Klara Viðarsdóttir, fjármálastjóri, mætir undir lið 1.
1.Ársreikningur Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps 2025
Málsnúmer 2604065Vakta málsnúmer
Ársreikningur Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps fyrir árið 2025 lagður fram til yfirferðar og staðfestingar.
Klara Viðarsdóttir, fjármálastjóri fór yfir endurskoðaðan ársreikning Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs. fyrir árið 2025. Rekstrarniðurstaða veitunnar var jákvæð um 8,8 milljónir.
Fjárfesting ársins var 10 milljónir nettó.
Ársreikningur 2025 var samþykktur samhljóða og áritaður.
Stjórn vill árétta mikilvægi þess að ársreikningur byggðarsamlagsins liggi fyrir tímalega vegna framlagningu ársreikinga aðildarsveitarfélaganna.
Fjárfesting ársins var 10 milljónir nettó.
Ársreikningur 2025 var samþykktur samhljóða og áritaður.
Stjórn vill árétta mikilvægi þess að ársreikningur byggðarsamlagsins liggi fyrir tímalega vegna framlagningu ársreikinga aðildarsveitarfélaganna.
2.Geldingalækur vatnstaka
Málsnúmer 2502075Vakta málsnúmer
Staða mála varðandi hugsanlega vatnstöku Geldingalæk.
Tómas fór yfir stöðu mála. Samtöl eru í gangi við FSRE um afgjöld ríkisins af köldu vatni í landi ríkisins gagnvart samfélagsveitum. Þegar niðurstaða færst í þau mál verður afstaða tekin til næstu skrefa.
3.Yfirlit veitustjóra.
Málsnúmer 2310057Vakta málsnúmer
Yfirlit veitustjóra.
Tómas fór yfir rekstur veitunnar. Búið er að setja út stafræna mæla á flesta stærri notendur veitunnar og er mælavæðing mjög langt komin. Á næstunni verður hægt að fara að gera prufumælingar og meta m.t.t. mögulegra breytinga á gjaldskrá. Verið er að vinna með útfærslur á vöktunarkerfinu og innleiðingu á því en nú eru allir 2 og 3G sendarnir aflagðir. Kerfið hefur nýst vel við vöktun á veitunni. Ný lögn niður í Þykkvabæ hefur nýst vel og breytt ástandinu en verið er að vinna að aðlögun kerfisins. Búið er að fá heimild til yfirtöku á aflagðri hitaveitulögn frá Veitum frá Ásmundarstöðum að Berustöðum sem mun bæta afhendingaröryggi. Þá er verið að undirbúa uppsetningu á nýrri dælustöð við Rauðalæk.
Fundi slitið - kl. 10:45.