Málsnúmer 2502017

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 134. fundur - 05.02.2025

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Þjótanda ehf um leyfi til að setja niður 2 stk 10m³ eldsneytistanka á lóð sína skv. uppdráttum frá Verkhofi dags. 15.1.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.