1.Samantekt sveitarstjóra og eða oddvita
Málsnúmer 2602008Vakta málsnúmer
2.Samþykktir Rangárþings ytra - endurskoðun
Málsnúmer 2606011Vakta málsnúmer
IPG tók til máls.
Samþykkt samhljóða.
3.Rallý Suðurland 2026
Málsnúmer 2607040Vakta málsnúmer
Nefndin setur eftirfarandi skilyrði:
1. Forsvarsmenn keppninnar gæti þess að fylgt verði merktum leiðum og ekki sé ekið utan vega.
2. Keppnishaldari upplýsi þá aðila sem hafa með skipulagðar ferðir á svæðinu að gera vegna keppninnar. Þá sérstaklega rekstraraðila í Hrauneyjum, Landmannahelli og Áfangagili sem og aðra ferðaþjónustuaðila á svæðinu.
3. Mönnuð vöktun verði á öllum lokunarpóstum.
4. Þess sé gætt að allur frágangur verði til fyrirmyndar. Þeir vegir sem farið verði um verði heflaðir á kostnað keppnishaldara strax að keppni lokinni. Allar merkingar og allt rusl verði fjarlægt af hálfu keppnishaldara.
5. Keppnishaldari tryggi að almenningur á svæðinu verði ekki fyrir óþarfa óþægindum á meðan kynningarakstur fer fram fyrir keppni.
Samþykkt samhljóða.
4.Tunguvirkjun í Keldnalæk. Erindi vegna matsfyrirspurnar
Málsnúmer 2408009Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn vísar sérstaklega til bókunar Skipulags- og umferðarnefndar frá 2. júlí 2026 og bókunar meirihluta Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefndar frá 4. ágúst 2026. Í báðum bókunum er komist að þeirri niðurstöðu að með hliðsjón af eðli og umfangi framkvæmdarinnar, viðkvæmni framkvæmdarsvæðisins og þeim álitaefnum sem uppi eru, m.a. varðandi vatnshlot og neysluvatn, menningarminjar, náttúrufar og aðra umhverfisþætti, sé ekki unnt að útiloka umtalsverð umhverfisáhrif. Báðar nefndir mæla því með að Tunguvirkjun sæti umhverfismati samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Sveitarstjórn tekur undir þá niðurstöðu og telur rétt, með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum og umsögnum fagstofnana, að framkvæmdin verði háð umhverfismati samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Meðfylgjandi er rökstuðningur fyrir afstöðu sveitarstjórnar til málsins.
ÞS tók til máls
Samþykkt með fjórum atkvæðum EGV, MHG, ESS og VMÞ.
IPG, GA, ÞS sitja hjá.
Bókun D-lista
Undirritaðir telja að miðað við fyrirliggjandi gögn sé ekki ástæða til að kveða upp úr um hvort umrædd framkvæmd þurfi að fara í mat á umhverfisáhrifum. Ábyrgð og ákvarðanataka fyrir slíku liggur hjá HMS og því rétt að stofnunin taki ákvörðun um slíkt út frá faglegum gögnum en ekki út frá pólitískri afstöðu sveitarstjórnar. Því sitja undirritaðir hjá við afgreiðsluna.
IPG, GA, ÞS
5.Siðareglur - endurskoðun í upphafi kjörtímabils
Málsnúmer 2606012Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
Jafnframt rituðu allir sveitarstjórnarmenn nafn sitt undir yfirlýsingu um að þeir hafi kynnt sér og virði reglur og samþykktir sveitarstjórnar líkt og kveðið er á um í 14. gr. siðareglnanna.
6.Kjörstjórn - breyting
Málsnúmer 2607029Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
7.Tillaga fulltrúa D-lista - Girðing við Oddaveg
Málsnúmer 2606010Vakta málsnúmer
Í framhaldi af þeirri ákvörðun átti sveitarstjóri samskipti við Vegagerðina um málið.
Niðurstaða þeirra samskipta er að samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er það í höndum landeigenda að sækja um uppsetningu girðingar með vegum. Vegagerðin tekur ákvörðun um slíkar umsóknir og ber stofnkostnað við uppsetningu girðingar samkvæmt reglum.
Eftir að girðing hefur verið reist verður hún hins vegar á ábyrgð viðkomandi landeigenda, sem annast viðhald hennar samkvæmt gildandi reglum.
Vegagerðin hefur jafnframt upplýst að verði komið upp samfelldri fjárheldri girðingu meðfram vegkaflanum verði núverandi ristarhlið fjarlægð.
Landeigendur sem óska eftir veggirðingu þurfa að leggja fram umsókn til Vegagerðarinnar, sveitarfélagið getur ekki gert það fyrir þeirra hönd þar sem viðhald yrði í framhaldi í höndum landeiganda.
GA og EVS tóku til máls.
Lagt fram til kynningar.
8.Samningur um refaveiðar 2026-2028
Málsnúmer 2608020Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
9.Lánasjóður sveitarfélaga. Framkvæmdalán.
Málsnúmer 2601006Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 200.000.000,- á árinu 2026 með þeim lánaskilmálum sem býðst á þeim tíma sem lántaka fer fram. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, sem og langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður sveitarfélögum upp á hverju sinni og hefur sveitarstjórnin kynnt sér skilmála skuldabréfaflokkanna eins og þeir koma fyrir á heimasíðu Lánasjóðsins.
Sveitarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til að fjármagna nýframkvæmdir við leikskóla á Hellu sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Eiríki Vilhelm Sigurðarsyni, sveitarstjóra, kt.100989-2479, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Rangárþings ytra að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Samþykkt samhljóða.
10.Tindasel 1, L234038. Deluxe Lodges ehf. Beiðni um umsögn vegna breytingu á rekstrarleyfi
Málsnúmer 2607037Vakta málsnúmer
Lagt er til að sveitarstjórn geri ekki athugasemd við beiðnina.
Samþykkt samhljóða.
11.Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 1
Málsnúmer 2607006FVakta málsnúmer
Liðir nr. 4 Landvegur. Búfjárræsi, framkvæmdaleyfi og liður 5. Tungnaáreyrar. Framkvæmdaleyfi til efnistöku eru teknir út sérstaklega og staðfestir.
Samþykkt samhljóða
12.Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd - 2
Málsnúmer 2607009FVakta málsnúmer
-
Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd - 2 Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að gerður verði þjónustusamningur við FEBRANG líkt og er gert við önnur félagasamtök sem hafa starfsemi í sveitarfélaginu. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur undir afgreiðslu HÍT og vísar því til Héraðsnefndar Rangæinga að gerður verði samningur við FEBRANG vegna heilsueflingar 60 ára og eldri.
Samþykkt samhljóða.
13.Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 2
Málsnúmer 2607008FVakta málsnúmer
14.Framkvæmda- og eignanefnd - 1
Málsnúmer 2607007FVakta málsnúmer
Fundargerð lögð fram og staðfest.
15.Skipulags- og umferðarnefnd - 4
Málsnúmer 2607002FVakta málsnúmer
-
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að útgáfa framkvæmdaleyfis til lagningar búfjárræsis undir Landveg sbr. framlagðan uppdrátt og önnur gögn málsins verði samþykkt. Nefndin leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út leyfið og hafa eftirlit með framkvæmdunum. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að óskað verði eftir áliti Vegagerðarinnar og frestar afgreiðslu erindisins þar til það álit liggur fyrir. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu erindisins í ljósi fram kominna athugasemda sem bárust á auglýsingatíma. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna ábendinga í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd telur nauðsynlegt að umsækjendur geri breytingar á gildandi deiliskipulagi fyrir Höfuðból til að samræmis gæti við þinglýst gögn. Nefndin telur að um óverulega breytingu geti verið að ræða í þessi tilfelli. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis. Nefndin leggur því til að farið verði um málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en þar sem tillagan hefur engin áhrif á aðra en umsækjanda og sveitarfélagið sé ekki ástæða til grenndarkynningar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd hafnar erindinu þar sem framlögð áform umsækjanda eru ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag. Nefndin leggur til að fundað verði með hönnuði og umsækjanda auk byggingarfulltrúa og fulltrúum sveitarfélagsins um leiðir til lausnar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd telur ekki ástæðu til að krefjast gerðar deiliskipulags fyrir bújörðina en telur að grenndarkynna þurfi áformin til aðliggjandi jarðeigenda áður en leyfi verður veitt. Bókun fundar Sveitarstjórn hefur farið yfir gögn málsins og samþykkir, í ljósi fram kominnar staðfestingar frá nærliggjandi aðila þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við byggingu og staðsetningu umrædds fjóss, áform umsækjanda.
ÞS tók til máls.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áform umsækjanda þar sem fyrir liggur staðfesting og samþykki nærliggjandi jarðareigenda um áformin. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir stöðuna og telur að gera þurfi breytingar á gildandi deiliskipulagi til að áform umsækjanda geti náð fram að ganga. Um óverulega breytingu getur verið að ræða þar sem tilheyrandi breytingar hafa engin áhrif á aðra en umsækjendur, jarðareigendur og sveitarfélagið. Að sama skapi sé ekki þörf á grenndarkynningu. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.
Nefndin leggur því til að farið verði um málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og þar sem umrædd starfsemi er langt frá næstu bújörðum og hagsmunaaðilar séu einungis umsækjandi og sveitarfélagið telur nefndin enga ástæðu til grenndarkynningar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir meðfylgjandi tillögu að breyttu deiliskipulagi Hvammsvirkjunar, dags. 15.06.2026 og leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samráði við Skeiða- og Gnúpverjahrepp. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu tillögunnar þar til breyting á aðalskipulagi hefur verið samþykkt að teknu tilliti til gerðar samgöngumats að kröfu Vegagerðarinnar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að unnið verði samgöngumat í samræmi við umsögn Vegagerðarinnar vegna aukinnar uppbyggingar á svæðinu. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fyrir liggur dómsátt milli framkvæmdaraðila og landeiganda um legu vegarins. Aðilum máls verði einnig send lýsingin beint, þ.e. eiganda Minni-Valla L164995 og eigenda Stóru-Valla L165011. Frestur til að skila inn umsögnum við lýsinguna skal standa til og með 27. ágúst nk. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 4 Skipulags- og umferðarnefnd telur að greinilega sé brugðist við þeim áhrifum sem umrædd framkvæmd kunni að hafa á umhverfi sitt með þeim hætti að ekki verði um veruleg neikvæð áhrif að ræða. Skipulagsnefnd telur að fullnægjandi grein sé gerð fyrir framkvæmdinni í framlagðri greinargerð með tilkynningunni. Umhverfisáhrif hafa verið lágmörkuð með fullnægjandi mótvægisaðgerðum og vöktun. Skipulagsnefnd telur því að umrædd framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
16.Byggðarráð Rangárþings ytra - 1
Málsnúmer 2606010FVakta málsnúmer
17.Byggðarráð Rangárþings ytra - 2
Málsnúmer 2607003FVakta málsnúmer
18.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 257
Málsnúmer 2607004FVakta málsnúmer
19.Fundargerðir Héraðsnefndar Rangæinga 2026
Málsnúmer 2601030Vakta málsnúmer
2 b) Öldungaráð
Héraðsnefnd óskar eftir að sveitarfélögin í Rangárvallasýslu tilnefni
hver og eitt, einn fulltrúa og einn til vara í Öldungaráð. Afgreiðslu
frestað til haustfundar.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Samþykkt samhljóða.
20.Fundargerðir Brunavarna Rangárvallasýslu 2026
Málsnúmer 2601031Vakta málsnúmer
21.Fundargerðir Lundar 2026
Málsnúmer 2601028Vakta málsnúmer
22.Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands 2026
Málsnúmer 2605009Vakta málsnúmer
23.Aðalfundur 2026 - Veiðifél. Landmannaafr.
Málsnúmer 2604018Vakta málsnúmer
24.Fundargerðir Farsældarráðs Suðurlands 2026
Málsnúmer 2605078Vakta málsnúmer
25.Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2026
Málsnúmer 2601034Vakta málsnúmer
26.Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 2026
Málsnúmer 2601035Vakta málsnúmer
27.Kynningarbréf til kjörinna fulltrúa - Samtök orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2607038Vakta málsnúmer
28.Dansleikur á Töðugjöldum - Umsagnarbeiðni vegna tækifærisleyfis
Málsnúmer 2608017Vakta málsnúmer
29.Beiðni um umsögn vegna skoteldaleyfis á Töðugjöldum
Málsnúmer 2608018Vakta málsnúmer
ÞS og EVS tóku til máls.
Fundi slitið - kl. 10:00.