1.Rekstaryfirlit 2025 Tónlistarskóli Rangæinga bs.
2503091
Klara Viðarsdóttir, fjármálastjóri fór yfir rekstraryfirlit jan-okt.
2.Fjárhagsáætlun Tónlistarskóla Rangæinga bs. 2025. Viðaukar
2511151
Lagður fram viðauki 1 við fjárhagsáætlun ársins 2025 að upphæð 5,7 milljónir sem snýr að mestu til að bregðast við kjarasamningshækkunum launa. Viðaukanum er mætt með lækkun á handbæru fé.
Stjórn samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun 2025 og vísar til staðfestingar aðildarsveitarfélaga.
Stjórn samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun 2025 og vísar til staðfestingar aðildarsveitarfélaga.
3.Fjárhagsáætlun Tónlistarskóla Rangæinga bs. 2026
2511150
Lögð fram fjárhagsáætlun ársins 2026
Gert er ráð fyrir:
Rekstrartekjum að upphæð kr. 179.495.000.
Rekstrargjöld að upphæð kr. 179.314.000, án fjármagnsliða.
Rekstrarframlög sveitarfélaganna verði kr.163.320.000.
Stjórn samþykkir fjárhagsáætlun og vísar til staðfestingar aðildarsveitarfélaga.

4.Úr starfi Tónlistarskólans
2503090
Skólastjóri fór yfir ýmis málefni úr starfi skólans. Fram kom að nemendur á biðslista eru mjög fáir. Nemendafjöldi í skólanum eru nú tæplega 190. Börn sem tóku þátt í Krakkabarokk s.l. vor hefur verið boðið að taka þátt í tónleikum í Hörpu í mars. Rætt um kynningarmál inn í grunnskólanum en áformaðar eru kynningar á vorönn þótt ekki sé forskólakennsla. Tónlistarskólinn verður síðan 60 ára á árinu 2026 sem þarf að halda upp á með einhverjum hætti.
Þá kom fram af hálfu fulltrúa kennara hvort hægt væri að uppfæra heimasíðu tónlistarskólans og nýta betur aðra miðla til að vekja athygli á tónlistarskólanum og námi þar. Stjórn tekur undir það og felur skólastjóra að fylgja málinu eftir.

Fundi slitið - kl. 13:10.
Þá sátu fundinn Sandra Rún Jónsdóttir, Christiane Bahner, Glódís Margrét Guðmundsdóttir.