11. fundur 10. júní 2025 kl. 08:30 - 10:00 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir formaður
  • Þráinn Ingólfsson aðalmaður
  • Eydís Þ. Indriðadóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
  • Tómas Haukur Tómasson embættismaður
  • Jón G. Valgeirsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Tomas Haukur Tómasson embættismaður

1.Geldingalækur vatnstaka

Málsnúmer 2502075Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu frumhönnunar og lagnaleiða vegna fyrirhugaðrar vatnstöku í landi Geldingalækjar.
Gert er ráð fyrir að leggja slóða frá Þingskálavegi inn á hraunkantinn þar sem boraðar verða vinnsluholur. Stofnlagnir liggi frá borholum með Þingskálavegi og annarsvegar niður að Traðarholti þar sem hún tengist núverandi lögn. Hinsvegar á seinni stigum verður stofn lagður að núverandi Gunnarsholtsvegi að Suðurlandsvegi og niður að vatnstökusvæði í landi Selalækjar.
Lagt til að hefja skipulags- og samningsferli vegna fyrirhugaðrar vatnstöku í landi Geldingalækjar og stofnlagna.

Samþykkt samhljóða.

2.Ósk um endurskoðun samnings um vatnstöku Traðarholti.

Málsnúmer 2411006Vakta málsnúmer

Staða mála varðandi upptöku samninga skoðuð.
Vegna fyrirhugaðrar vatnstöku í landi Geldingalækjar óskar stjórn eftir að endurupptökuákvæði verði haldið opnu fram til 31. ágúst 2025. Stjórn óskar efir að kallað verði eftir kostnaði við að endurskoða grannsvæði núverandi vatnstöku. Eins er ljóst að skógrækt er heimil á umræddu vatnstökusvæði en önnur landnotkun er háð skilmálum. Formanni og veitustjóra er falið að funda með landeigendum hið fyrsta.

Samþykkt samhljóða.

3.Yfirlit veitustjóra.

Málsnúmer 2310057Vakta málsnúmer

Farið yfir rekstur veitunnar það sem af er ári.
THT fór yfir helstu þætti vatnsveitunnar. Rekstur í góðu jafnvægi og lítið um bilanir.

Fundi slitið - kl. 10:00.