Byggðasamlag um félagsþjónustu í Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu tók til starfa árið 2003. Að byggðasamlaginu standa Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdals-hreppur og Skaftárhreppur, en sá síðastnefndi gekk að fullu í samlagið um áramótin 2005-2006.
Stofnsamþykktum byggðasamlagsins var breytt á aukaaðalfundi í ágúst 2013. Um áramótin 2013 – 2014 bættist lögbundin sérfræðiþjónusta sveitarfélaga við leik- og grunnskóla við starfsemina í kjölfar niðurlagningar Skólaskrifstofu Suðurlands sem haft hafði sérfræðiþjónustu á svæðinu með höndum frá árinu 1996.
Byggðasamlagið skiptist nú í tvær sjálfstæðar deildir undir einni stjórn, félagsþjónustudeild og skólaþjónustudeild (sjá hnapp hér til hliðar) og heitir Félags – og skólaþjónustu Rangárvalla – og Vestur-Skaftafellssýslu bs.
Í stjórn byggðasamlagsins sitja 5 fulltrúar, einn frá hverju sveitarfélagi sem aðild á að því.
Félagsþjónustan er til húsa að Suðurlandsvegi 1-3 á Hellu, sími 487-8125, en skólaþjónustan að Ormsvelli 1 á Hvolsvelli, sími 487-8107.
Nánari upplýsingar um hvora deild fyrir sig er aðgengileg á heimasíðu félags- og skólaþjónustunnar.www.felagsogskolamal.is
Félagsmálanefnd er starfandi
Stjórn félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Lilja Einarsdóttir (RE)
Brynja J. Jónasdóttir (Á)
Þorbjörg Gísladóttir (M)
Haraldur Eiríksson (RY)
Þorsteinn M. Kristinsson (S)
Þórunn Jóna Hauksdóttir (Forstöðumaður Skólaþjónustu)
Svava Davíðsdóttir (Forstöðumaður Félagsþjónustu)
Fundargerðir stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Fundargerðir má nálgast hér.
Samþykktir félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Samþykktir félags- og skólaþjónustunnar verða aðgengilegar hér.
Hægt er að senda póst á ry@ry.is og óska eftir þeim virki linkurinn ekki.