Klara Viðarsdóttir, fjármálastjóri, sat fundinn undir lið 1 og 2.
1.Rekstaryfirlit 2026. Tónlistarskóli Rangæinga bs.
2604024
Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri kynnti rekstur byggðasamlagsins janúar til mars.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
2.Ársreikningur Tónlistarskóla Rangæinga bs 2025
2604022
Klara Viðarsdóttir fór yfir framlagðan ársreikning Tónlistarskóla Rangæinga 2025.
Rekstrarniðurstaða skólans var neikvæð á árinu 2025 um 16,5 millj. kr.sem stafar af mestu leyti af launahækkunum og hækkun lífeyrisskuldbindinga. Við gerð viðauka s.l. haust var ákveðið að ganga á handbært fé til að mæta hækkuninni. Eigið fé í árslok var neikvætt um 66 millj. kr.
Stjórn samþykkti ársreikning samhljóða og undirritaði hann.

3.Úr starfi Tónlistarskólans
2604023
Skólastjóri fór yfir ýmis málefni úr starfi skólans. Skólastjóri sótti þing KÍ í Reykjavík þar sem ýmis mál voru rædd.Nemendur sem tóku þátt í Krakkabarokk s.l. vor komu fram á tónleikum í Hörpu í mars. Tónlistarskólinn átti tvö atriði á Nótunni sem haldin var í Salnum í Kópavogi í apríl. Nemendatónleikar voru í mars/apríl og vortónleikar verða 30. apríl. Haldin verður þemavika í maí. Skólaslit verða 19. maí. Þá vakti skólastjóri athygli á aðstöðu skólans til kennslu upp á Laugalandi sem mætti vera betri og stöðugri.
Stjórn telur að það þurfi að uppfæra lista yfir hljóðfæraeign skólans og felur skólastjóra að vinna málið áfram.
Stjórn telur að það þurfi að uppfæra lista yfir hljóðfæraeign skólans og felur skólastjóra að vinna málið áfram.
Fundi slitið - kl. 11:00.