1. fundur 04. ágúst 2026 kl. 08:30 - 11:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Jóhanna Hlöðversdóttir formaður
  • Erla Sigríður Sigurðardóttir aðalmaður
  • Daníel Freyr Steinarsson aðalmaður
  • Árni Kristjánsson aðalmaður
  • Sævar Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson
Fundargerð ritaði: Jóhanna Hlöðversdóttir formaður
Erla Björk frá Afli og orku ehf fór yfir áherslur og áform um Tunguvirkjun.

1.Tunguvirkjun í Keldnalæk. Erindi vegna matsfyrirspurnar

Málsnúmer 2408009Vakta málsnúmer

Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun leitar umsagna umsagnaraðila vegna tilkynninga til ákvörðunar um matsskyldu á grundvelli 20. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Afl og Orka ehf. hefur gert samning við landeiganda að Keldnalæk í Rangárþingi ytra um uppbyggingu og rekstur Tunguvirkjunar í landi Keldna. Fyrirhuguð virkjun er allt að 3 MW rennslisvirkjun. Framkvæmdin felur meðal annars í sér byggingu inntaksmannvirkis og inntakslóns, sem verður um 3,5 ha. að stærð, auk um 1,4 km langrar aðrennslispípu frá inntaki að stöðvarhúsi. Jafnframt er áætlað að leggja um 3,5 km af vegslóðum innan framkvæmdarsvæðis. Áætluð heildarstærð framkvæmdasvæðisins er talin nema um 25 ha. Á mynd 1.1 má sjá staðsetningu framkvæmdasvæðis við ármót Keldnalækjar og Eystri-Rangá. Áður en lengra er haldið með undirbúning óskar Afl og Orka ehf. hér með eftir ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) um það hvort framkvæmdin sem lýst er sé matsskyld skv. lögum nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Virkjunin telst vera í flokki B samkvæmt skilgreiningu í viðauka 1 í fyrrgreindum lögum og er því tilkynningaskyld til HMS, sem metur framkvæmdina á grundvelli viðmiðana sem lýst er í viðauka 2 í þessum sömu lögum.
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd þakkar fyrir kynningu Erlu. Tunguvirkjun er metnaðarfullt verkefni sem ætlað er til að styðja við raforkuframleiðslu í Rangárþingi ytra og Rangárþingi eystra.

Nefndin tekur undir bókun Skipulags- og umferðarnefndar en eins og segir þar “Með hliðsjón af eðli og umfangi framkvæmdarinnar, viðkvæmni framkvæmdarsvæðisins og viðmiðum 2. viðauka laga nr. 111/2021 telur nefndin að ekki sé unnt að útiloka að framkvæmdin geti haft í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif.
Mörgum spurningum hefur verið svarað frá fundi skipulags- og umferðarnefndar, ekki liggur fyrir áhrifamat vegna vatnshlota.

Meirihluti Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefndar leggur til við sveitarstjórn að Tunguvirkjun sæti umhverfismati í samræmi við lög nr. 111/2021.

Sævar Jónsson telur umhverfisáhrif sáralítil og telur því enga þörf á að framkvæmdin skuli háð umhverfismati.

Erlu Björk þökkuð góð yfirferð þegar hún yfirgaf fundinn.

2.Norður Nýibær. Framkvæmdaleyfi til vegagerðar

Málsnúmer 2606003Vakta málsnúmer

Landeigandi óskar eftir framkvæmdaleyfi til vegagerðar í skipulögðu íbúðasvæði innan jarðar sinnar. Vegurinn tengir allt að 16 íbúðalóðir auk þjónustulóðar og aðkoma verður af Þykkvabæjarvegi um svokallaða Ástarbraut.
Lagt fram til kynningar

4.Landvegur. Búfjárræsi, framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2607031Vakta málsnúmer

Landsvirkjun óskar eftir að sveitarstjórn Rangárþings ytra gefi út framkvæmdaleyfi til handa fyrirtækinu fyrir að setja upp búfjárræsi norðan við Landvegamót. Framkvæmdin er hluti af vegabótum á þjóðvegi nr. 1 (Hringvegur) og þjóðvegi nr. 26, Landvegur, við Landvegamót tengt framkvæmdum við vindorkuverið Vaðölduver, samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 6. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 .
Umhverfis,- samgöngu- og hálendisnefnd leggur til við sveitarstjórn að útgáfa framkvæmdaleyfis til ræsisgerðar á Landvegi sbr. framlagðan uppdrátt og önnur gögn málsins verði samþykkt. Nefndin leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út leyfið og hafa eftirlit með framkvæmdunum.

5.Tungnaáreyrar. Framkvæmdaleyfi til efnistöku.

Málsnúmer 2606028Vakta málsnúmer

Landsvirkjun óskar eftir að sveitarstjórn Rangárþings ytra gefi út framkvæmdaleyfi til handa fyrirtækinu fyrir efnistöku, allt að 30.000 m3, á efnistökusvæði E70 við Tungnaá. Fyrirhuguð efnistaka er ætluð til framkvæmda við Vaðölduver og aðrar framkvæmdir á vegum

Landsvirkjunar á svæðinu. Álit HMS liggur fyrir þar sem það er mat stofnunarinnar að umrædd framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Umhverfis,- samgöngu- og hálendisnefnd hefur farið yfir greinargerð og áætlun umsækjanda. Nefndin gerir engar athugasemdir við fyrirliggjandi gögn og leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi að teknu tilliti til 5. greinar reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.

6.Kjör varaformanns í Umhverfis,- samgöngu- og hálendisnefnd 2026-2030

Málsnúmer 2607046Vakta málsnúmer

Kjör varaformanns kjörtímabilið 2026-2030. Í 2. gr. erindisbréfs nefndarinnar er kveðið á um að nefndarfólk kjósi varaformann á fyrsta fundi nefndarinnar.
Umhverfis,- samgöngu- og hálendisnefnd leggur til að Erla Sigríður Sigurðardóttir verði varaformaður nefndarinnar kjörtímabilið 2026-2030.

7.Umhverfisverðlaun 2026

Málsnúmer 2607049Vakta málsnúmer

Rætt um áherslur vegna umhverfisviðurkenninga fyrir árið 2026.
Umhverfis,- samgöngu- og hálendisnefnd felur formanni að auglýsa eftir tilnefningum fyrir lögbýli, hús í þéttbýli og fyrirtæki.

Fundi slitið - kl. 11:00.