Oddviti óskar eftir því að fundargerð Húsakynna frá 8. september verði tekin inn á dagskrá fundarins og verði nr. 12 aðrir liðir færast sem því nemur.
1.Samantekt sveitarstjóra og eða oddvita
Málsnúmer 2602008Vakta málsnúmer
Sveitarstjóri fór yfir samantekt um ýmis mál sem hafa verið unnin milli sveitarstjórnarfunda.
2.Samþykktir Rangárþings ytra - endurskoðun
Málsnúmer 2606011Vakta málsnúmer
Inngangur:
Tillaga að breytingum á samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings ytra nr. 656/2023 er lögð fram til seinni umræðu. Þær breytingar eru gerðar á samþykktinni að gert er ráð fyrir nýrri skipan fastanefnda á vegum sveitarfélagsins. Eftir breytingu verða eftirfarandi fastanefndir starfandi hjá sveitarfélaginu:
1) Byggðarráð
2) Kjörstjórn
3) Skipulagsnefnd (áður Skipulags- og umferðarnefnd)
4) Markaðs-, menningar og jafnréttismálanefnd
5) Heilsu-, íþrótta og tómstundanefnd
6) Hálendis- og umhverfisnefnd (áður Hálendis- og samgöngunefnd)
7) Innviðanefnd (ný nefnd, hluti verkefna áður undir Framkvæmda- og eignanefnd)
8) Fjallskilanefndir Landmannaafréttar, Holtamannaafréttar og Rangárvallaafréttar
9) Framkvæmda- og eignanefnd (efnislegar breytingar á verkefnasviði)
Vegna breytinganna er þörf á að samþykkja ný erindisbréf fyrir eftirtaldar nefndir sveitarfélagsins:
Skipulagsnefnd
Hálendis- og umhverfisnefnd
Innviðanefnd
Framkvæmda- og eignanefnd
Fyrir fundinum liggja tillögur að erindisbréfum framangreindra nefnda til samþykktar.
Bókun:
Lagt er til að fyrirliggjandi tillaga að breytingum á samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings ytra nr. 656/2023 verði samþykkt og sveitarstjóra verði falið að annast um birtingu breytinganna í B-deild Stjórnartíðinda ásamt birtingu breyttrar samþykktar á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
Lagt er jafnframt til að fyrirliggjandi tillögur að nýjum erindisbréfum eftirtalinna nefnda verði samþykktar, með fyrirvara um að þau taki gildi við birtingu á framangreindum breytingum á samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings ytra nr. 656/2023 í B-deild Stjórnartíðinda:
Skipulagsnefnd
Hálendis- og umhverfisnefnd
Innviðanefnd
Framkvæmda- og eignanefnd
Samþykkt samhljóða.
Lagt er einnig til að sveitarstjóra verði falið að láta vinna tillögu að uppfærslu erindisbréfa eftirtalinna fastanefnda til samræmis við breytingar sem gerðar hafa verið á erindisbréfum framangreindra nefnda og leggja fyrir næsta reglulega fund sveitarstjórnar:
Markaðs-, menningar og jafnréttismálanefnd
Heilsu-, tómstunda- og íþróttanefnd

3.Tilnefning í gjafasjóð Lundar
Málsnúmer 2609003Vakta málsnúmer
Óskað er eftir tilnefningu í gjafasjóð Lundar samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins. Rangárþingi ytra ber að tilnefna 1 aðalmann og 1 varamann.
Tillaga er um að tilnefna Margréti Hörpu Guðsteinsdóttur sem aðalmann og Ingvar Pétur Guðbjörnsson sem varamann.
Samþykkt samhljóða.
Tillaga er um að tilnefna Margréti Hörpu Guðsteinsdóttur sem aðalmann og Ingvar Pétur Guðbjörnsson sem varamann.
Samþykkt samhljóða.
4.Erindi til sveitarstjórnar frá Ungmennafélaginu Heklu
Málsnúmer 2511010Vakta málsnúmer
Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og taka saman upplýsingar fyrir næsta fund byggðarráðs.
ÞS og EVS tóku til máls.
Samþykkt samhljóða.
ÞS og EVS tóku til máls.
Samþykkt samhljóða.
5.Melalda 6. Stofnun lóðar
Málsnúmer 2608054Vakta málsnúmer
Lyngalda 5 L235512 breytir um afmörkun, stærð og staðfang. Lyngalda 5 L235512 er skráð 810 m² í fasteignaskrá HMS. Lóðin fær staðfangið Melalda 6 og stækkar um 1444,5 m² og verður 2254,5 m² að stærð. Mismunurinn kemur úr landi Gaddstaða L164482 sem er ekki með skráða stærð en minnkar um það sem því nemur. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur dags. 24.8.2026.
Sveitarstjórn samþykkir afmörkun og stofnun lóðarinnar Melalda 6.
Sveitarstjórn samþykkir afmörkun og stofnun lóðarinnar Melalda 6.
6.Ársþing SASS 2026
Málsnúmer 2608055Vakta málsnúmer
Tillaga er um að skipa eftirtalin sem fulltrúa sveitarfélagsins á Ársþing SASS og aðalfund HSL.
Aðalmenn:
Eggert Valur Guðmundsson
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
Ingvar Pétur Guðbjörnsson
Guðmar Aubertsson
Varamenn:
Erla Sigríður Sigurðardóttir
Viðar Már Þorsteinsson
Sóley Margeirsdóttir
Gyða Árný Helgadóttir
Samþykkt samhljóða
Aðalmenn:
Eggert Valur Guðmundsson
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
Ingvar Pétur Guðbjörnsson
Guðmar Aubertsson
Varamenn:
Erla Sigríður Sigurðardóttir
Viðar Már Þorsteinsson
Sóley Margeirsdóttir
Gyða Árný Helgadóttir
Samþykkt samhljóða
7.Svínhagi L7 og L8A. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi.
Málsnúmer 2601359Vakta málsnúmer
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun. Skipulags- og umferðarnefnd áréttar og leggur til að unnið verði sérstakt samgöngumat fyrir ofanverða Rangárvelli og Landsveit með tilliti til mikillar uppbyggingar, bæði til íbúðar- og frístundabyggðar - og varðandi uppbyggingar verslunar- og þjónustusvæða.
Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
8.Grásteinn. Breyting á deiliskipulagi.
Málsnúmer 2602023Vakta málsnúmer
Eigendur Grásteins L174770 óska eftir að fá að leggja fram tillögu að breytingum á gildandi deiliskipulagi dags. 30.6.2020. Afmarkaðar eru tvær nýjar lóðir, Túnbrekka og Sólbarð, og settir byggingarskilmálar fyrir þær. Á hvorri lóð er heimilt að byggja íbúðarhús með bílskúr, gestahús og skemmu, samtals allt að 1200 m². Byggingareitur B4 er felldur út. Áform eru um uppbyggingu íbúðarhúsa og tengdra bygginga í landbúnaðarnotum.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Byggðarráð frestaði afgreiðslu erindisins á fundi sínum 26. ágúst og var sveitarstjóra falið að afla frekari gagna.
Að fengnu áliti lögmanns sveitarfélagsins staðfestir sveitarstjórn bókun skipulags- og umferðarnefndar.
Sveitarstjórn vekur athygli á að með auglýsingu og samþykkt deiliskipulags er eingöngu kveðið á um skipulagslega landnotkun, en ekki skorið úr um einkaréttarlegan ágreining um landamerki, eignarhald á vegi eða nýtingu sameignar.
Jafnframt er vakin athygli á að samþykkt deiliskipulags veitir ekki einkaréttarlega heimild til framkvæmda og útgáfa framkvæmda- eða byggingarleyfa verður háð því að fullnægjandi eignarheimildir og lögmælt samþykki eigenda aðkomuvegar liggi fyrir.

9.Erindi til sveitarstjórnar vegna Hrútmálavirkjunar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Málsnúmer 2608063Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar.
10.Ásholt, L223328. Töltspor ehf. Beiðni um umsögn vega rekstrarleyfis
Málsnúmer 2606009Vakta málsnúmer
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Ólafs Brynjars Ásgeirssonar fyrir hönd Töltspors ehf., kt. 701112-0670 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" Minna gistiheimili að Ásholti, rýmisnúmer 010102 fyrir 4 gesti, í Rangárþingi ytra. Umsókn barst 4.6.2026.
Lagt er til að sveitarstjórn geri ekki athugasemd við beiðnina.
Samþykkt samhljóða.
Lagt er til að sveitarstjórn geri ekki athugasemd við beiðnina.
Samþykkt samhljóða.
11.Byggðarráð Rangárþings ytra - 3
Málsnúmer 2608005FVakta málsnúmer
Fundargerð byggðarráðs lögð fram og staðfest.
-
Byggðarráð Rangárþings ytra - 3 Sveitarstjóra er falið að undirrita merkjalýsingu þegar allir aðrir landeigendur hafa gert það.
Samþykkt samhljóða Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 3 Byggðarráð leggur til að Þrúðvangur 18 verði settur í söluferli.
Samþykkt samhljóða Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.
IPG og EVS tóku til máls.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 3 Lagt er til að fela markaðs- og kynningarfulltrúa að kalla eftir hugmyndum frá íbúum um með hvaða hætti verði haldið uppá 100 ára afmæli Hellu. Í framhaldi taki markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd málið fyrir og leggi til næstu skref í undirbúningi afmælisárs.
Gera þarf ráð fyrir kostnaði á fjárhagsáætlun 2027 vegna afmælisárs.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.
IPG tók til máls.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 3 Lögð fram drög að samstarssamning á milli UMFÍ, HSK og Rangárþings ytra varðandi Landsmót 50 á Hellu 23. - 25. júní 2027.
Byggðarráð leggur til að sveitarstjórn staðfesti samninginn. Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 3 Farið yfir tillögur að næstu skrefum og þær ræddar. Lagt er til að haldinn verði vinnufundur Byggðarráðs um málið.
Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram. Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 3 Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Úlfs Ísfelds Rögnvaldssonar fyrir hönd Lake cabin ehf., kt. 300495-2149 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" minna gistiheimili á lóðinni Hagi lóð, L192681, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 24.11.2025.
Lagt er til að sveitarstjórn geri ekki athugasemd við beiðnina.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 3 Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Ævars Svans Sigurðssonar fyrir hönd Skuggasíðu ehf., kt. 640622-0320, um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "H" frístundahús á Ægissíðu 7 í Rangárþingi ytra, rýmisnúmer 020101 fyrir 2 gesti. Umsókn barst 26.6.2026.
Lagt er til að sveitarstjórn geri ekki athugasemd við beiðnina.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.
IPG víkur af fundi undir þessum lið.
Samþykkt samhljóða.
-
Byggðarráð Rangárþings ytra - 3 Sveitarstjórn vísaði erindi Héraðsnefndar um tilnefningu í Öldungaráð til Byggðarráðs.
Lagt er til að tilnefna Halldóru Þorvarðardóttur sem aðalmann og Pálínu Sigríði Kristinsdóttur til vara.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða.
12.Húsakynni bs - 3
Málsnúmer 2609002FVakta málsnúmer
-
Húsakynni bs - 3 Lagt er fram minnisblað um framkvæmdir á Laugalandi, dags. 31. ágúst 2026, þar sem gerð er grein fyrir framvindu, umfangi og áætluðum heildarkostnaði viðhalds- og endurbótaframkvæmda á árinu 2026. Fyrir liggur að heildarkostnaður verkefnisins er áætlaður um 240 m.kr. og fer um 100 m.kr. fram úr upphaflegri fjárfestingar- og viðhaldsáætlun ársins.
Með vísan til 2. mgr. 6. gr. samþykkta fyrir byggðasamlagið Húsakynni bs. samþykkir stjórn Húsakynna bs. að óska eftir viðbótarfjármagni með viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 að fjárhæð 100 m.kr. vegna framkvæmda á Laugalandi. Stjórnin vísar viðaukabeiðni til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórnum aðildarsveitarfélaga, Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Stjórn leggur áherslu á að við verklok liggi fyrir sundurliðað kostnaðaruppgjör vegna einstakra verkþátta framkvæmdarinnar.
Stjórn Húsakynna bs. áréttar jafnframt mikilvægi þess að strax fari af stað vinna við að móta og skýra framtíðarsýn fyrir Laugaland í samvinnu við notendur, svo tryggt sé að framtíðarframkvæmdir á svæðinu séu vel undirbúnar og haldist innan samþykktra áætlana.
Sveitarstjóra Rangárþings ytra og skrifstofustjóra Ásahrepps falið að að afla gagna fyrir næsta fund.
Næsti fundur verður haldinn mánudaginn 28. september kl. 08:15.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lögð er fram bókun stjórnar Húsakynna bs. frá 8. september, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 að fjárhæð 100 m.kr. vegna framkvæmda og viðhalds á Laugalandi.
Sveitarstjórn samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026 sem nemur eignarhlut sveitarfélagsins í viðauka Húsakynna bs. Viðaukinn verður fjármagnaður með lántöku.
Sveitarstjórn undirstrikar að við komandi framkvæmdaáfanga á Laugalandi verði sjálfstæð fjármögnun sveitarfélagsins tryggð fyrirfram innan samþykkts ramma nýrrar framtíðaráætlunar.
Sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram.
IPG, GA, ÞS og EVG tóku til máls.
Samþykkt samhljóða.
Bókun D-lista
Sveitarfélagið nálgast nú hápunkt mesta fjárfestingafasa frá upphafi vega. Þriðji hluti fasans, bygging leikskóla er í fullum gangi og stefnt að fokheldi fyrir lok yfirstandandi árs. Fjárfestingar sem nema tæplega 4 milljörðum króna. Slíkar stórframkvæmdir taka í og það hefur legið fyrir frá upphafi líkt og áætlanir segja til um.
Á sama tíma hefur verið kallað eftir fjármunum í margt annað s.s. viðhald eigna og breytingar m.a. við Laugalandsskóla. Á vordögum var samþykkt af hálfu eigenda Laugalandsskóla að fara út í ákveðnar framkvæmdir og viðhald til að bæta þar aðstöðu sem áætlað var að kostuðu rétt um 140 milljónir kr. Þær framkvæmdir átti m.a. að fjármagna með láni frá Ásahreppi til Rangárþings ytra fyrir 66,7% af 100 milljóna króna fjárfestingahluta verkefnisins. Ráðinn var sérstakur verkefnastjóri til verksins á vordögum til að halda utan um verkefnið.
Á fundi stjórnar Húsakynna bs. hinn 1. júlí sl. var farið yfir stöðu framkvæmda og tímalínu en ekkert kom þar fram um annað en að verkið yrði fjárhagslega á áætlun. Á fundi stjórnar 20. ágúst kemur í ljós að kostnaður væri að nálgast 240 milljónir eða 100 milljónir umfram fjárheimildir. Engar viðvaranir höfðu þá borist stjórn um slíka þróun.
Ýmsar spurningar vakna varðandi undirbúning, áætlanagerð, hönnun, samskipti stjórnenda, verkefnastjórn ofl. Ljóst er að standa hefði þurft mun betur að málinu frá upphafi og nauðsynlegt er að draga lærdóm af stöðunni. Allir voru sammála um að mikilvægt væri að bæta aðstöðu og ráðast í framkvæmdir en utanumhaldið getur ekki fengið háa einkunn.
Eftir stendur að fjármagna þarf umframkeyrsluna og það mun þýða aukna skuldsetningu hvernig sem á það er litið. Það er afstaða fulltrúa D-lista að skoða þurfi ofan í kjölinn hvað aflaga fór varðandi framkvæmdina, draga af því alvarlegan lærdóm og að mun betur þurfi að standa að mótun framtíðarsýnar, forgangsröðun, hönnun og áætlanagerð þegar kemur að frekari framkvæmdum þannig að þessi staða sem nú er uppi endurtaki sig ekki. Þá áskilja fulltrúar D-lista sér allan rétt til frekari spurninga og athugasemda þegar ítarlegri upplýsingar liggja fyrir.
IPG, GA og ÞS.
13.Fundargerðir stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárv. og V.Skaft. -2026
Málsnúmer 2601358Vakta málsnúmer
1. Fjárhagsáætlun - viðauki
101. fundur félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu lögð fram til staðfestingar.
Liður 1. fjárhagsáætlun, viðauki við fjárhagsáætlun staðfest.
Samþykkt samhljóða.
Liður 1. fjárhagsáætlun, viðauki við fjárhagsáætlun staðfest.
Samþykkt samhljóða.
Fundi slitið - kl. 09:40.