54. fundur 11. mars 2026 kl. 08:15 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir varaoddviti
  • Eggert Valur Guðmundsson oddviti
  • Þórunn Dís Þórunnardóttir aðalmaður
  • Eydís Þ. Indriðadóttir aðalmaður
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson aðalmaður
  • Björk Grétarsdóttir aðalmaður
  • Viðar M. Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Oddviti bauð fundarmenn velkomna og lagði til að við dagskrána myndi bætast eitt mál, liður 14, fundargerð framkvæmda- og eignanefndar frá 10. mars s.l.

Það var samþykkt samhljóða.

1.Samantekt sveitarstjóra og eða oddvita

2602008

Sveitarstjóri fór yfir minnisblað um ýmis mál sem hafa verið unnin milli sveitarstjórnarfunda.

2.Auka aðalfundur SOS - breyting á samþykktum og viðauki

2512097

Seinni umræða
Lögð fram tillaga að breytingum á samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands (SOS) til seinni umræðu

Lagt til að tillaga að breytingum á samþykktum SOS verði samþykkt.

Samþykkt samhljóða.

3.Samstarfssamningur við KFR - viðauki vegna gervigrasvallar

2601061

Lagður fram viðauki við þjónustusamning við KFR vegna gervigrasvallarins á Hellu.

Lagt til að viðaukinn sé samþykktur og sveitarstjóra falið að
undirrita hann.

IPG tók til máls.

Samþykkt samhljóða.

4.Fyrirspurnir fulltrúa D-lista

2408013

Lagðar fram níu fyrirspurnir frá fulltrúum D-lista.

1.Fulltrúar D-lista óska eftir að sveitarstjóra verði falið að láta taka saman yfirlit yfir þær aðgerðir sem sveitarfélagið hefur ráðist í á kjörtímabilinu í þágu fatlaðra, s.s. aðgengismál og aðrar aðgerðir sem framkvæmdar hafa verið beint af sveitarfélaginu. Eins er óskað eftir upplýsingum um hvort eitthvað hafi verið unnið af gögnum fyrir Bergrisann varðandi húsnæðisþarfir fatlaðra einstaklinga í sveitarfélaginu, ekki síst í ljósi þess að sú vinna var ekki unnin að tillögu D-listans í upphafi kjörtímabils sem leiddi m.a. til þess að húsnæðisuppbyggingin í sýslunni fór annað. Óskað er eftir að gögnin verði lögð fram á næsta reglubundna fundi sveitarstjórnar.

IPG tók til máls.

Lagt til að fela sveitarstjóra að kalla eftir þessum upplýsingum.

Samþykkt samhljóða.

2. Í byggðarráði hinn 25. júní 2025 var tillögu D-lista um að ráðast í úttekt á byggingastigi húsnæðis í sveitarfélaginu frestað þangað til nýr byggingafulltrúi yrði ráðinn til starfa. Nú hefur hann verið við störf í nokkra mánuði og því er óskað upplýsinga um hvernig umrædd vinna gangi og hvenær megi búast við að henni ljúki.

IPG tók til máls.

Lagt til að fela sveitarstjóra að kalla eftir þessum upplýsingum.

Samþykkt samhljóða.

3. Hinn 22. september 2023 lagði D-listinn fram tillögu varðandi göngustíga á bökkum Ytri-Rangár. Á-listinn lagði fram breytingatillögu um að einnig yrði farið í úttekt á gangstéttum í þorpinu og lagfæringum á þeim forgangsraðað. Var tillaga D-listans með breytingartillögu samþykkt. Óskað er eftir því að lögð verði fram umrædd úttekt og að sveitarstjóra verði falið að leggja fram yfirlit yfir þær viðgerðir sem ráðist var í og upplýsingar um kostnað við umræddar lagfæringar, sundurliðað eftir árum 2022-2025.

IPG tók til máls.

Lagt til að fela sveitarstjóra að kalla eftir þessum upplýsingum.

Samþykkt samhljóða.

4.Fulltrúar D-lista óska eftir að sveitarstjóra verði falið að leggja fram yfirlit yfir allar lóðir í eigu sveitarfélagsins sem eru tilbúnar skv. skipulagi en ekki hefur verið úthlutað. Þá er jafnframt óskað eftir því að sveitarstjóra verði falið að leggja fram yfirlit yfir þær íbúðarlóðir sem úthlutað hefur verið á yfirstandandi kjörtímabili, annars vegar lóðir sem enn eru á byggingastigi og hins vegar lóðir sem eru fullbyggðar. Óskað er eftir að yfirlitin verði lögð fram á næsta reglubundna fundi sveitarstjórnar.

IPG tók til máls.

Lagt til að fela sveitarstjóra að kalla eftir þessum upplýsingum.

Samþykkt samhljóða.

5. Fulltrúar D-lista óska eftir að sveitarstjóra verði falið að láta taka saman eftirfarandi upplýsingar og leggja fram á næsta reglulega fundi sveitarstjórnar:
a) Þróun starfsmannafjölda sveitarfélagsins brotið niður á deildir, annars vegar fjöldi starfa og hins vegar fjöldi stöðugilda á árunum 2022-2025.
b) Þróun starfsmannamála hjá Odda bs. Brotið niður á starfsstöðvar, annars vegar fjöldi starfa og hins vegar fjöldi stöðugilda á árunum 2022-2025.

IPG tók til máls.

Lagt til að fela sveitarstjóra að kalla eftir þessum upplýsingum.

Samþykkt samhljóða.

6. Fulltrúar D-lista óska eftir að sveitarstjóra verði falið að leggja fram upplýsingar um styrkvegafé frá Vegagerðinni á yfirstandandi kjörtímabili. Hversu mikið fé fékk sveitarfélagið úthlutað ár hvert og hvernig var fénu ráðstafað? Á yfirliti komi öll verkefni fram ásamt kostnaði við þau.

IPG tók til máls.

Lagt til að fela sveitarstjóra að kalla eftir þessum upplýsingum.

Samþykkt samhljóða.

7. Fulltrúar D-lista í sveitarstjórn Rangárþings ytra óska eftir að sveitarstjóra verði falið að leggja fram á fundi sveitarstjórnar í apríl 2026 sundurliðun á aðkeyptri lögfræðiþjónustu sveitarfélagsins á árunum 2022-2025. Þar verði tilgreindur lögfræðikostnaður við hvert ár, hvers eðlis þjónustan var og við hvaða lögfræðing/lögfræðistofu viðskiptin áttu sér stað. Heildarkostnaður hvers árs komi fram í samantektinni og staða viðkomandi mála, hvort þeim sé lokið eða enn í gangi.

IPG tók til máls.

Lagt til að fela sveitarstjóra að kalla eftir þessum upplýsingum.

Samþykkt samhljóða.

8.Fulltrúar D-lista óska eftir að sveitarstjóra verði falið að leggja fram yfirlit yfir verkefni persónuverndarfulltrúa á síðasta ári. Lagt verði mat á hverju sá samningur sem gerður var í desember 2024 hefur skilað sveitarfélaginu og að upplýst verði hvað samningurinn kostaði á árinu 2025.

IPG tók til máls.

Lagt til að fela sveitarstjóra að kalla eftir þessum upplýsingum.

Samþykkt samhljóða.

9. Fulltrúar D-lista óska eftir að upplýst verði í sveitarstjórn hvenær áætlað sé að 2. áfangi skólahúsnæðis við Grunnskólann á Hellu verði tilbúinn til notkunar og hvenær áformað sé að taka húsnæðið í notkun.

IPG tók til máls.

Vísað er til bókunar á fundi framkvæmda- og eignanefndar þann 10. mars s.l: Framkvæmdum innanhúss verður að mestu lokið um páska. Samhliða verður unnið að bráðabrigða leikskólalóð og öðrum lóðafrágangi. Gert er ráð fyrir að leikskólinn geti hafið störf í nýju húsnæði 14. apríl og mötuneytið samhliða. Jafnframt er gert ráð fyrir listgreinastofa grunnskólans geti flutt á svipuðum tíma.

5.Samráðsgátt 2025-2029 - Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið

2502025

Umsagnarbeiðni Innviðarráðuneytis í samráðsgátt um drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignaskatti.
Lögð fram til kyninngar umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um drögin og umsögn Rangárþings ytra en henni var skilað í samráðsgátt þann 6. mars s.l.

IPG og JGV tóku til máls.

Sveitarstjórn óskar eftir fundi með innviðaráðherra þar sem farið yrði yfir hagsmuni sveitarfélagsins í málinu.

6.2026 málasafn - Til umsagnar frá nefndarsviði Alþingis

2601062

Umsagnarbeiðnir Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, varnir gegn sjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón) og sveitarstjórnarlögum,
Lagt fram til kynningar.

7.Byggðarráð Rangárþings ytra - 46

2601011F

Fundargerð byggðarráðs lögð fram og staðfest.
  • Byggðarráð Rangárþings ytra - 46 Lögð fram umsókn Helja Stay ehf um leigu á rekstri tjaldsvæðis og íþróttahúss í Þykkvabæ sumarið 2026 og drög að leigusamningi.

    Byggðarráð leggur til að samið verði við Helja Stay ehf um leigu sumarið 2026 og sveitarstjóra falið að ganga frá samningi.

    Samþykkt samhljóða.

    Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.

    Samþykkt samhljóða.

8.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 60

2602005F

Fundargerð skipulags- og umferðarnefndar lögð fram og staðfest.

9.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 61

2602008F

Fundargerð skipulags- og umferðarnefndar lögð fram og staðfest.

10.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62

2602011F

  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagðar leiðréttingar á lóðamörkum og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62 Skipulags- og umferðarnefnd telur að áform umsækjanda séu í samræmi við stefnu aðalskipulagsins varðandi landnotkun en þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag skuli byggingaráformin grenndarkynnt. Grenndarkynningu skal senda til ábúenda að Kirkjubæ, nærliggjandi lóðarhafa auk rekstraraðila golfvallarins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62 Skipulags- og umferðarnefnd telur að áform umsækjanda séu í samræmi við stefnu aðalskipulagsins varðandi landnotkun en þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag skuli byggingaráformin grenndarkynnt. Grenndarkynningu skal senda til lóðareigenda allra lóða í kring. Umsækjanda er jafnframt bent á að svo virðist sem unnið hafi verið að gerð deiliskipulags fyrir svæðið á árinu 2006 en það hafi aldrei tekið gildi með formlegum hætti og því ekkert deiliskipulag í gildi. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62 Skipulags- og umferðarnefnd telur að áform umsækjanda þurfi að vera í fullu samræmi við gildandi deiliskipulag svæðisins. Unnið er að breytingum á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið og mælist nefndin til að staðsetning og skilgreining á umræddum geymslum verði færð inn í þá vinnu. Nefndin getur ekki fallist á að um stöðuleyfi verði að ræða og hafnar því erindinu. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62 Skipulags- og umferðarnefnd ítrekar að þau skipulagsáform sem kynnt hafa verið voru í formi forkynningar og voru eingöngu gerð þannig til að koma í veg fyrir óþarfan og íþyngjandi kostnað fyrir umsækjendur. Nefndin frestar afgreiðslu erindisins í ljósi fjölda innsendra athugasemda og felur skipulagsfulltrúa að kynna umsækjendum fram komnar athugasemdir áður en lengra er haldið. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að unnið verði að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 þar sem ný lóð verði gerð að verslunar- og þjónustulóð í stað núverandi landbúnaðarnota. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem útleiga gistingar hefur verið rekin um árabil á Kaldbak og breyting á landnotkun hafi engin áhrif á aðra en eigendur og sveitarfélagið. Farið skuli því um málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynning skal standa í a.m.k. 2 vikur. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62 Lagt fram til kynningar. Skipulagsfulltrúa verði falið að undirbúa umsögn sem lögð yrði fram á næsta fundi. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62 Skipulags- og umferðarnefnd hefur fjallað um fram komnar umsagnir. Nefndin telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á fyrirhugaðri staðsetningu mastursins. Nefndin leggur til að staðsetning verði samþykkt og skilmálum fyrir mastrið verði gerð skil í fyrirhuguðu deiliskipulagi fyrir svæðið. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.

    MHG víkur sæti við afgreiðslu og meðferð málsins.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að gerð verði breyting á gildandi deiliskipulagi fyrir Öldur III, dags. 7.11.2018 m.s.br. Nefndin telur að gera þurfi ráð fyrir allt að 10 íbúða fjölbýshúsum á einni til tveimur hæðum í stað einbýlishúsa norðan við Móöldu og einnig við enda Móöldu að sunnanverðu og við enda Melöldu, að breikka þurfi Melöldu og Móöldu um a.m.k. einn metra, að Kjarralda, Lyngalda og Melalda verði gerðar að botngötum og að gert verði ráð fyrir parhúsum í stað einbýlishúsa við enda Kjarröldu og Melöldu. Jafnframt verði Móaldan gerð í sama stíl og Langaldan m.t.t. breiddar og mögulegra gangstétta beggja megin. Skipulagsfulltrúa verði falið að hefja vinnu við þessar breytingar sem fyrst. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    BG, IPG, ÞDÞ og EÞI tóku til máls.

    Tekið stutt fundarhlé.

    Samþykkt með fjórum atkvæðum. IPG, EÞI og BG sitja hjá.

    Tekið stutt fundarhlé.

    Bókun D-lista: Fulltrúar D-lista harma að fulltrúar Á-listans hafi ekki viljað taka stærri skref í skipulagi þessa svæðis. Á fundinum kom fram að flýta þyrfti málinu vegna þrýstings frá þriðja aðila um að fá að byggja á svæðinu hús sem ekki samræmast núverandi skipulagi. Það eitt og sér er alvarlegt af skipulagsvald sveitarfélaga er ekki meira virði en svo að aðrir stýri þar för en sveitarstjórnin. Þá telja fulltrúar D-lista hæpið að það standist að ekki megi ráðast í breytingar á skipulagi hesthúsahverfisins fyrr en búið verði að byggja upp ákveðið hlutfall af þegar skipulögðum svæðum, enda hefur sveitarfélagið nýverið lokið við skipulagsferli á Bjargshverfi sem er innan þéttbýlisins. Jafnframt telja fulltrúar D-lista eðlilegt að næsta skref í þessu ferli ætti að vera grenndarkynning með íbúum. Loks telja fulltrúar D-lista eðlilegt að fyrir liggi skrifleg úttekt á því hvaða áhrif þessi uppbygging muni hafa á fráveitukerfið og ekki síst í því ljósi hefði verið eðlilegt að skoða byggingamagn á öllu umræddu svæði m.t.t. þess hvort og þá hvaða breytingar þyrfti að gera á fráveitukerfinu svo það ráði við uppbyggina til lengri tíma. Því lögðu fulltrúar D-lista til að málinu yrði frestað og nefndinni yrði falið að fjalla um ofangreind atriði áður en haldið yrði áfram með málið. (IPG, EÞI, BG).

    Bókun Á-lista: Umræddar breytingar hafa fengið mikla umfjöllun í Skipulags- og umferðarnefnd og á vinnufundum með fagaðilum. Um er að ræða tillögu að breytingu á deiliskipulagi til að koma á móts við eftirspurn eftir fjölbreyttari búsetukostum og þess má geta að fulltrúar D-lista í Skipulags- og umferðarnefnd hafa stutt þessi áform innan nefndarinnar. Hin eiginlega deiliskipulagsvinna á eftir að fara fram og er hugsanlegt að tillagan taki breytingum í því ferli. Kallað verður ef.tir umsögnum þegar endanleg tillaga liggur fyrir og því ekki útilokað að breytingar verði á fyrirliggjandi áformum. (EVG, MHG, ÞDÞ, VMÞ)
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir og athugasemdir. Nefndin telur að gera verði frekari grein fyrir þeim þáttum sem snúa að mótvægisaðgerðum vegna mengunarhættu frá baðlóni auk þess að skilgreina þurfi betur hæðir húsa að teknu tilliti til mögulegrar flóðahættu úr Ytri-Rangá. Nefndin óskar eftir fundi með umsækjendum og verði hann á næsta reglulega fundi. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62 Skipulags- og umferðarnefnd áréttar að útgáfa framkvæmdaleyfis byggir á því að framkvæmd sé í samræmi við gildandi skipulagsáætlanir og að málsmeðferð, gagnaöflun og ákvörðunartaka fari að lögum og reglum um skipulagsmál og leyfisveitingar. Nefndin staðfestir að fyrirhugaður vegur er ekki sýndur á gildandi aðalskipulagi og að ekkert deiliskipulag liggur fyrir um áformin. Af þeim sökum telur nefndin ekki unnt að ljúka efnislegri afgreiðslu umsóknar um framkvæmdaleyfi á þessu stigi.

    Umsókn um framkvæmdaleyfi er tekin til umfjöllunar en afgreiðslu hennar er frestað þar til skýrt liggur fyrir nauðsynleg breyting á aðalskipulagi og eftir atvikum nánari skipulagsheimildir. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að undirbúa meðferð um breytingu á aðalskipulagi vegna vegstæðis og leggja fram tillögu um næstu skref í málinu í samræmi við lögbundið ferli. Nefndin leggur ríka áherslu á að ítrasta samráðs verði gætt áður en tekin verður efnisleg afstaða til skipulagsbreytingar og/eða leyfisveitinga, bæði gagnvart landeigendum og öðrum hagsmunaaðilum, og að leitað verði umsagna viðeigandi stjórnvalda og stofnana eftir eðli máls.

    Áður en málið kemur aftur til efnislegrar afgreiðslu skal liggja fyrir fullnægjandi lýsing á framkvæmdinni, þ.m.t. lega og útfærsla vegstæðis, tenging við vegakerfi, áhrif á landnotkun og umhverfi, ásamt öðrum atriðum sem nauðsynleg eru til að unnt sé að leggja mat á samræmi við skipulag, öryggi og hagsmuni. Að undangenginni lögbundinni málsmeðferð, samráði og nauðsynlegum kynningum mun nefndin taka málið upp að nýju og meta hvort og með hvaða skilyrðum sé unnt að veita framkvæmdaleyfi.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 62 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsókn aðila og leggur til við sveitarstjórn að vilyrði verði veitt fyrir lóðinni að því gefnu að breyting á deiliskipulagi gangi eftir. Jafnframt er litið svo á að umsækjerndur falli frá umsókn sinni að lóðunum við Kjarröldu og Lyngöldu varðandi sambærilega framkvæmd þar sem breytt deiliskipulag gerir ekki ráð fyrir tveggja hæða byggingum þar. Bókun fundar Lagt til að tillaga skipulags- og umferðarnefndar um að G.G. Tré ehf fái vilyrði fyrir lóðinni í enda Melöldu til byggingar fjölbýli á tveim hæðum með þeim fyrirvara að tillaga að deiliskipulagsbreytingu verði samþykkt. Gert verði ráð fyrir að umsækjandi falli þá frá umsóknum sínum að lóðunum í enda Lyngöldu og Kjarröldu.

    IPG og EÞI tóku til máls.

    Samþykkt með fjórum atkvæðum. IPG, EÞI og BG sitja hjá.

11.Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 20

2602002F

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

12.Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 20

2602010F

Fundargerðin að öðru lagi lögð fram til kynningar.
  • 12.6 2602063 Víkingurinn 2026
    Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 20 Víkingurinn er keppni sterkustu manna landsins og fer fram dagana 24.?26. júlí 2026. Keppnin fer fram í 4 sveitarfélögum og henni er sjónvarpað á RÚV.
    Forsvarsmenn keppninnar óska eftir gistiaðstöðu, einni máltíð og styrk upp á kr. 250.000.
    Nefndin tekur vel í beiðnina og samþykkir fyrir sitt leyti að taka á móti þeim en óskar jafnframt eftir því, ef af verður, að myndskeið úr sveitarfélaginu fylgi útsendu efni. Nefndin getur aðstoðað við að finna hentuga staði til upptöku eða jafnvel útvegað myndefni að hluta til.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefndar verði samþykkt.

    JGV, BG og IPG tóku til máls.

    Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.

13.Oddi bs - 47

2602004F

Fundargerðin að öðru lagi lögð fram til kynningar.
  • Oddi bs - 47 Stjórn Odda bs. óskar Grunnskólanum á Hellu og starfsfólki hans til hamingju með Menntaverðlaun Suðurlands 2025 fyrir verkefnið Íslenskuskólinn. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur undir bókun stjórnar Odda bs og óskar Grunnskólanum á Hellu til hamingju með verðlaunin.

14.Framkvæmda- og eignanefnd - 10

2602001F

  • Framkvæmda- og eignanefnd - 10 Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda vegna byggingu á 2. áfanga við stækkun Grunnskólans á Hellu. Framkvæmdum innanhúss verður að mestu lokið um páska. Samhliða verður unnið að bráðabrigða leikskólalóð og öðrum lóðafrágangi.

    Gert er ráð fyrir að leikskólinn geti hafið störf í nýju húsnæði 14. apríl og mötuneytið samhliða. Jafnframt er gert ráð fyrir listgreinastofa grunnskólans geti flutt á svipuðum tíma.
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Framkvæmda- og eignanefnd - 10 Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda vegna byggingu á leikskóla á Hellu.

    Lögð fram niðurstaða útboðs fyrir burðarvirki leikskólans. Lagt til að ganga að tilboði Steypustöðvarinnar sem lægstbjóðanda að fjárhæð kr. 366.732.289 sem er um 3% yfir kostnaðaráætlun. Sveitarstjóra falið að ganga frá samningi við lægstbjóðanda. Miðað er við að verkþætti Steypustöðvarinnar verði lokið í lok ágúst.
    Bókun fundar Sveitarstjórn leggur til að samið verði við lægstbjóðanda, Steypustöðina, og sveitarstjóra falið að undirrita samning.

    Samþykkt samhljóða.

15.Fundargerðir stjórnar Félag- og skólaþjónustu Rangárv. og V.Skaft.-2025

2501085

Fundargerð 95. fundar stjórnar
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

16.Fundargerðir stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárv. og V.Skaft. -2026

2601358

Fundargerð 97. fundar stjórnar.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

17.Fundargerðir stjórnar SÍS 2026

2601033

Fundargerðir 993. og 994. funda stjórnar.
Lagt fram til kynningar.

18.Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 2026

2601035

Fundargerð 252. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.

19.Aðalfundarboð LS 2026

2603012

Fundarboð á aðalfund LS þann 20. mars nk.
Lagt fram til kynningar.

20.Aðalfundur Visit South Iceland ehf

2603030

Aðafundarboð þann 23. mars nk.
Lagt fram til kynningar.

21.Áskorun frá Siglingasambandi Íslands

2603022

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:00.