Klara Viðarsdóttir sat fundinn undir lið 1. Einnig var Auðunn Guðjónsson í símasambandi undir lið 1.
1.Endurskoðun samninga Rangárþings ytra og Ásahrepps
1412028
Lokafrágangur á skjölum
Unnið var í lokaútfærslu á kostnaðartölum fyrir þjónustusamninga og komist að niðurstöðu um tillögur.
2.Áfangaskýrsla um útfærslu verkefna
1503048
Lokaútgáfa áfangaskýrslu II um útfærslu einstakra samstarfsverkefna Á og Ry
Farið yfir texta í formála Heildarskýrslu og hún undirrituð. Viðræðunefnd hefur þá skilað verkefninu af sér til umfjöllunar hjá samráðsnefnd og afgreiðslu hjá sveitarstjórnum Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Fundi slitið - kl. 10:00.