Framkvæmdir við hitaveitulagnir hafnar

Eins og áður hefur verið tilkynnt þurfa Veitur að færa hitaveitulagnir við Þrúðvang, Þingskála og Útskála vegna uppbyggingar á svæðinu.

Nú er fyrri áfangi verksins að hefjast en hann tekur til Þrúðvangs og Þingskála og svæðisins á bakvið Olís eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Sérstök athygli er vakin á því að meðan á framkvæmdunum stendur þarf að taka strauminn af ljósastaurum við hluta Þrúðvangs, út fyrir Laufskála. Í seinni áfanga verksins verður svo straumurinn tekinn af ljósastaurum við Laufskála og Útskála.

Framkvæmdir eru hafnar og munu Veitur senda út tilkynningar til íbúa eftir þörfum.

 

Í eftirfarandi tilkynningu frá Veitum má finna nánari upplýsingar um framkvæmdirnar:

Kæru íbúar og aðrir viðskiptavinir

Á næstunni hefjast framkvæmdir í nágrenni ykkar. Veitur þurfa að færa hitaveitulagnir á nýjan stað vegna uppbyggingar á svæðinu. Núverandi lagnir liggja yfir fyrirhugaðan byggingareit. Áætlun gerir ráð fyrir að framkvæmdir standi yfir til loka ágúst á þessu ári.

Verkið verður unnið í tveimur hlutum. Fyrri hluti verður unninn í Þrúðvangi og við gatnamót Þingskála. Það hefst núna í apríl. Sá seinni verður í Útskálum þegar skóla lýkur snemma sumars.

Hjáleiðir verða settar upp og vinnusvæðið girt af til að tryggja öryggi.

Líklegt er að loka þurfi fyrir heita vatnið dagpart þegar nýjar lagnir eru tengdar, en það verður gert með góðum fyrirvara og tilkynnt sérstaklega.

Veitur munu ganga frá yfirborði að verki loknu og leggja áherslu á öryggi vegfarenda og starfsfólks.

Nánari upplýsingar og kort þar sem framkvæmdasvæðið sést er á vef okkar https://www.veitur.is/framkvaemdir/blt1030cd23e41a6fd8

Veitur viðhalda lögnum til að tryggja öllum íbúum nauðsynlega innviði og lífsgæði til framtíðar.

Með kveðju,
starfsfólk Veitna

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?