1.Samantekt sveitarstjóra og/eða oddvita
Málsnúmer 2602008Vakta málsnúmer
2.Netaveiði Veiðivötn 2026-2028
Málsnúmer 2605004Vakta málsnúmer
Lagt til að tilboði hæstbjóðanda Ársæls Haukssonar að fjárhæð kr. 500.000 verði tekið og felur sveitarstjóra að ganga til samninga.
Samþykkt samhljóða
3.Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands 2026
Málsnúmer 2605009Vakta málsnúmer
Lagt til að Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri, verði fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum.
Samþykkt samhljóða.
4.Tillaga fulltrúa D-lista um uppfærða tímalínu vegna framkvæmda við stækkun skólasvæðisins á Hellu
Málsnúmer 2604011Vakta málsnúmer
BG tók til máls.
5.Framkvæmda- og eignanefnd - 11
Málsnúmer 2603005FVakta málsnúmer
-
Framkvæmda- og eignanefnd - 11 Tómas Haukur fór yfir niðurstöðu verðkönnunar um gatna- og veituhönnun fyrir Bjargshverfið. Tvö tilboð bárust en EFLA var með lægsta verðið. Stjórn samþykkir að ganga til samninga við EFLU um verkið.
Bókun fundar Lagt til að samþykkja tillögu nefndarinnar.
Samþykkt samljóða. -
Framkvæmda- og eignanefnd - 11 Sveitarstjóri fór yfir niðurstöðu ársreiknings Rangárljóss fyrir árið 2025. Rekstrartekjur Rangárljóss námu 23,3 millj. kr. á árinu 2025 og hækkuðu um 1,1 millj. kr. milli ára og hagnaður félagsins á árinu 2025 nam 7,8 millj. kr. Eigið fé félagsins í árslok var jákvætt um 159,6 millj. kr. að meðtöldu stofnfé Rangárljóss 142,6 millj.kr.
Nefndin leggur til að ársreikningurinn verði samþykktur og vísað til sveitarstjórnar til afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða Bókun fundar Lagt til að samþykkja ársreikning Rangárljósa 2025 og hann undirritaður.
Samþykkt samljóða.
6.Húsakynni bs - 14
Málsnúmer 2604010FVakta málsnúmer
-
Húsakynni bs - 14 Klara Viðarsdóttir, fjármálastjóri fór yfir endurskoðaðan ársreikning Húsakynna bs. fyrir árið 2025. Viðhald eigna fór umfram áætlanir vegna aðkallandi verkefna.
Fjárfesting ársins var 17,3 mkr.
Ársreikningurinn samþykktur samhljóða. Bókun fundar Lagt til að ársreikningur Húsakynna bs. fyrir árið 2025 verði staðfestur fyrir okkar leyti.
Samþykkt samhljóða.
7.Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps - 13
Málsnúmer 2604009FVakta málsnúmer
-
Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps - 13 Klara Viðarsdóttir, fjármálastjóri fór yfir endurskoðaðan ársreikning Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs. fyrir árið 2025. Rekstrarniðurstaða veitunnar var jákvæð um 8,8 milljónir.
Fjárfesting ársins var 10 milljónir nettó.
Ársreikningur 2025 var samþykktur samhljóða og áritaður.
Stjórn vill árétta mikilvægi þess að ársreikningur byggðarsamlagsins liggi fyrir tímalega vegna framlagningu ársreikinga aðildarsveitarfélaganna. Bókun fundar Lagt til að staðfesta ársreikning Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs. 2025 fyrir okkar leyti.
Samþykkt samhljóða.
8.Tónlistarskóli Rangæinga bs - 38
Málsnúmer 2604003FVakta málsnúmer
-
Tónlistarskóli Rangæinga bs - 38 Klara Viðarsdóttir fór yfir framlagðan ársreikning Tónlistarskóla Rangæinga 2025.
Rekstrarniðurstaða skólans var neikvæð á árinu 2025 um 16,5 millj. kr.sem stafar af mestu leyti af launahækkunum og hækkun lífeyrisskuldbindinga. Við gerð viðauka s.l. haust var ákveðið að ganga á handbært fé til að mæta hækkuninni. Eigið fé í árslok var neikvætt um 66 millj. kr.
Stjórn samþykkti ársreikning samhljóða og undirritaði hann. Bókun fundar Lagt til að staðfesta ársreikning Tónlistarskóla Rangæinga bs. 2025 fyrir okkar leyti.
Samþykkt samhljóða.
9.Oddi bs - 49
Málsnúmer 2604002FVakta málsnúmer
-
Oddi bs - 49 Lagður fram og kynntur Ársreikningur 2025 fyrir byggðasamlagið Odda bs.
Rekstrartekjur byggðasamlagsins námu 1.855,7 millj. kr. á árinu 2025 og hækkuðu um 165,2 millj. kr. milli ára eða um 8,9%. Námu laun byggðasamlagsins 1.071,9 millj. kr. (2024; 941,8 millj. kr.), og launatengd gjöld námu 266,1 millj. kr. (2024; 226,9 millj. kr.). Launakostnaður jókst á milli ára um 12,2% sem skýrist aðallega af kjarasamningsbundnum hækkunum.
Rekstrarkostnaði byggðarsamlagsins er skipt milli aðildarsveitarfélaganna miðað við nemendafjölda.
Ársreikningurinn var samþykktur samhljóða og undirritaður. Bókun fundar Lagt til að ársreikningur Odda bs. fyrir árið 2025 verði staðfestur fyrir okkar leyti.
Samþykkt samhljóða.
10.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 255
Málsnúmer 2603013FVakta málsnúmer
-
Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 255 Klara Viðarsdóttir, fjármálastjóri fór yfir ársreikning Sorpstöðvarinnar. Tekjurnar námu 311,6 m.kr. og gjöldin 284,1 m.kr. Afkoman var jákvæð eftir fjármagnsliði um 17 m.kr. Eigið fé í árslok nam 202,8 m.kr.
Ársreikningur samþykktur og áritaður af stjórn. Bókun fundar Lagt til að staðfesta ársreikning Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. 2025 fyrir okkar leyti.
Samþykkt samhljóða.
11.Stjórn Suðurlandsvegar 1-3 hf - 30
Málsnúmer 2604008FVakta málsnúmer
-
Stjórn Suðurlandsvegar 1-3 hf - 30 Ársreikningur 2025 lagður fram til samþykktar. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði er jákvæð um um 9 milljónir kr. en tap ársins eftir fjármagnsliði eru 19,3 milljónir kr.
Veltufé frá rekstri var jákvætt um 12,2 milljónir kr. Eigið fé í árslok var 276,1 milljón kr.
Ársreikningur 2025 samþykktur samhljóða. Bókun fundar Lagt til að staðfesta ársreikning Suðurlandsvegar 1-3 ehf 2025 fyrir okkar leyti.
Samþykkt samhljóða.
12.Fundargerðir Brunavarna Rangárvallasýslu 2026
Málsnúmer 2601031Vakta málsnúmer
Jafnframt er lagt til að slökkviliðsstjóra verði falið að svara HMS varðandi viðbrögð við úttekstarskýrslu HMS á Brunavörnum Rangárvallasýslu bs.
Samþykkt samhljóða.
13.Fundargerðir stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárv. og V.Skaft. -2026
Málsnúmer 2601358Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
14.Fundargerðir Héraðsnefndar Rangæinga 2026
Málsnúmer 2601030Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
15.Fundargerðir Byggðasafnsins Skógum 2026
Málsnúmer 2601029Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
16.Ársreikningur 2025
Málsnúmer 2602007Vakta málsnúmer
JGV og IPG tóku til máls.
Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2025 var staðfestur af byggðaráði miðvikudaginn 29.apríl 2026 og lagður fyrir sveitarstjórn. Hann var tekinn til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar miðvikudaginn 29. apríl 2026 og var vísað til seinni umræðu. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikning sveitarfélags á tveimur fundum í sveitarstjórn. Ársreikningurinn hefur að geyma samantekin reikningsskil fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A og B hluta starfsemi sveitarfélagsins sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Í A hluta er öll starfsemi sem að hluta, eða að öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Húsakynni bs, Rangárljós, Suðurlandsvegur 1-3 hf auk samstarfsverkefna í B hluta.
Rekstrartekjur A og B hluta á árinu námu 4.297 milljónum kr. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 448 milljónir kr en í A hluta var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 420 milljónir kr. Samtals eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam 4.268 milljónum kr.
Skuldaviðmið A og B hluta í árslok skv. reglugerð 500/2012 er 60% og skuldahlutfall er 90%.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða ársreikning Rangárþings ytra fyrir árið 2025.
Sveitarstjórn þakkar starfsfólki sveitarfélagsins fyrir góða vinnu við rekstur innan ramma fjárhagsáætlunar sem skilar sér í bættri afkomu.
Tekið stutt fundarhlé.
Bókun D-lista:
Við yfirferð á ársreikningi ársins 2025 er meginniðurstaðan sú að afkoma sveitarfélagsins er viðunandi. Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um 419,9 m.kr. og sveitarfélagið skilar umtalsverðu svigrúmi inn í þær framkvæmdir sem nú standa yfir. Það er í samræmi við þá uppbyggingu og þann grunn sem lagður var á fyrra kjörtímabili þó framkvæmdir hafi dregist, og sveitarfélagið ræður við þær lántökur sem ráðist hefur verið í.
Tekjur sveitarfélagsins hafa aukist umtalsvert milli ára. Þar munar mestu um að framlög úr Jöfnunarsjóði hækkuðu úr 877,9 m.kr. árið 2024 í 1.078,8 m.kr. árið 2025, eða um 200,9 m.kr. og nokkuð umfram áætlanir.
Á sama tíma hafa rekstrargjöld sveitarfélagsins aukist töluvert. Rekstrargjöld A-hluta hækkuðu úr 3.125,6 m.kr. árið 2024 í 3.357,8 m.kr. árið 2025. Á kjörtímabilinu í heild fóru rekstrargjöld A-hluta úr 2.380,2 m.kr. árið 2022 í 3.357,8 m.kr. árið 2025. Að raunvirði jafngildir það um 19,6% hækkun.
Laun og launatengd gjöld hækkuðu umtalsvert. Þau fóru úr 1.719,7 m.kr. árið 2024 í 2.012,8 m.kr. árið 2025, eða um 293,1 m.kr. milli ára. Stöðugildum hélt áfram að fjölga á árinu.
Ársreikningurinn sýnir viðunandi stöðu í dag, en framlög jöfnunarsjóð höfðu hvað mest áhrif á afkomuna umfram upphaflega áætlun.
Þá kom fram að handbært fé frá rekstri í árslok hafi einungis verið 13 milljónir. Ljóst er að um leið og þeim stórframkvæmdum sem unnið er að verður lokið þarf að miða rekstur sveitarfélagsins við að handbært fé sé hærra til að rekstur og greiðslugeta sveitarfélagsins sé sjálfbær.
Þá ber að nefna að verði áframhald á þeirri útgjaldaþróun sem einkennt hefur kjörtímabilið eru blikur á lofti um sjálfbærni rekstrar sveitarfélagsins á næstu árum. (IPG, EÞI, BG)
Bókun Á-lista:
Ársreikningur vegna ársins 2025 sýnir bestu rekstrarafkomu frá upphafi og sýnir að fjárhagsstaðan er sterk og reksturinn í góðu lagi. Góð niðurstaða rekstursins endurspeglar markvissa stefnu og faglega fjármálastjórn. Okkar markmið á þessu kjörtímabili hefur verið að tekjur dugi fyrir gjöldum og rekstrarafgangur sé til staðar til þess að styðja við þær miklu framkvæmdir sem sveitarfélagið hefur staðið fyrir. Á- listinn horfir til næstu ára með ábyrgð og bjartsýni í farteskinu og vonast til að fjárhagslegur styrkur sveitarfélagsins nýtist öllum íbúum á raunverulegan hátt á næstu árum.(EVG, MHG, VMÞ og ÞDÞ)
17.Hallstún L190888 (Bláholt). Umsókn um lögbýli
Málsnúmer 2509039Vakta málsnúmer
Lagt er til að sveitarstjórn geri ekki athugasemd við stofnun lögbýlis.
Samþykkt samhljóða.
18.2026 málasafn - Til umsagnar frá nefndarsviði Alþingis
Málsnúmer 2601062Vakta málsnúmer
19.Byggðarráð Rangárþings ytra - 48
Málsnúmer 2603015FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Rangárþings ytra - 48 Lagður fram samningur um framkvæmda- og byggingareftirlit vegna Hvammsvirkjunar milli Landsvirkjunar og sveitarfélagsins.
Byggðarráð leggur til að samþykkja samninginn og sveitarstjóra falið að undirrita hann.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 48 Lögð var fram niðurstaða útboðs í verkið Rotþróarhreinsun í Rangaárþingi ytra og Rangárþingi eystra 2026-2029 en útboðsfrestur rann út 16. apríl. Tveir verktakar skiluðu inn tilboðum Verkval og Hreinsitæki. Verkval bauð 81 % af kostnaðaráætlun og Hreinsitækni 89 % af kostnaðaráætlun. Tilboð Verkvals nam kr. 62,7 millj. fyrir fjögur ár. Málið var tekið fyrir á fundi framkvæmda- og eignanefndar þann 27. apríl s.l.
Byggðarráð leggur til að ganga að tilboði lægstbjóðanda, Verkval, og felur sveitarstjóra að ganga frá samningi f.h. Rangárþings ytra.
Samþykkt samhljóða.
Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða.
20.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 65
Málsnúmer 2604005FVakta málsnúmer
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 65 Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í erindið og leggur til við sveitarstjórn að veitt verði vilyrði til úthlutunar á lóðunum af Guðrúnartúni til G.G.Trés ehf á grundvelli erindisins. Bókun fundar Lagt til að taka undir tillögu skipulags- og umferðarnefndar. Lagt til að G.G.Tré ehf verði veitt vilyrði fyrir lóðunum 2, 4, og 6 í Guðrúnartúni til uppbyggingu þjónustuíbúða fyrir 60 plús.
IPG tók til máls.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 65 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 65 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir við lýsinguna. Nefndi telur að breyting á landnotkun umræddrar lóðar hafi engin áhrif á hvort hún sé að hluta til innan veghelgunar- eða öryggissvæðis Vegagerðarinnar og að fyrirætlanir á uppbyggingu innan hennar verði gerð skil í tillögu að deiliskipulagi þegar hún verður lögð fram. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar í samræmi við 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010 en áður verði hún kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. sömu laga. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða byggðarráðs um frestun málsins verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
21.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 66
Málsnúmer 2604013FVakta málsnúmer
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 66 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við leiðréttingu á lóðamörkum umræddra lóða. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 66 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
ÞDÞ víkur sæti við meðferð og afgreiðslu málsins. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 66 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 66 Skipulagsnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.
Nefndin leggur því til að farið verði um málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en telur enga ástæðu til grenndarkynningar þar sem um tímabundna ráðstöfun lands er að ræða sem hefur engin áhrif á aðra en umsækjendur og sveitarfélagið. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 66 Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu málsins þar sem ekki liggur fyrir leyfi Fiskistofu Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 66 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.
Nefndin leggur til að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem tillagan hefur engin áhrif á aðra en sveitarfélagið og rekstaraðila á svæðinu. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 66 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 66 Skipulags- og umferðarnefnd hefur fjallað um umsókn umsækjanda og telur að þar sem engar athugasemdir bárust við grenndarkynningu málsins verði ekki gerðar neinar athugasemdir þótt veitt verði byggingar heimild- eða leyfi til byggingar á skemmu. Leiðrétting á afmörkun lóðarinnar hefur verið samþykkt og er í vinnslu. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 66 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 66 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 66 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 66 Skipulags- og umferðarnefnd telur ekki tímabært að tekin verði ákvörðun um minnkun vegsvæðis Helluvaðsvegar að svo stöddu og leggur til að erindi umsækjanda verði frestað þar til endanlegt skipulag skólasvæðisins liggur fyrir. Tekið verði tillit til beiðni umsækjanda við vinnu við skipulag svæðisins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
22.Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 23
Málsnúmer 2605002FVakta málsnúmer
-
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 23 Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd leggur fram tillögu að forgangsröðun vegna viðhalds tengivega í sveitarfélaginu. Við forgangsröðun var tekið tillit til ástands veganna, umferðarþunga og skólaaksturs. Nefndin leggur til að Vegagerðinni verði sendur listinn.
271 Hryggjavegur - Landvegur 2,4 km, ÁDU 110
272 Bjallavegur - Lækjarbotnar 7,9 km ÁDU 115
272 Landvegur - Bjallavegur 0,25 km ÁDU 66
286 Landvegur - Hagi 12,17 km ÁDU 79
252 Landeyjavegur - sveitarfélagsmörk (Uxahryggur) 6,13 km ÁDU 105
264 Keldnavegur - Hróarslækur 9,3 km ÁDU 125
268 Þingskálar - Haukadalur 4,2 km ÁDU 82
Að auki leggur nefndin áherslu á að ný brú verði byggð yfir Eystri Rangá við Reynifell. Undanfarin ár hefur verið unnið að viðhaldi eins og kostur er, en brúin er komin á það stig að endurbætur og viðhald gagnast ekki nema sem lausnir til skamms tíma. Brúin er mikilvæg þar sem hún tengir efri byggðir Rangárvalla við Rangárþing eystra og er mikilvæg í ljósi áhættu vegna náttúruhamfara sem er rík á þessu svæði öllu. Brúin gagnast því íbúum beggja handa árinnar sem flóttaleið ef þörf er á. Byggja þarf nýja brú.
Bókun fundar Lagt til að niðurstaða umhverfis- hálendis- og samgöngunefndar verði samþykkt. Þar sem fyrir liggur að lagning á bundnu slitalagi á Landeyjavegi (252) frá Oddabrú í átt að Þúfu frestast hvetur sveitarstjórn Vegagerðina til að taka verkefni á meðfylgjandi forgangslista til framkvæmda í sumar. Sveitarstjóra verði falið að fylgja málinu eftir við Vegagerðina.
BG tók til máls.
Samþykkt samhljóða.
23.Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 21
Málsnúmer 2603019FVakta málsnúmer
-
Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 21 Nefndin þakkar fyrir umsóknirnar og hefur tekið ákvörðun um úthlutun.
Niðurstöður verða kynntar um miðjan maí næstkomandi. Bókun fundar Lagt til að tillögur nefndarinnar verði samþykktar.
Samþykkt samhljóða.
24.Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 29
Málsnúmer 2604007FVakta málsnúmer
-
Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 29 Nefndin beinir því til næstu sveitarstjórnar að við fjárhagsáætlunargerð næsta árs og áranna þar á eftir verði auknu fjármagni beint til reksturs sundlaugarinnar á Laugalandi. Markmiðið með þessu væri að skapa möguleika á auknum opnunartíma sundlaugarinnar með það fyrir augum að sundlaugin á Laugalandi verði ákjósanlegt val fyrir hina ýmsu hópa samfélagsins, allt árið um kring. Breytingar gerast ekki á einni nóttu og því lykilatriði að stilla verkefnið til langs tíma, sinna markaðssetningu sem skyldi og fylgjast gaumgæfilega með árlegri notkun laugarinnar. Í heilsueflandi samfélagi líkt og Rangárþingi ytra væru tvær vel reknar sundlaugar eitthvað sem gætum hreykt okkur af.
Tillaga nefndarinnar að opnunartíma:
Stytta opnunartíma um helgar og bæta við opnun tvo daga í miðri viku
Gæti litið svona út:
föstudagar 15:00 - 21:00
laugardagar 11:00 - 18:00
sunnudagar 10:00 - 15:00
þriðjudagar 16:00 - 20:00*
fimmtudagar 16:00 - 20:00*
Ef þessi leið er farin þá þarf óska eftir viðauka fyrir annan daginn.
* með þeim fyrirvara að það fáist starfsfólk til að vinna á þessum tíma Bókun fundar Lagt til að tillögur nefndarinnar um breytingar á opnunartíma sundlaugarinnar á Laugalandi sumarið 2026 verði samþykktar.
IPG tók til máls.
Samþykkt samhljóða.
25.Heilsueflandi samfélag - 5
Málsnúmer 2603017FVakta málsnúmer
26.Fjölmenningarráð - 9
Málsnúmer 2604014FVakta málsnúmer
27.Ungmennaráð Rangárþings ytra - 10
Málsnúmer 2603014FVakta málsnúmer
28.Fundargerðir stjórnar SÍS 2026
29.Fundargerðir Bergrisans bs 2026
Málsnúmer 2601026Vakta málsnúmer
30.Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 2026
Málsnúmer 2601035Vakta málsnúmer
31.Þjónustusamningur KPMG. Endurnýjun.
Málsnúmer 2605003Vakta málsnúmer
32.Ársreikningur 2025 - Orlof húsmæðra
Málsnúmer 2605008Vakta málsnúmer
33.Ársfundur Náttúruhamfaratryggingar Íslands 2026
IPG tók til máls.
Fundi slitið - kl. 12:00.
Það var samþykkt samhljóða.
Jafnframt upplýsti oddviti að í upphafi fundar myndi endurskoðandi sveitarfélagsins fara yfir í fjarfundi endurskoðunarskýrslu 2025 vegna ársreiknings sveitarfélagins fyrir 2025 í lokaðri útsendingu þar sem hún var ekki tilbúin til kynningar í byggðarráði fyrir fyrri umræðu.