Málsnúmer 2602081
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 171. fundur - 04.03.2026
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Landsvirkjunar um byggingu inntaks- og fiskvegsmannvirkja í tengslum við Hvammsvirkjun í Hvammi 1. Með umsókninni liggja fyrir innlagðir aðaluppdrættir Karls Magnúsar Karlssonar hjá VA arkitektum, dags. 25.2.2026.
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Lífsferilsgreining skal liggja fyrir.