Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir liðum 1-3.
1.Rekstraryfirlit jan-sept 2025- Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps.
2510014
Lagt fram rekstraryfirlit Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps fyrir tímabilið jan-sept 2025
Lagt fram yfirlit um rekstur Vatnsveitunnar janúar til september 2025
Fjárfesting er verulega innan áætlunar vegna breytingar á áætlun og umsókna um leyfi til vatnstöku í landi Geldingarlækjar.
Fjárfesting er verulega innan áætlunar vegna breytingar á áætlun og umsókna um leyfi til vatnstöku í landi Geldingarlækjar.
2.Gjaldskrá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps 2026
2510016
Lögð fram drög að gjaldskrá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps fyrir árið 2026
Lögð fram drög að gjaldskrá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps til samþykktar. Lagt er til að hækka gjaldskrá um 3,5%.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
3.Fjárhagsáætlun Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps 2026
2510015
Fjárhagsáætlun 2026 lögð fram til umræðu og samþykktar.
Lögð fram tillaga að fjárhags 2026
Tillagan gerir ráð fyrir að tekjur verði 150 mkr og rekstrarniðurstaða jákæð um 23 mkr.
Gert er ráð fyrir að fjárfesting verði 51 mkr.
Samþykkt samhljóða.
Tillagan gerir ráð fyrir að tekjur verði 150 mkr og rekstrarniðurstaða jákæð um 23 mkr.
Gert er ráð fyrir að fjárfesting verði 51 mkr.
Samþykkt samhljóða.
4.Umsókn um kaldavatnstengingu á svæði sem er ekki innan veitusvæði Vatnsveitu.
2510017
Umsókn um kaldavatnstengingu á svæði sem er utan veitusvæðis Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Stjórn telur að vert að skoða hagkvæmni á nýjum tengingum til norðurs frá fyrirhuguðu vatnstökusvæði við Geldingarlæk, að því gefnu að þau áform gangi eftir.
Veitustjóra falið að vinna málið áfram.
Veitustjóra falið að vinna málið áfram.
5.Geldingalækur vatnstaka
2502075
Farið yfir stöðu undibúnings mögulegrar vatnstöku við Geldingalæk.
Stjórn Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps leggur áherslu á að sambærilegur samningur náist við FSRE um vatnstöku í landi Geldingalækjar, líkt og gerðir hafa verið við aðra landeigendur á vatnstökusvæðum veitunnar.
Náist ásættanlegur samningur er lagt til að hafist verði handa við frekari undirbúning og framkvæmd samkvæmt tillögu 3 í fyrirliggjandi frumáætlun.
Samþykkt samhljóða.
Náist ásættanlegur samningur er lagt til að hafist verði handa við frekari undirbúning og framkvæmd samkvæmt tillögu 3 í fyrirliggjandi frumáætlun.
Samþykkt samhljóða.
6.Fyrirspurnir fulltrúa D-lista
2408013
Fulltrúar D-lista óska eftir að kallað verði eftir því frá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps hver staðan er á vinnu við uppsetningu mæla hjá stórnotendum á starfssvæði veitunnar.
Uppsetning og endurnýjun stafrænna mæla er hafin og er gert ráð fyrir að henni ljúki á þessu ári.
7.Fyrirspurn um dæluhús vatnsveitunnar á Hellu
2509086
Fyrirspurn vegna dæluhúss við Hólavang.
Stjórn þakkar fyrir erindið og felur veitustjóra að bregðast við og laga ásýnd dæluhúss og svæðis.
8.Yfirlit veitustjóra.
2310057
Farið yfir daglegan rekstur Vatnsveitunnar.
Tómas fór yfir rekstur veitunnar fram til dagsins í dag sem er í jafnvægi.
Fundi slitið - kl. 12:30.