Íþróttahúsið Hellu
Íþróttahúsið á Hellu er eitt stærsta og glæsilegasta íþróttamannvirkið í Rangárvallasýslu. Íþróttahúsið var formlega tekið í notkun í nóvember 1999. Húsið er um 1200 fm. að stærð, vel búið með löglegum völlum fyrir margar íþróttagreinar.