Suðurlands, felur í sér að Háskólafélagið leiði mótun heildstæðrar stefnu til að samræma og efla nýsköpunarstarf í landshlutanum.

Lögð er fram beiðni frá Háskólafélaginu um skipan fulltrúa sveitarfélagsins til að taka þátt í mótun stefnunnar.

Lagt til að Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri verði skipaður fulltrúi í hópinn og til vara Egggert Valur Guðmundsson.

IPG tók til máls.

Samþykkt samhljóða.

5.Frístundastyrkur

2411004

Lagt fram til kynningar yfirlit frá íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa um notkun á frístundastyrkjum í Rangárþingi ytra fyrir árin 2023-2025 og upplýsingar um þróun æfingagjalda á tímabilinu.

IPG og MHG tóku til máls.

Tekið stutt fundarhlé.

Bókun D-lista:
Fulltrúar D-lista þakka fyrir samantekin gögn. Skv. fyrirliggjandi gögnum hefur nýting á frístundastyrk aukist úr 73% frá árinu 2023 í 83% á árinu 2025 sem er jákvætt í sjálfu sér þó ekki liggi fyrir nein frekari greining á því hvers vegna 17% þeirra sem rétt eiga á styrknum nýti hann ekki, t.d. hvort sá hópur þurfi ekki á honum að halda eða sé almennt ekki að stunda neitt íþrótta- eða tómstundastarf. Eitt af þeim markmiðum sem lágu fyrir tillögunni upphaflega var að ýta undir að fleiri börn og ungmenni myndu stunda íþrótta- og tómstundastarf. Á 4. fundi sveitarstjórnar 14. september 2022 lýsti fulltrúi D-lista þeim áhyggjum að innleiðing frístundastyrkja myndi leiða til hækkunar á æfingargjöldum líkt og víða hefði raungerst. Þegar fyrirliggjandi gögn eru rýnd má sjá að þær áhyggjur voru á rökum reistar og að æfingagjöld hafa nokkuð gegnumgangandi verið að hækka allt frá því frístundastyrkir voru innleiddir, misjafnlega þó eftir greinum. Þannig hafa sem dæmi æfingargjöld fyrir 6.- 4. flokk hjá KFR hækkað um 36% á sama tíma og launavísitala hefur hækkað um 17%. Æfingagjöld í 3. flokki hafi jafnframt hækkað nokkuð umfram launavísitölu. Sambærileg dæmi má finna bæði hjá Umf. Heklu og Garpi. Eitt af markmiðum frístundastyrkja var að létta undir með heimilum til að kostnaður væri síður hamlandi fyrir þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi. Ljóst er að þegar æfingagjöld hækka töluvert umfram vísitölu og hækka um leið umfram frístundastyrki er ekki verið að ná þeim markmiðum. Í slíkum tilfellum er raunkostnaður á heimilin að hækka en ekki lækka eins og markmið stóðu til. Það er áhyggjuefni og vert væri að fara í nánari greiningar á þessari þróun og um leið að skoða heildstætt hvort þau markmið sem lágu fyrir í upphafi séu að nást.(IPG, EÞI, BG).

Sveitarstjórn óskar eftir fundi með fulltrúum íþróttafélaga um þróun æfingagjalda.

6.GHR. Leyfi undir fjarskiptamastur

2512040

Lögð er fram beiðni GHR um að gerður verði viðaukasamningur við samning GHR og sveitarfélagsins um hluta jarðarinnar Strandar sem heimili GHR að semja við Íslandsturna um uppsetningu fjarskiptamasturs á landinu og leigutekjur renni til golfklúbbins.

Lagt til að samþykkja erindið og fela sveitarstjóra að ganga frá samningi við GHR og leggja fyrir byggðarráð. Jafnframt muni leigugreiðslur Íslandsturna bókast sem styrkur sveitarfélagsins til GHR.

Samþykkt samhljóða.

7.Beiðni um undanþágu frá kröfu um sameiginleg landnúmer á spildum - Skinnhúfa og Norðurnes

2601009

Lögð fram beiðni frá eigendum Skinnhúfu ehf um undanþágu frá kröfu um sameiginleg landnúmer á spildum Skinnhúfa F-2318648 og Norðurnes F-2282249 vegna reglubundinnar endurnýjunnar rekstrarleyfis Skinnhúfu ehf.

Lagt til erindinu verði vísað til umfjöllunar í skipulags- og umferðarnefnd.

Samþykkt samhljóða.

8.Árbakkinn sólstöðuhátíð 2026 - Umsókn um leyfi

2512114

Lögð fram beiðni frá Bjarka Eiríkssyni um að fá leyfi til að nýta fjölskyldu- og útivistarsvæðið í Nesi á Hellu til sólstöðu og tónlistarhátíðarinnar "Árbakkans" á sumarsólstöðum, 20. júní næstkomandi.

Lagt til að samþykkja erindið en lögð er áhersla á að viðburðurinn verði kynntur vel fyrir nágrönnum.

Samþykkt samhljóða.

9.Styrkur v. tónleikanna Konur, 24. október 2025

2511075

Lögð fram beiðni frá Ingibjörgu Erlingsdóttur um fjárstyrk til að koma á móts við kostnað við tónleikana "Konur" sem haldnir voru í Hvolnum á Hvolsvelli 24. október s.l. ásamt kostnaðaðaráætlun og uppgjöri vegna tónleikana.

Lagt er til að veittur verði styrkur upp á kr. 100.000 sem bókist undir menningarmál vegna ársins 2025.

Samþykkt samhljóða.

10.Lýtingur 2 L239373. Kaup á landi

2512101

Lögð er fram umsagnarbeiðni atvinnuráðuneytisns, sbr. 10. gr. a jarðalaga nr. 81/2004, á kaupum Harðar Kristjánssonar og Maríu Hrannar Gunnarsdóttur á 31 ha landspildu, Lýtingi 2 (landnúmer 239373), lóðar úr landi Marteinstungu (landnúmer 165127), Rangárþingi ytra.

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við ofangreind kaup.

Samþykkt samhljóða.

11.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57

2512003F

  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd hefur yfirfarið áherslur í reglum sveitarfélagsins um lóðaúthlutun og leggur til að sveitarstjórn staðfesti þær. Bókun fundar Málið tekið sérstaklega fyrir undir lið 1 í fundargerð sveitarstjórnar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd hefur yfirfarið áherslur í samþykkt sveitarfélagsins um byggingargjöld og leggur til að sveitarstjórn staðfesti þær. Bókun fundar Málið tekið sérstaklega fyrir undir lið 2 í fundargerð sveitarstjórnar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðanna og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðanna og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að þar sem breyting á landnotkun í aðalskipulagi er yfirstandandi verði fallið verði frá kynningu lýsingar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.
    Nefndin leggur því til að farið verði um málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem staðsetning dæluhússins er ekki talin geta valdið öðrum en lóðarhafa 202 ónæði telur nefndin ekki ástæðu til grenndarkynningar.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd tekur undir að gera þurfi breytingar á deiliskipulagi fyrir hesthúsasvæðið þar sem aðkomu- og umferðarmál innan svæðis verða endurhannaðar. Nefndin leggur til að formanni ásamt skipulagsfulltrúa verði falið að sitja fundi stýrihóps ásamt fulltrúum hestamannafélagsins um lausn mála. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að skipulagsfulltrúa og sveitarstjóra verði falið að funda með umsækjanda um stöðu lóðarinnar og næstu skref. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd hefur móttekið tilkynningu Landsvirkjunar og telur ekki ástæðu til endurútgáfu framkvæmdaleyfis þótt framkvæmdum seinkar aðeins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd telur að umrædd framkvæmd sé ekki til þess fallin að hafa neikvæð áhrif á umhverfið og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Skipulags- og umferðarnefnd leggur því til að veitt verði framkvæmdaleyfi til umsækjanda á grundvelli 5. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og felur skipulagsfulltrúa að afgreiða málið. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að framlögð mörk sveitarfélaganna verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir og athugasemdir Skipulagsstofnunar. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar í samræmi við 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010 en áður verði hún kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. sömu laga. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að farið verði um málsmeðferð eins og um óverulega breytingu sé að ræða í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem tillagan hefur engin áhrif á aðra en málsaðila og sveitarfélagið. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar í samræmi við 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010 en áður verði hún kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. sömu laga. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu að sinni og felur formanni og skipulagsfulltrúa að funda með umsækjanda og ráðgjafa hans.

    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin áréttar að Steinslækur getur ekki fallið undir skilgreiningu um að vera á og falli því ekki undir kvaðir í skipulagsreglugerð um fjarlægð milli hans og fyrirhugaðra bygginga. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur til að tillagan verði auglýst samhliða tillögu að breytingum á aðalskipulagi fyrir sama svæði þegar heimild til þess liggur fyrir. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd telur að þrátt fyrir tillögu að nýrri staðsetningu hafi ekki náðst fram nauðsynleg sátt um staðsetningu umrædds mannvirkis á svæðinu og leggur til að fundað verði með fulltrúum Íslandsturna áður en lengra er haldið þar sem meðal annars væri óskað upplýsinga um gæði fjarskiptasambands á svæðinu og metin þörf á úrbótum. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd tekur undir hugmyndir umsækjanda um nýjar útfærslur á endalóðum og telur heppilegt að umsækjendur fái vilyrði fyrir lóðunum eftir breytingar á deiliskipulagi.
    Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að gerðar verði breytingar á gildandi deiliskipulagi þar sem á endalóðum við Kjarröldu, Lyngöldu og Melöldu, þar sem heimildir verði settar inn til byggingar á par- eða raðhúsum eða tveggja hæða fjölbýli með 8-10 íbúðum. Aðkoma yrði beggja megin frá. Að auki verði Melalda og Móalda breikkuð um einn metra. Móaldan verði gerð að fjölbýlishúsagötu í stað einbýlishúsa. Einnig verði götur gerðar að botnlangagötum og tenging við ofanbyggðaveginn felldar út.
    Bókun fundar Lagt er til að umsækjandi fái vilyrði fyrir lóðunum með þeim fyrirvörum að breytingar verði á deiliskipulagi en að öðru leyti er afgreiðslu frestað.

    Jafnframt sé sveitarstjóra falið að boða til fundar með sveitarstjórn, skipulags- og umferðarnefnd og ráðgjöfum deiliskipulagsins til að fara yfir fyrirhugaðar breytingar á deiliskipulaginu.

    IPG tók til máls.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 57 Skipulags- og umferðarnefnd telur ekki forsendu að sinni til að breyta hugmyndum um notkun lóðarinnar við Miðvang 7. Nefndin telur mun heppilegra að uppbygging á hraðhleðslu í tengslum við starfsemi Kanslarans verði innan lóðar Kanslarans. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að fara yfir lóðamál með umsækjanda og finna heppilega staðsetningu á hraðhleðslu. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.

12.Framkvæmda- og eignanefnd - 8

2511018F

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

BG tók til máls.

13.Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 26

2512001F

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

14.Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 19

2511012F

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

15.Stjórnarfundir Lundar 2025

2501037

Fundargerð 17. fundar stjórnar. Liður 4 til afgreiðslu.
Sveitarstjórn tekur undir með stjórn Lundar að haldinn verði fundur með fulltrúum stýrihópsins til að fá skýrari mynd af því hvað felist í þessum breytingum áður en afstaða verður tekin til þeirrar tillögu sem liggur fyrir.

Að öðru leyti er fundargerðin lögð fram til kynningar.

Samþykkt samhljóða.

16.Fundargerðir Fjallskiladeildar Holtamannaafréttar 2025

2508057

Fundargerð 10. fundar frá 22. desember s.l. Liður 1 þarfnast afgreiðslu.
Lagt til að tillaga um álagningu fjallskila vegna ársins 2025 á Holtamannaafrétti verði samþykkt en að öðru leyti er fundargerðin lögð fram til kynningar.

Samþykkt samhljóða.

17.Fundargerðir stjórnar SÍS - 2025

2502008

Fundargerð 900. og 901. funda stjórnar.
Lagt fram til kynningar.

18.Stjórnarfundir 2025 - Bergrisinn bs

2501062

Fundargerð 90. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.

19.Fundargerðir stjórnar 2025 - Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum

2501075

Fundargerð 87. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.

20.Málþing um stefnu í málefnum fatlaðs fólks til framtíðar

2512119

Fundarboð Sambands íslenskra sveitarfélaga þann 23. janúar n.k.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:00.