10. fundur 13. apríl 2026 kl. 18:00 - 19:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Þorgeir Óli Eiríksson aðalmaður
  • Anna Ísey Engilbertsdóttir formaður
  • Jóhanna Gerður Hrannarsdóttir aðalmaður
  • Kristín Birta Daníelsdóttir aðalmaður
  • Helga Fjóla Erlendsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Jóhann G. Jóhannsson
Fundargerð ritaði: Jóhann G. Jóhannsson

1.Ungmennaþing 2025

2504068

Farið yfir niðurstöður ungmennaþings 2026.
Ungmennaráð lýsti ánægju sinni með Ungmennaþingið og rýndi í niðurstöður og ræddi framhaldið.

2.Erindi farsældarráðs SASS

2603073

Erindi farsældarráðs Suðurlands. Óskað er eftir að ungmennaráð taki til umfjöllunar á næsta fundi sínum eftirfarandi spurningar:



1.
Hverjar eru helstu áskoranir barna- og ungmenna í ykkar nærumhverfi/sveitarfélagi?

2.
Hvaða ákall hafið þið til þess að bæta aðstæður barna- og ungmenna í sveitarfélaginu?

3.
Hvaða leiðir sjáið þið í átt að aukinni samvinnu/samstarfi á milli stofnana/sveitarfélaga sem geta bætt stöðu barna- og ungmenna?

4.
Er eitthvað annað sem þið viljið koma á framfæri varðandi bætta stöðu eða aukna farsæld barna- og ungmenna?
Svör við erindi farsældarráðs Suðurlands. Óskað var eftir að ungmennaráð tæki til umfjöllunar á næsta fundi sínum eftirfarandi spurningar:

1.
Hverjar eru helstu áskoranir barna- og ungmenna í ykkar nærumhverfi/sveitarfélagi?
- Samgöngur, sérstaklega þeir sem búa í sveit. Foreldrar ekki alltaf til taks að skutla. (Íþróttir/tómstundir ofl)

2.
Hvaða ákall hafið þið til þess að bæta aðstæður barna- og ungmenna í sveitarfélaginu?
- Bættar samgöngur innan sveitarfélagssins og á milli sveitarfélaga.

3.
Hvaða leiðir sjáið þið í átt að aukinni samvinnu/samstarfi á milli stofnana/sveitarfélaga sem geta bætt stöðu barna- og ungmenna?
- Samskipti milli Ungmennaráða og félagsmiðstöðva og sameiginlega fundi og þing. Sérstaklega milli nærliggjandi sveitarfélaga.

4.
Er eitthvað annað sem þið viljið koma á framfæri varðandi bætta stöðu eða aukna farsæld barna- og ungmenna?
- Nei en sjá meðfylgjandi niðurstöður Ungmennaþings.

3.Samráðsfundur ÍSÍ, UMFÍ, Svæðisstöðva íþróttahéraða og Ungmennaráðs UMFÍ

2604009

Boð á fund með ungu fólki á Suðurlandi. Samráðsfundur sem ÍSÍ, UMFÍ, Svæðisstöðvar íþróttahéraða og Ungmennaráð UMFÍ standa fyrir um land allt.
Ungmennaráð staðfesti móttöku boðs á fund með ungu fólki á Suðurlandi og þakkar fyrir. Samráðsfundur sem ÍSÍ, UMFÍ, Svæðisstöðvar íþróttahéraða og Ungmennaráð UMFÍ standa fyrir um land allt.

4.Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna

2604028

Meðfylgjandi er bréf til sveitarstjórnar Rangárþings ytra frá umboðsmanni barna.

Ungmennaráð sveitarfélagsins fær sent afrit af bréfinu.
Ungmennaráð hefur móttekið og þakkar fyrir bréfið.

Fundi slitið - kl. 19:00.