1.Landmannalaugar, samningur við vinningshafa
1510072
Rangárþing ytra hefur samþykkt að hefja vinnu við deiliskipulag í Landmannalaugum. Farið yfir aðild vinningshafa og rædd samningsdrög.
Ákveðið var að vinningshafar myndu leggja fram tíma- og verkáætlun sem yrði forsenda væntanlegs samnings á milli aðila. Stefnt yrði að því að samningur verði undirritaður fyrir áramót. Kynning á verkáætlun fari fram á næsta fundi hópsins sem áformaður er á Þingvöllum, 18. desember nk. kl. 9.30.
2.Landmannalaugar, deiliskipulag
1310038
Rangárþing ytra stefnir að gerð deiliskipulags fyrir Landmannalaugar.
Rætt var um næstu skref skipulagsvinnunnar. Setja þarf saman lýsingu verkefnisins ásamt matsáætlun og umhverfisskýrslu. Skipst var á skoðunum um eðli aðstöðusköpunar og með hvaða hætti uppbygging ætti að vera, og hvar á svæðinu þyrfti að gera ráð fyrir uppbyggingu. Aðilar sammála um að gera þurfi þarfagreiningu fyrir svæðið áður en lengra er haldið. Stækkun aðstöðu við Námskvíslina var fólki hugleikið. Góður göngustígur þarf að vera til staðar frá Námshrauninu að Námskvíslinni og þarf hann að vera meðfram akstursleiðinni.
Fundi slitið - kl. 11:00.