Málsnúmer 1406019
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd Rangárþings ytra - 71. fundur - 07.07.2014
Bryndís Einarsdóttir óskar eftir heimild sveitastjórnar til að deiliskipuleggja land sitt úr landi Ölversholts 5 til að byggja á íbúðarhús og útihús. Landið er 10,2 ha að stærð og skilgreint sem landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi Rangárþings ytra.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.