23. fundur 11. maí 2026 kl. 10:00 - 11:00 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Magnús H. Jóhannsson formaður
  • Viðar M. Þorsteinsson aðalmaður
  • Björk Grétarsdóttir aðalmaður
  • Jóhanna Hlöðversdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson
Fundargerð ritaði: Magnús Hrafn Jóhannsson formaður

1.Forgangsröðun á vinnu við tengivegi

Málsnúmer 2510030Vakta málsnúmer

Fulltrúar D-lista kalla eftir upplýsingum um stöðu vinnu við forgangsröðun tengivega sbr. niðurstöður fundar með Vegagerðinni þar sem óskað var eftir að sveitarfélagið myndi vinna tillögu að forgangsröðun uppbyggingu tengivega og senda stofnuninni.
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd leggur fram tillögu að forgangsröðun vegna viðhalds tengivega í sveitarfélaginu. Við forgangsröðun var tekið tillit til ástands veganna, umferðarþunga og skólaaksturs. Nefndin leggur til að Vegagerðinni verði sendur listinn.

271 Hryggjavegur - Landvegur 2,4 km, ÁDU 110
272 Bjallavegur - Lækjarbotnar 7,9 km ÁDU 115
272 Landvegur - Bjallavegur 0,25 km ÁDU 66
286 Landvegur - Hagi 12,17 km ÁDU 79
252 Landeyjavegur - sveitarfélagsmörk (Uxahryggur) 6,13 km ÁDU 105
264 Keldnavegur - Hróarslækur 9,3 km ÁDU 125
268 Þingskálar - Haukadalur 4,2 km ÁDU 82

Að auki leggur nefndin áherslu á að ný brú verði byggð yfir Eystri Rangá við Reynifell. Undanfarin ár hefur verið unnið að viðhaldi eins og kostur er, en brúin er komin á það stig að endurbætur og viðhald gagnast ekki nema sem lausnir til skamms tíma. Brúin er mikilvæg þar sem hún tengir efri byggðir Rangárvalla við Rangárþing eystra og er mikilvæg í ljósi áhættu vegna náttúruhamfara sem er rík á þessu svæði öllu. Brúin gagnast því íbúum beggja handa árinnar sem flóttaleið ef þörf er á. Byggja þarf nýja brú.

2.Kaldárholt. Framkvæmdaleyfi til borunar eftir heitu vatni.

Málsnúmer 2603097Vakta málsnúmer

Veitur sækja hér með um framkvæmdaleyfi fyrir borun nýrrar vinnsluholu á jörðinni Kaldárholti (L165096) í Rangárþingi ytra. Holan verður boruð með 100 tonna bor (Rig-16) niður á um 800-1.000 m dýpi. Hún verður með 10 3/4? vinnslufóðringu og vinnsluhlutinn verður boraður með 8 1/2? krónu. Holan verður með steyptri vinnslufóðringu niður á 100 til 400 m dýpi. Áætlaður bortími er 3-5 vikur. Við borlok verður holan prófuð með stuttu blástursprófi (hámark 6 klst.).

Útbúa þarf um 3.200 m2 borplan fyrir borinn á framkvæmdatíma. Vegur liggur nú þegar að dælustöðinni, en þaðan þarf að leggja um 70 m langan veg frá norðurhlið dæluhússins að borplani. Aðflutt efni í borplan og veg verður um 3.000 m3 og verður efnið fengið úr nærliggjandi námum með tilskilin leyfi.
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd leggst ekki gegn veitingu framkvæmdaleyfis til borunar eftir heitu vatni þegar leyfi Fiskistofu liggur fyrir.

3.Vikurnám Merkihvolsland. MÁÚ

Málsnúmer 2509071Vakta málsnúmer

Lagt fram álit HMS á matsáætlun.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:00.