7. fundur 28. september 2016 kl. 15:00 - 17:00 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Ágúst Sigurðsson
  • Anna G. Sverrisdóttir
  • Stefán Thors
  • Kristinn Guðnason
  • Þorgils Torfi Jónsson
  • Haraldur Birgir Haraldsson
  • Eiríkur Vilhelm Sigurðarson
  • Aðalheiður E. Kristjánsdóttir
  • Anna Sigríður Jóhannsdóttir
  • Áslaug Traustadóttir
  • Margrét Ólafsdóttir
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson Skipulags- og byggingarfulltrúi

1.Landmannalaugar, deiliskipulag

1310038

Rangárþing ytra vinnur að gerð deiliskipulags fyrir Landmannalaugar. Lýsing hefur verið kynnt skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsagnir bárust frá eftirtöldum aðilum:

Skipulagsstofnun með bréfi dags. 28.7.2016

Vegagerðinni með tölvupósti dags. 11.8.2016

Umhverfisstofnun með bréfi dags. 16.8.2016

Ferðafélagi Íslands með bréfi dags. 18.8.2016

Veðurstofu Íslands með bréfi dags. 23.8.2016
Allar umsagnir lagðar fram til kynningar. Stýrihópur mun taka tillit til framkominna umsagna við gerð tillögu að deiliskipulagi. Stýrihópurinn mun taka lýsinguna og ýmis áhersluatriði til frekari kynningar á opnum kynningarfundi 28. september á Hellu.

2.Landmannalaugar, Uppbygging grunnaðstöðu

1512019

Rangárþing ytra vinnur að gerð deiliskipulags fyrir Landmannalaugar. Leggja þarf áherslu á uppbyggingu grunnaðstöðu og liggja þegar fyrir ákveðnar línur í þeim efnum. Farið yfir fram komnar áherslur og fyrirliggjandi þarfagreiningu.
Stýrihópur leggur til að hugað verði að nauðsynlegum framkvæmdum í samræmi við áherslur hópsins. Hópurinn telur eðlilegast að sótt verði um styrki til slíkra verkefna og telur það liggja beinast við að sveitarfélagið Rangárþing ytra óski eftir styrkjum í slík verkefni með Umhverfisstofnun. Hópurinn leggur einnig áherslu á að allar umsóknir um styrki til framkvæmda í Landmannalaugum byggi á fyrirliggjandi þarfagreiningu. Jafnframt leggur hópurinn til að haft verði samband við Veðurstofu Íslands, Landgræðsluna og Fiskistofu um áframhaldandi vinnu við gerð og hönnun varnargarða við Námshraun.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?