1.Ósk um endurskoðun samnings um vatnstöku Traðarholti.
Málsnúmer 2411006Vakta málsnúmer
Að beiðni Ara Árnasonar óskuðu eigendur Traðarholts eftir endurskoðun samnings. Farið yfir stöðu mála þar.
2.Geldingalækur vatnstaka
Málsnúmer 2502075Vakta málsnúmer
Árið 2002 var gerð þarfagreining og forhönnun á vatnsveitukostum innan Rangárþings ytra. Einn af áhugaverðum kostum í þessari skýrslu er að taka vatn frá skilgreindu vatnsbóli á Geldingalæk. Óskað er eftir heimild til að skoða þann kost enn frekar til vatnsöflunar fyrir Hellu og nærsveitir.
Áhugavert er að skoða frekar vatnstöku í landi Geldingarlækjar og leita heimildar landeiganda til vatnstöku ásamt því að vinna áfram með þá forhönnun sem gerð var árið 2002 af Línuhönnun.
Lagt er til fá Eflu (áður Línuhönnun) til að rýna gerða forhönnun fyrir vatnsbólið við Geldingalæk með flutning vatns á Hellu, Þykkvabæ og Oddalögn ásamt því að hafa Græna iðngarða á Strönd í huga.
Stjórn felur THT að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
Lagt er til fá Eflu (áður Línuhönnun) til að rýna gerða forhönnun fyrir vatnsbólið við Geldingalæk með flutning vatns á Hellu, Þykkvabæ og Oddalögn ásamt því að hafa Græna iðngarða á Strönd í huga.
Stjórn felur THT að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
3.Fundargerðabækur - tillaga um að leggja þær niður.
Málsnúmer 2502076Vakta málsnúmer
Lagt til að hætt verði að nota fundargerðarbækur til að staðfesta fundarsókn í samræmi við samþykkt Byggðaráðs 22.jan 2025
Lagt til að hætt verði að nota fundargerðarbók til staðfesta fundarsókn en haldið verði áfram að nota trúnaðarmálabók.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
4.Yfirlit veitustjóra.
Málsnúmer 2310057Vakta málsnúmer
Farið yfir rekstur veitunnar síðustu tímabil.
THT fór yfir stöðu daglegs reksturs veitunnar. Verið er að ljúka tengingu nýrrar Þykkvabæjarlagnar inn á vatnstankinn í Þykkvabæ. Leki kom í ljós á tengingu annarrar aðaltengingar frá vatnstankinum í Freyvangi á síðustu dögum og gekk viðgerð vel. Að öðru leyti hefur daglegur rekstur veitunnar gengið vel og fjárhagslega lítur rekstur út fyrir að vera í jafnvægi.
Búið er að kaupa inn fyrsta skammt af rennslismælum með fjarálestri og verður byrjað að setja þá upp á næstu vikum hjá stórnotendum.
Búið er að kaupa inn fyrsta skammt af rennslismælum með fjarálestri og verður byrjað að setja þá upp á næstu vikum hjá stórnotendum.
Fundi slitið - kl. 16:15.
Málinu frestað til næsta fundar.