Hraustir krakkar í Rangárþingi ytra

Nýlega lauk undanriðlum Skólahreysti þetta árið. Báðir skólar sveitarfélagsins tóku þátt og skemmst er frá því að segja að báðir komust í úrslitin.

Við í Rangárþingi teljum okkur því eiga hraustustu krakka á landinu sem munu etja kappi í 12 skóla úrslitunum sem fara fram í beinni útsendingu á RÚV 25. maí næstkomandi kl. 19:45.

Við óskum nemendum, kennurum og öllum aðstandendum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur og óskum krökkunum einnig góðs gengis í úrslitunum.

Hér má nálgast umfjöllun Helluskóla um undankeppnina og skoða myndir

Hér má nálgast umfjöllun Laugalandsskóla um undankeppnina og skoða myndir

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?