Málsnúmer 2308008

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 137. fundur - 05.03.2025

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Öldurs ehf um leyfi til breytinga á innra skipulagi og notkun húsnæðisins við Rangárbakka 2 á Hellu skv. uppdráttum frá SEI-studio, dags. 1.8.2023. Uppfærðir uppdrættir eftir athugasemdir byggingarfulltrúa eru lagðir fram.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.