Ertu að skipuleggja viðburð? Nýttu þér viðburðadagatalið!

Viðburðadagatalið hér á ry.is er kjörin leið til að koma viðburðum, stórum sem smáum, á framfæri.

Þú einfaldlega skráir upplýsingar um viðburðinn á þetta eyðublað, vefstjóri fær það til samþykktar og birtir viðburðinn í kjölfarið á heimasíðunni. Við deilum viðburðinum síðan á samfélagsmiðlunum okkar.

Þetta er einfalt og kostar ekkert.

Viðburðum á svæðinu fjölgar sífellt og við viljum gjarnan aðstoða við að koma þeim á framfæri, menningarlífi svæðisins til framdráttar.

Gerum þetta saman!

Hér er tengill á eyðublaðið

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?