Málsnúmer 2508051

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 152. fundur - 20.08.2025

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Hauks Óskarssonar fyrir hönd Árhúsa ehf., kt. 450224-1380, um starfsleyfi á lóðinni Rangárbakki 8B, L164952, gistihús, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 19.08.2025.
Um er að ræða litla gistiskála af ýmsum stærðum, 23 talsins, frá 10,2 m² í 31,2 m².
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá. Ef breytingar hafa verið gerðar er krafist uppfærslu á teikningum.

Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.