Málsnúmer 2608025
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 8. fundur - 18.08.2026
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið fyrirspurn frá Kjartani Árnasyni, fh. Stólpa Gáma ehf., þar sem óskað er eftir umsögn byggingarfulltrúa vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar vinnubúða fyrir verktaka við Hvammsvirkjun. Áformin gera ráð fyrir 22 gistieiningum, hverri með aðstöðu fyrir allt að 16 einstaklinga, samkvæmt aðaluppdráttum Eflu, dags. 11.8.2026.
Með hliðsjón af umfangi og fyrirhugaðri notkun vinnubúðanna þarf skýrsla brunahönnuðar um brunavarnir mannvirkjanna að liggja fyrir áður en byggingarfulltrúi getur tekið afstöðu til áformanna og veitt umsögn.
Málið verður tekið til afgreiðslu að nýju þegar fullnægjandi brunahönnun hefur verið lögð fram.