Gott gengi okkar krakka í stóru upplestrarkeppninni

Stóra upplestrarkeppnin var haldin á Hellu 30. apríl síðastliðinn.

Fulltrúar Rangárþings ytra stóðu sig með miklum sóma og hreppti Hákon Þór frá Laugalandsskóla 2. sætið og Hafdís Laufey frá Helluskóla 3. sætið.

Til hamingju krakkar, kennarar og aðstandendur. Lestrarframtíðin er sannarlega björt.

Nánar má lesa um keppnina á heimasíðu Grunnskólans á Hellu með því að smella hér.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?