1.Samantekt sveitarstjóra og/eða oddvita
2602008
Sveitarstjóri fór yfir minnisblað um ýmis mál sem hafa verið unnin milli sveitarstjórnarfunda.
2.Næstu fundir sveitarstjórnar
2403024
Lagt er til að aukafundur verði haldinn í sveitarstjórn þann 29. apríl nk. í kjölfar byggðarráðsfundar þar sem fjallað verður um ársreikning sveitarfélagsins fyrir 2025 til fyrri umræðu. Þar sem um aukafund er að ræða verður fundurinn ekki sendur út í beinni útsendingu.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
3.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 63
2603009F
Fundargerð skipulags- og umferðarnefndar lögð fram og staðfest.
4.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64
2603012F
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við framsetta markalínu í samræmi við samkomulag beggja aðila og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í fyrirliggjandi gögn vegna landskipta, en vísar öðru leyti í bókun nefndarinnar frá nóvember 2025 í máli um stækkun lóðarinnar Faxaflata 4, L233063. Nefndin leggur til að málinu sé frestað. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að tillaga umsækjanda skuli grenndarkynnt hagsmunaaðilum á svæðinu með áherslu á íbúðasvæðið ÍB37. Nefndin leggur áherslu á að gengið verði frá deiliskipulagi fyrir svæðið sem fyrst. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að tillaga umsækjanda skuli grenndarkynnt hagsmunaaðilum á svæðinu með áherslu á svæðið milli Landvegar og frístundasvæðisins F37. Nefndin leggur áherslu á að gengið verði frá deiliskipulagi fyrir svæðið sem fyrst. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskyldufyrirspurnir, matsskylduákvarðanir og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Vegagerðarinnar með framkvæmdaleyfisumsókninni. Þá liggja fyrir drög að sameiginlegri greinargerð Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem leyfisveitenda vegna framkvæmdarinnar frá 8. apríl 2026 um þau atriði sem meta skal við afgreiðslu framkvæmdaleyfisumsóknar skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, 5. mgr. 13. gr. eldri laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, og 26. gr. laga nr. 111/2021, með hliðsjón af þeim kröfum sem gerðar eru til greinargerða leyfisveitanda vegna matsskyldra framkvæmda skv. 27. gr. laga nr. 111/2021 og 13. gr. eldri laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, þar sem fram koma skilyrði og mótvægisaðgerðir vegna framkvæmdarinnar.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi drög að greinargerð leyfisveitanda vegna framkvæmdarinnar frá 8. apríl 2026 verði samþykkt í endanlegri útgáfu sinni sem umsögn sveitarstjórnar um framkvæmdaleyfisumsóknina og að fallist verði á útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda lagningar Búðafossvegar og nýrrar brúar yfir Þjórsá, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Vegagerðarinnar og önnur fyrirliggjandi gögn.
Nefndin telur brýna nauðsyn bera til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna með vísan til þess að afar áríðandi sé að tryggðar séu greiðar og öruggar samgöngur á þessu svæði og á milli sveitarfélaganna, sem er grundvallarmarkmið framkvæmdarinnar. Nefndin telur tilgang framkvæmdarinnar þýðingarmikinn vegna almannaheilla. Einnig telur nefndin að í fyrirliggjandi gögnum sé næg grein gerð fyrir framkvæmdinni eins og hún liggur fyrir umfram aðra valkosti og telur ekki með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum og telur tilgang framkvæmdarinnar vega þyngra en þau umhverfisáhrif sem framkvæmdin hefur.
Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Þar sem framkvæmdin er tilkynningaskyld skv. lið 3.17 í viðauka í lögum nr. 111/2021 skal liggja fyrir ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdar áður en framkvæmdaleyfi er gefið út. Álit skipulagsstofnunar liggur ekki fyrir.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að erindinu verði frestað þar til álit skipulagsstofnunar liggur fyrir, leyfi Fiskistofu liggur fyrir og greining framkvæmdaaðila skv. 1. mgr. 26. gr. laga nr. 111/2021 liggi einnig fyrir. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi að teknu tilliti til 5. greinar reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Nefndin leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að ræða við Vegagerðina um lagningu reiðleiðar samhliða framkvæmdinni. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi að teknu tilliti til 5. greinar reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að gerð verði breyting á aðalskipulagi og texti leiðréttur í samræmi við framlögð gögn. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða og verði því farið með málið í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breytingin hefur óveruleg áhrif á aðra en hlutaðeigandi lóðareigendur innan Verslunar- og þjónustusvæðisins VÞ41. Nefndin leggur til að breytingin verð kynnt nærliggjandi hagsmunaaðilum. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins en tilheyrandi breyting er hafin á aðalskipulagi. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.
Nefndin leggur því til að farið verði um málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en tillagan skuli jafnframt grenndarkynnt öðrum hagsmunaaðilum á svæðum F43 og F82. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Nefndin telur að þegar kemur að auglýsingu tillögu verði hún jafnframt grenndarkynnt til annarra lóðarhafa og hagsmunaaðila innan svæðis. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að gerð verði breyting á sveitarfélagamörkum í samræmi við meðfylgjandi tillögu. Nefndin leggur til að öllum aðliggjandi lóðar- og jarðareigendum sem að mörkunum koma verði send tillagan og verði um grenndarkynningu að ræða. Ef kostur er skal kynning verða samræmd við Skeiða- og Gnúpverjahrepp. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir og athugasemdir Skipulagsstofnunar. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar í samræmi við 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010 en áður verði hún kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. sömu laga. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að sýndar leiðir verði samþykktar og færðar undir aðalskipulag við endurskoðun þess. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að heimila Landssambandi hestamanna aðgang að umræddum upplýsingum til birtingar á kortasjá félagsins og til uppfærslu á kortasjá sveitarfélagsins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Lagt fram til kynningar. Nefndin leggur til að haldinn verði vinnufundur um útfærslu skipulags svæðisins Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt og skipulags- og umferðarnefnd og sveitastjórn verði boðið á fundinn.
IPG tók til máls.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir lýsinguna til kynningar. Kynning skal standa fram til 30. apríl nk. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 64 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
5.Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 22
2603018F
Fundargerðin lögð fram og staðfest.
6.Búðafossvegur. Framkvæmdaleyfi
2510037
Lögð er fram umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Búðafossvegar (23) ásamt nýrri brú yfir Þjórsá.
Fyrirhuguð framkvæmd felst í lagningu um 7,4 km nýs vegar á milli Þjórsárdalsvegar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Landvegar í Rangárþingi ytra. Vegurinn mun heita Búðafossvegur og kemur til með að liggja frá nýju hringtorgi á Þjórsárdalsvegi um land Réttarholts og Minna-hofs, um nýja brú yfir Þjórsá og þaðan um land Vindáss og Minni-Valla að Landvegi. Búðafossvegur verður útfærður samkvæmt viðmiðum vegflokks C8 með tveimur 3,5 m breiðum akreinum og 0,5 m breiðum öxlum beggja megin. Heildarbreidd vegar er því 8,0 m og verður hámarkshraði vegarins 90 km/klst með áætlaðri umferð um 500 bifreiða daglega. Vegsvæði vegarins verður 40 m breitt, 20 m frá miðlínu í hvora átt. Um er að ræða nokkuð umfangsmikinn veg og brú yfir Þjórsá sem liggur um svæði sem er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi sveitarfélaganna beggja vegna árinnar. Rúmir 2 km munu liggja í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og um 5 km í Rangárþing ytra. Fyrirhugað hringtorg verður malbikað en annað yfirborð vegarins klætt. Yfir Þjórsá verður byggð 204 m löng tvíbreið stálbitabrú með steyptu gólfi í 5 m hæð yfir vatnsyfirborði árinnar og í fimm höfum; tveimur 36 m löngum og þremur 44 m löngum. Heildarbreidd brúar verður 11 m og frá nyrðri bakka Þjósár að sjálfri brúnni verður Búðafossvegur á um 140 m langri grjótvarðri fyllingu út í ána. Áætluð efnisþörf í framkvæmdina er tæplega 350.000 m3 sem verður fengið frá fjórum efnistökusvæðum og úr skeringum. Eina nýja náman sem opnuð verður vegna framkvæmdanna er Búðanáma sem verður staðsett rétt vestan fyrirhugaðs Búðafossvegar á norðurbakka Þjórsár.
Framkvæmdum er nánar lýst í greinargerð Vegagerðarinnar og öðrum fylgigögnum umsóknar.
Eftirtalin gögn eru lögð fram hjá nefndinni:
Greinargerð umsóknar framkvæmdaraðila, framkvæmdalýsing, ásamt viðbótarskjalaskrá
Teikningasett ásamt teikningaskrá
Teikning, yfirlitsmynd Búðafossvegar
Teikning, kennisnið Búðafossvegar C8
Teikning, kennisnið heimreiða og tenginga C7
Teikning, Búðafossvegur norðan Þjórsár
Teikning, Búðafossvegur sunnan Þjórsár
Teikning, Búðafossvegur girðingar reiðleið - 1611-170-32-A000-V05
Teikning, Búðafossbrú yfirlitsmynd og þversnið
Efla, minnisblað - Fyllingar í árfarveginum, dags. 6. júní 2023
Skipulagsstofnun, ákvörðun um mat á umhverfisáhrifum, dags. 28. ágúst 2009
Efla f.h. Vegagerðarinnar, vegna breytinga á námum, 15. júní 2022
Matsskyldufyrirspurn og greinargerð framkvæmdaraðila, dags. 17. nóvember 2025
Matsskylduákvörðun Skipulagsstofnunar, dags. 2. febrúar 2026
Leyfi Fiskistofu, dags. 29. febrúar 2024
Uppfærð skilagrein um áhrif framkvæmda á lífríki í vatni/umsögn Hafrannsóknarstofnunar, dags. 5. maí 2022
Umsögn Veiðifélags Þjórsár, dags. 21. júlí 2022
Verkís, straumfræðigreining, dags. 6. febrúar 2024
Umsögn Hafrannsóknarstofnunar um áhrif á vatnshlot, dags. 24. apríl 2024
Hafrannsóknarstofnun, stuðningsskjal áhrifamat vatnshlots
Fornleifar - FS895-22291, Búðafossvegur 2022
Fornleifar - FS933-22451, Vegna lagningar Búðafossvegar 2023
Fornleifar - FS983-23231, Tóftin við Markamýri og uppgröftur á tóft í Vindási 2024
Minjastofnun, staðfesting, dags. 7. október 2025
Framkvæmdaáætlun verkkaupa
Matsskyldufyrirspurn og greinargerð framkvæmdaraðila vegna stækkunar Búðanámu, dags. 27. janúar 2025
Skipulagsstofnun, ákvörðun um mat á umhverfisáhrifum vegna stækkunar Búðanámu, dags. 3. apríl 2025
Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu og greinargerð framkvæmdaraðila vegna efnistöku, dags. í júlí 2009, ásamt bréfi dags. 15. júlí 2009
Umsögn Náttúruverndarstofnunar til Rangárþings ytra, dags. 27. febrúar 2026
Svör Vegagerðarinnar vegna umsagnar Náttúruverndarstofnunar, dags. 10. mars 2026, auk yfirlitskorts vegna kortlagningar á náttúrufari í veglínu Búðafossvegar, sunnan Þjórsár
Umsögn Umhverfis- og Orkustofnunar, dags. 31. mars 2026
Greinargerð leyfisveitanda, dags. 10. apríl 2026.
Málið var tekið fyrir hjá umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd þann 7. apríl 2026 til umsagnar, sbr. 3. mgr. 61. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Umsögn nefndarinnar liggur fyrir hjá sveitarstjórn. Nefndin gerði ekki athugasemdir við útgáfu framkvæmdaleyfis vegna lagningar Búðafossvegar, en benti m.a. á mikilvægi þess að röskun yrði ekki á framkvæmdasvæðinu umfram það sem brýna nauðsyn bæri til og lagði áherslu á að leyfið yrði bundið þeim skilyrðum og mótvægisaðgerðum sem fram kæmu í fyrirliggjandi drögum að greinargerð leyfisveitanda frá 13. mars 2026 vegna framkvæmdarinnar skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fundargerð umhverfis-, hálendis- og samgöngunefndar hefur verið staðfest af sveitarstjórn.
Málið var tekið fyrir hjá skipulags- og umferðarnefnd þann 9. apríl 2026 þar sem lagt var til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi drög að greinargerð leyfisveitanda vegna framkvæmdarinnar frá 8. apríl 2026 skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 yrði samþykkt í endanlegri útgáfu sinni sem umsögn sveitarstjórnar um framkvæmdaleyfisumsóknina og að fallist yrði á útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda lagningar Búðafossvegar og nýrrar brúar yfir Þjórsá, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Vegagerðarinnar og önnur fyrirliggjandi gögn. Fundargerð skipulags- og umferðarnefndar hefur verið staðfest af sveitarstjórn.
Sveitarstjórn hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur gögn auk þess sem sveitarstjórn hefur látið taka saman greinargerð í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna framkvæmdarinnar, dags. 10. apríl 2026, sem liggur fyrir í gögnum málsins. Sveitarstjórn samþykkir framlagða greinargerð sveitarfélagsins, í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, 5. mgr. 13. gr. eldri laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, og 26. gr. laga nr. 111/2021, með hliðsjón af þeim kröfum sem gerðar eru til greinargerða leyfisveitanda vegna matsskyldra framkvæmda skv. 27. gr. laga nr. 111/2021 og 13. gr. eldri laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, sem umsögn sveitarstjórnar um framkvæmdarleyfisumsóknina og að í henni felist rökstuðningur sveitarstjórnar skv. 5. mgr. 61. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013 auk þess sem sveitarstjórn vísar til umsagnar umhverfis-, hálendis- og samgöngunefndar.
Sveitarstjórn hefur, eins og nánar er gerð grein fyrir og rakið í greinargerð sveitarfélagsins, kynnt sér umsókn og greinargerð framkvæmdaaðila og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskyldufyrirspurnir, matsskylduákvarðanir og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Vegagerðarinnar með framkvæmdaleyfisumsókninni.
Nefndin telur brýna nauðsyn bera til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna með vísan til þess að afar áríðandi sé að tryggðar séu greiðar og öruggar samgöngur á þessu svæði og á milli sveitarfélaganna, sem er grundvallarmarkmið framkvæmdarinnar. Nefndin telur tilgang framkvæmdarinnar þýðingarmikinn vegna almannaheilla. Einnig telur nefndin að í fyrirliggjandi gögnum sé næg grein gerð fyrir framkvæmdinni eins og hún liggur fyrir umfram aðra valkosti og telur ekki með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum og telur tilgang framkvæmdarinnar vega þyngra en þau umhverfisáhrif sem framkvæmdin hefur. Fundargerð skipulags- og umferðarnefndar hefur verið staðfest af sveitarstjórn.
Sveitarstjórn telur að í fyrirliggjandi gögnum sé sýnt fram á að brýna nauðsyn beri til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna og að í fyrirliggjandi gögnum sé einnig næg grein gerð fyrir framkvæmdinni umfram aðra valkosti og telur ekki með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum og telur tilgang framkvæmdarinnar vega þyngra en þau umhverfisáhrif sem framkvæmdin hefur, rétt eins og framangreindar nefndir á vegum sveitarfélagsins.
Með vísan til rökstuðnings í greinargerð/umsögn sveitarstjórnar í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, 5. mgr. 13. gr. eldri laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, og 26. gr. laga nr. 111/2021, samþykkir sveitarstjórn að gefið verði út framkvæmdaleyfi í samræmi við framlagða umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir Búðafossvegi, með þeim skilyrðum og mótvægisaðgerðum sem fram koma í greinargerð sveitarfélagsins og nánar er gerð grein fyrir í öðrum framlögðum gögnum, s.s. varðandi vöktun og frágang vegna framkvæmdarinnar. Skipulagsfulltrúi fer með eftirlit með framkvæmdinni og því að öllum skilyrðum sem framkvæmdinni hafa verið sett sé framfylgt og hún sé í samræmi við leyfi og fylgigögn leyfis. Skipulagsfulltrúi skal skila af sér skýrslu til sveitarstjórnar um framkvæmd eftirlitsins fyrir lok hvers áfanga framkvæmdarinnar. Verði skilyrðum vegna framkvæmdarinnar ekki framfylgt, ásigkomulag, frágangi, notkun eða umhverfi framkvæmdar eða eigin eftirliti framkvæmdaaðila ábótavant eða stafi af framkvæmdinni hætta skal skipulagsfulltrúi tilkynna sveitarstjórn þar um. Þá skal skipulagsfulltrúi gera grein fyrir frávikum og tilkynna framkvæmdaraðila skriflega um frávik og kröfur til úrbóta.
Sveitarstjórn felur skipulagsfulltrúa, að uppfylltum framlögðum skilyrðum, að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við framangreint, ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og ákvæði reglugerðar nr. 772/2012.

7.Hvammsvirkjun. Framkvæmdaleyfi vegna breytinga á Búrfellslínum 1 og 3.
2601357
Lögð er fram umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdum við færslu á Búrfellslínu 1 og tímabundins masturs í Búrfellslínu 3, dags. 28. janúar 2026, ásamt fylgiskjölum, til umsagnar, sbr. 3. mgr. 61. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.
Um er að ræða framkvæmd tengda Hvammsvirkjun Landsvirkjunar, nánar tiltekið tilfærslu á Búrfellslínu 1, tímabundna hækkun á Búrfellslínu 3 vegna tengingar flutningskerfisins við Hvammsvirkjun og færslu Búrfellslínu 1 frá stíflumannvirkjum ásamt nýju tengivirki.
Sótt er um framkvæmdaleyfi vegna eftirfarandi:
- Niðurrif núverandi mastra: Fjarlægja þarf 6 möstur í núverandi línu, þ.e. möstur 38-43, bæði möstur meðtalin. Við niðurrif verða möstrin felld í heilu lagi, bútuð niður, flutt í burtu og málmurinn sendur í endurvinnslu. Til verksins verða notaðar sömu vinnuvélar og þarf við reisingu nýrra mastra sem sett verða upp í kjölfarið. Á framkvæmdatíma verða reist 6 timburmöstur sem standa tímabundið og flytja raforku fram hjá framkvæmdasvæðinu og tryggja virkni flutningskerfisins á meðan á framkvæmdum stendur. Timburmöstrin verða fjarlægð að framkvæmdum loknum.
- Uppsetning á nýjum möstrum: Reist verða 7 ný möstur auk tveggja ramma sem taka á móti línunni og tengja við tengivirkið. Fjögur mastranna verða M- burðarmöstur úr stálgrind, 23,6-25,8 m á hæð, og þrjú þeirra fjórfótungsmöstur, 16 - 44 m á hæð. Þverslá eða brú í burðarmöstrum er 20 m löng.
- Slóðagerð: Línuvegir fylgja núverandi línum og munu aðkomu- og vinnuvegir vegna Hvammsvirkjunar nýtast við framkvæmdirnar. Út frá þessum vegum þarf að gera nýja aðkomuslóða að nokkrum nýjum möstrum. Alls eru nýir slóðar að möstrum um 450 m innan Rangárþings Ytra.
Fætur burðarmastra munu standa á forsteyptum undirstöðum og stög halda möstrunum í skorðum. Við jörð tengjast stög við stagfestur, ýmist steyptar staghellur eða bergbolta. Til að koma undirstöðum og stagfestum fyrir þarf að grafa, fleyga, sprengja eða bora. Fyrir undirstöður mastra er gert ráð fyrir að grafnar verði 2 m djúpar holur að stærð 2,5 x 3,0 m. Þar sem klöpp er við yfirborð er fleygað 1,0 - 1,5 m niður í klöppina og forsteyptri undirstöðu komið fyrir eða bergboltar festir ofan í klöppina og undirstaða steypt utan um þá. Þegar undirstöðum mastra og stagfestum hefur verið komið fyrir þarf að fylla að þeim með burðarhæfu efni. Uppgrafið efni verður nýtt að eins miklu leyti og mögulegt er.
Áætluð efnisþörf framkvæmdanna er um 6.500 m3 og er það einkum efni í línuslóða að möstrum, mastraplön og undirstöður mastra. Ekki verða opnaðar nýjar námur fyrir þessa framkvæmd heldur verður efnið fengið úr námum í nágrenninu sem hafa tilskilin leyfi.
Leyfið er eingöngu bundið við þær framkvæmdir sem tilgreindar eru í framkvæmdaleyfisumsókn og á teikningum sem fylgdu umsókninni og fjallað er um í umhverfismatinu. Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir nýju tengivirki í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Framkvæmdum er nánar lýst í greinargerð Landsnets og öðrum fylgigögnum umsóknar.
Eftirtalin gögn eru lögð fram hjá nefndinni:
Greinargerð umsóknar framkvæmdaraðila, framkvæmdalýsing og teikningar
Kort með línubreytingum teikningar og yfirlitsmynd af framkvæmd
Deiliskipulag Hvammsvirkjunar - stærri uppdráttur
Deiliskipulag Hvammsvirkjunar - lega lína
Deiliskipulag Hvammsvirkjunar ? greinargerð og umhverfisskýrsla
Umhverfismatsskýrsla frá 2003
Úrskurður Skipulagsstofnunar frá 2003
Úrskurður ráðherra frá 2004
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um endurskoðun frá 2015
Endurskoðað umhverfismat frá 2017
Álit Skipulagsstofnunar frá 2018
Leyfi Umhverfis- og orkustofnunar 2025, Bráðabirgðaheimild, dags. 11. ágúst 2025
Virkjunarleyfi ásamt heimild til breytingar á vatnshlotum frá Umhverfis- og orkustofnun, dags. 12. desember 2025
Umsögn Náttúruverndarstofnunar vegna umsóknarinnar frá 23. febrúar 2026
Greinargerð í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 13. mars 2026
Málið var tekið fyrir hjá skipulags- og umferðarnefnd þann 19. mars 2026 þar sem lagt var til við sveitarstjórn að greinargerð í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 13. mars 2026, yrði samþykkt sem umsögn sveitarstjórnar um framkvæmdaleyfisumsóknina og að fallist yrði á útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda vegna tilfærslu á Búrfellslínu 1, tímabundna hækkun á Búrfellslínu 3 vegna tengingar flutningskerfisins við Hvammsvirkjun og færslu Búrfellslínu 1 frá stíflumannvirkjum ásamt nýju tengivirki, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Landsnets og önnur fyrirliggjandi gögn. Fundargerð skipulags- og umferðarnefndar hefur verið staðfest af sveitarstjórn.
Málið var tekið fyrir hjá umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd þann 7. apríl 2026 til umsagnar, sbr. 3. mgr. 61. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Umsögn nefndarinnar liggur fyrir hjá sveitarstjórn. Nefndin gerði ekki athugasemdir við útgáfu framkvæmdaleyfis vegna fyrirliggjandi umsóknar Landsnets, en benti m.a. á mikilvægi þess að röskun yrði ekki á framkvæmdasvæðinu umfram það sem brýna nauðsyn bæri til og lagði áherslu á að leyfið yrði bundið þeim skilyrðum og mótvægisaðgerðum sem fram kæmu í fyrirliggjandi greinargerð skv. 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 13. mars 2026. Fundargerð umhverfis-, hálendis- og samgöngunefndar hefur verið staðfest af sveitarstjórn.
Sveitarstjórn hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur gögn auk þess sem sveitarstjórn hefur látið taka saman greinargerð í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna framkvæmdarinnar, dags. 13. mars 2026, sem liggur fyrir í gögnum málsins. Sveitarstjórn samþykkir framlagða greinargerð sveitarfélagsins, í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, sbr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sem umsögn sveitarstjórnar um framkvæmdarleyfisumsóknina og að í henni felist rökstuðningur sveitarstjórnar skv. 5. mgr. 61. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013 auk þess sem sveitarstjórn vísar til umsagnar umhverfis-, hálendis- og samgöngunefndar.
Sveitarstjórn hefur, eins og nánar er gerð grein fyrir og rakið í greinargerð sveitarfélagsins, kynnt sér umsókn framkvæmdaaðila auk greinargerðar, matsskýrslu og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskýrslu, úrskurði og ákvarðanir vegna umhverfismats framkvæmdanna, virkjunarleyfi ásamt heimild til breytingar á vatnshlotum og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Landsnets með framkvæmdaleyfisumsókninni.
Sveitarstjórn telur að í fyrirliggjandi gögnum sé sýnt fram á að brýna nauðsyn beri til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna og að í fyrirliggjandi gögnum sé einnig næg grein gerð fyrir framkvæmdinni umfram aðra valkosti. Tekur sveitarstjórn undir það mat Umhverfis- og orkustofnunar í fyrirliggjandi virkjunarleyfi ásamt heimild til breytinga á vatnshlotum, dags. 12. desember 2025, að ekki sé með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum, rétt eins og framangreindar nefndir á vegum sveitarfélagsins.
Með vísan til rökstuðnings í greinargerð/umsögn sveitarstjórnar í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, sbr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, dags. 13. mars 2026, samþykkir sveitarstjórn að gefið verði út framkvæmdaleyfi í samræmi við framlagða umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun, með þeim skilyrðum og mótvægisaðgerðum sem fram koma í greinargerð sveitarfélagsins og nánar er gerð grein fyrir í öðrum framlögðum gögnum, s.s. varðandi vöktun og frágang vegna framkvæmdarinnar. Skipulagsfulltrúi fer með eftirlit með framkvæmdinni og því að öllum skilyrðum sem framkvæmdinni hafa verið sett sé framfylgt og hún sé í samræmi við leyfi og fylgigögn leyfis. Skipulagsfulltrúi skal skila af sér skýrslu til sveitarstjórnar um framkvæmd eftirlitsins fyrir lok hvers áfanga framkvæmdarinnar. Verði skilyrðum vegna framkvæmdarinnar ekki framfylgt, ásigkomulag, frágangi, notkun eða umhverfi framkvæmdar eða eigin eftirliti framkvæmdaaðila ábótavant eða stafi af framkvæmdinni hætta skal skipulagsfulltrúi tilkynna sveitarstjórn þar um. Þá skal skipulagsfulltrúi gera grein fyrir frávikum og tilkynna framkvæmdaraðila skriflega um frávik og kröfur til úrbóta.

8.Markaðs- og kynningarfulltrúi
2602001
Ráðning
Lögð fram tillaga að ráðningu markaðs- og kynningarfulltrúa Rangárþings ytra. Sveitarstjórn þakkar umsækjendum sem sóttu um starfið fyrir áhuga á starfinu en margar góðar umsóknir bárust.
Lagt til að Helga Guðrún Lárusdóttir verði ráðin í starfið.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að Helga Guðrún Lárusdóttir verði ráðin í starfið.
Samþykkt samhljóða.
9.Ósk um leigu á landi úr Hábæ 2a
2602035
Lögð er fram beiðni Veroniku Eberl um að leiga tún í Þykkvabænum úr Hábæ 2a Landsnr. 191441 til skammtímaleigu sumarið 2026 sem beitihólf fyrir u.þ.b 6 hross.
Lagt til að samþykkja beiðnina og leiguverð taki mið af verðskrá Lands- og skóga um afnot af beitarhólfum.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að samþykkja beiðnina og leiguverð taki mið af verðskrá Lands- og skóga um afnot af beitarhólfum.
Samþykkt samhljóða.
10.Stefna um opinbera þjónustu
2603081
Lögð fram til kynningar drög að stefnu um opinbera þjónustu. Stefnan er unnin af fjármála- og efnahagsráðuneytinu í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga.
11.Tillaga fulltrúa D-lista um uppfærða tímalínu vegna framkvæmda við stækkun skólasvæðisins á Hellu
2604011
Lagt til að vísa málinu til úrvinnslu í framkvæmda- og eignanefnd.
IPG tók til máls.
Samþykkt samhljóða.
IPG tók til máls.
Samþykkt samhljóða.
12.Tillaga fulltrúa D-lista um að ráðast í átak í úttektum á byggingarstigi húsa o.fl.
2506034
Svar við fyrirspurn
Lagt fram til kynningar minnisblað byggingarfulltrúa sem svar við fyrirspurn vegna fyrirspurnar um úttekt á byggingarstigi húsnæðis.
IPG tók til máls.
IPG tók til máls.
13.Fyrirspurnir fulltrúa D-lista
2408013
Svör við fyrirspurnum
Lagðar fram til kynningar svör við fyrirspurnum.
1. Aðgengismál og húsnæðisþarfir fatlaðara.
Minnisblað forforstöðumanns eigna- og framkvæmdasviðs og svar verkefnisstjóra Bergrisans bs.
2. Göngustígar.
Minnisblað skipulagssviðs.
3. Staða lóaðmála.
Upplýsingar frá skipulagssviði.
4. Þróun starfsmannafjöld RY og Odda bs.
Upplýsingar frá mannauðs- og launafulltrúa.
5. Styrkvegafé Vegagerðarinna
Upplýsingar frá skrifstofu.
6. Aðkeypt lögfræðiþjónusta.
Upplýsingar frá skrifstofu.
7. Persónuverndarfulltrúi.
Upplýsingar frá persónuverndarfulltrúa og skrifstofu.
IPG tók til máls.
Bókun D-lista: Fulltrúar D-lista þakka fyrir umbeðnar upplýsingar. Tvennt í svörum vekur athygli.
Annars vegar að lögfræðikostnaður ársins 2025 hafi verið 28,5 milljónir króna, en ef frá er dregið kostnaður vegna Hvammsvirkjunar sem fæst endurgreiddur er kostnaðurinn tæplega 19 milljónir króna. Heildar lögfræðikostnaður á árunum 2022-2025 er rúmar 58 milljónir króna, þar af rúmar 18 milljónir vegna nýrra virkjana. Af þessum 58 milljónum unnu Lögmenn Suðurlands fyrir tæpar 50 milljónir, Lex fyrir rúmar 4 milljónir, MAGNA lögmenn fyrir 2,7 milljónir og aðrir fyrir um milljón samanlagt. Aðkeypt lögfræðiþjónusta umfram kostnað vegna virkjana er að meðaltali um 10 milljónir króna á ári á árunum 2022-2025.
Hins vegar hefur stöðugildum og starfsfólki fjölgað umtalsvert. Þannig hefur fjölgað um 15 stöðugildi hjá skólum Odda bs. á kjörtímabilinu úr 98,3 í 113,3 stöðugildi eða um 15,2% og munar þar mestu um 12,9 stöðugildi sem bæst hafa við í grunnskólunum. Þá hefur öðrum stöðugildum fjölgað úr 27,2 á árinu 2022 í 32,1 á árinu 2025, um tæplega 5 stöðugildi eða 18%. Þar munar mestu um 2,3 stöðugildi á skrifstofu sveitarfélagsins. Stöðugildum hefur fjölgað talsvert umfram íbúafjölgun sem er 11,5% á síðustu fjórum árum. (IPG, EÞI, BG)
Bókun Á lista: Aukinn lögfræðikostnaður á kjörtímabilinu skýrist fyrst og fremst af því að sveitarfélagið hefur verið að vinna stærri, flóknari og áhættumeiri mál en áður. Þar vegur þungt meðferð kærumála, álitaefna um stjórnsýslu og lagalegra úrlausnarefna sem ekki er ábyrgt að afgreiða án sérhæfðar ráðgjafar. Í slíkum málum er fagleg lögfræðiráðgjöf ekki óþarfa útgjaldaliður heldur nauðsynleg vörn fyrir hagsmuni sveitarfélagsins. Óvönduð málsmeðferð getur orðið mun dýrari síðar, hvort sem er vegna tafa á ákvörðunum eða öðrum ágreiningi. Áhersla fulltrúa Á-listans er áfram sem hingað til á ábyrga fjármálastjórn og að fjármunir nýtist til að styðja við grunnþjónustu og auka við lífsgæði íbúa.
Það er erfitt fyrir fulltrúa Á-lista að meta hvort í bókun D-lista felist gagnrýni á fjölgun stöðugilda á skrifstofu eða hvort D-listinn er að vekja sérstaklega athygli á eigin verkum. Fjölgun stöðugilda á skrifstofu hefur verið samþykkt samhljóða á kjörtímabilinu. Það hefur verið stefna meirihlutans að styrkja stjórnsýslu sveitarfélagsins, þar má nefna aukið álag á skipulagssvið og markvissar áherslur í málefnum íþrótta- og fjölmenningarmála. Þessar ákvarðanir hafa verið teknar með það að markmiði að styrkja þjónustu við íbúa og mæta breyttum þörfum samfélagsins.
Fjölgun stöðugilda í skólum sveitarfélagsins skýrist fyrst og fremst af fjölgun nemenda á sama tímabili. Nemendum hefur fjölgað að minnsta kosti um 15% á kjörtímabilinu og því eðlilegt og ábyrgt að þjónusta og mönnun í skólunum þróist í takt við þá aukningu. Markmið meirihlutans er að tryggja gæði skólastarfs og viðunandi vinnuumhverfi starfsfólks samhliða þessari ánægjulegu þróun. (EVG, MHG, ÞDÞ, VMÞ).
Tekið stutt fundarhlé.

14.Hvammsvirkjun E34. Efnistaka. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis
2603065
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna starfsleyfis fyrir efnistöku við Þjórsá E34 og efnið úr námunni haugsett á svæði E65 af hálfu Landsvirkjunar í Rangárþingi ytra. Umsókn barst 23.03.2026.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt samhljóða.
15.2026 málasafn - Til umsagnar frá nefndarsviði Alþingis
2601062
Umsagnarbeiðnir Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits),- og verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur) og Atvinnuveganefnd Alþingis um stofnun atvinnuveganna, lagareldi og Lax- og silungsveiði o.fl. (bætt lagaumgjörð)
Lagt fram til kynningar.
16.Byggðarráð Rangárþings ytra - 47
2602012F
Fundargerð byggðarráðs lögð fram og staðfest.
-
Byggðarráð Rangárþings ytra - 47 Lögð fram endurskoðun persónuverndarstefna fyrir Rangárþing ytra.
Lagt til að samþykkja endurskoðaða persónuverndarstefnu.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 47 Lagður fram viðauki við leigusamning milli Rangárþings ytra og GHR um heimild til framleigu til GHR vegna svæðis undir fjarskiptamastur.
Lagt til að samþykkja viðauka við samninginn og fela sveitarstjóra að skrifa undir hann.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 47 Lagður er fram samningur milli Olíudreifingar ehf og Rangárþings ytra um skil á lóðinni Dynskálum 45 á Hellu en á móti fái aðstöðu á hluta af lóðinni Dynskálum 53.
Lagt til að samþykkja samninginn og fela sveitarstjóra að undirrita hann.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 47 Lagt til að kjörstaður fyrir sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí 2026 verði í Grunnskólanum á Hellu og verði kjörstaður opinn milli 9:00-22:00.
Jafnframt verði öllum framboðum veitt endurgjaldslaus afnot af fundaraðastöðu sveitarfélagsins í námsverinu á Hellu, íþróttahúsinu í Þykkvabæ og Menningarmiðstöðinni á Laugalandi vegna undirbúnings sveitarstjórnarkosninga.
Samþykkt samhljkða Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 47 Lögð fram tillaga að breytingu á gjaldskrá íþróttamannvirkja um að notendur 16 ára og eldri sem nota íþróttahús sveitarfélagsins á vegum annara enn viðurkenndra æskulýðs- og íþróttafélaga greiði fyrir aðgang af sölum íþróttahúsa samkvæmt gjaldsskrá íþróttamiðstöðva. Gjaldið til að fá aðgang í salina miðast við gjaldskrá fyrir aðgang í sund og geta notendur nýtt sér sundlaugina eftir tímann ef hún er opin.
Þá er lagt til að gjaldskránni verði breytt þannig að börn 0-9 ára fái frítt í sund og börn 10-15 ári greiði óbreytt gjald. Tímakort fyrir verði einnig uppfærð í gjaldskrá m.t.t. aldurs.
Lagt til að tillögurnar verði samþykktar og þær taki gildi frá og með 15. apríl nk.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða.
17.Fjölmenningarráð - 7
2603004F
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
-
Fjölmenningarráð - 7 Áframhaldandi vinna við skipulag á Fjölmenningarhátíð 9. maí 2026 á Hellu. Bókun fundar Sveitarstjórn hvetur íbúa til að mæta á fjölmenningarhátíð sem haldinn verður í þróttahúsinu á Hellu laugardaginn 9. maí nk, kl. 14-16.
-
Fjölmenningarráð - 7 Kynning á fyrirhugaðri barnamenningardögum 23.apríl á Suðurlandi. Presentation of the planned Children’s Cultural Days on April 23 in South Iceland. Bókun fundar Sveitarstjórn hvetur börn og foreldra til þáttöku á barnamenningarhátíð sem haldinn verður 23. apríl n.k.
18.Fjölmenningarráð - 8
2603010F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
19.Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 28
2603001F
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
-
Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 28 Umsjónarmaður félagsmiðstöðvarinnar fór yfir skýrslu og ræddi starfsemina. Nefndin þakkar yfirferðina. Bókun fundar Sveitarstjórn lýsir ánægju varðandi starfssemi félagsmiðstöðvarinnar Hellisins á liðnu ári.
-
Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 28 Forstöðumaður íþróttamannvirkja fór yfir nýja tillögu skipulags vegna þorrablóta í íþróttahúsum. Bókun fundar Sveitarstjórn leggur til að tillögur um skipulag þorrablóta í íþróttahúsum sveitarfélagsins verði samþykktar.
Samþykkt samhljóða. -
Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 28 Forstöðumaður íþróttamannvirkja lagði fyrir nefndina aðsóknartölur íþróttamiðstöðva 2025. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
-
Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 28 Forstöðumaður íþróttamannvirkja lagði til opnunartíma sundlauga sumarið 2026.
Lögð er til breyting fyrir sundlaugina á Laugalandi, að sumaropnun verði frá 5.júni ? 16. ágúst í stað 9. ágúst.
Nefndin hvetur forstöðumann til að setja myndir og færslur reglulega á Facebook og Instagram síður íþróttamiðstöðva og deila á íbúasíður. Bókun fundar Sveitarstjórn leggur til að afgreiðsla um tillögur um opnunartíma sundlauga sumarið 2026 verði frestað og vísa málinu til heilsu-, íþrótta- og tómstundanefndar til skoðunar.
IPG tók til máls.
Samþykkt samhljóða. -
Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 28 Nefndin þakkar fyrir tillögurnar, ljóst er að endurnýjunnar er þörf á innrauðaklefanum á Hellu en vegna mikillar ásóknar er mikil viðhaldsþörf og núverandi klefi annar ekki slíkri notkun. Hugmyndin styður vel við þróun skipulags íþróttamiðstöðvarinnar og nefndin leggur til að ráðist verði í að kostnaðargreina verkefnið.
Nefndin leggur til að sambærileg tillaga verði unnin fyrir Laugaland og lögð fyrir á næsta fundi. Bókun fundar Lagt til að forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs ásamt forstöðumanni íþróttamannvirkja verði falið að gera tillögur að útfærslu og kostnaðargreina tillöguna. Málið verði tekið fyrir í framkvæmda- og eignanefndar í aðdraganda fjárhagsáætlunargerðar.
Samþykkt samhljóða.
20.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 254
2603006F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
21.Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2026
2601034
Fundargerð 90. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.
22.Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 2026
2601035
Fundargerð 253. fundar stjórnar og ársreikningur 2025.
Lagt fram til kynningar.
23.Fundargerðir Arnardrangs hses 2026
2601027
Fundargerð 26. fundar stjórnar og ársreikningur 2025.
Lagt fram til kynningar.
24.Fundargerðir stjórnar SÍS 2026
2601033
Fundargerð 996. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.
25.Fundargerðir stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárv. og V.Skaft. -2026
2601358
Fundargerð 98. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.
26.Ályktun frá fulltrúafundi Skógræktarfélags Íslands
2603093
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:40.
Það var samþykkt samhljóða.