Málsnúmer 2610074

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 15. fundur - 03.11.2026

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Hannesar Árnasonar, fh. Samúls Arnar Erlingssonar, um byggingarleyfi fyrir 113,4 m² hesthúsi úr timbri, samkvæmt aðaluppdráttum Birko, dags. 17.9.2026. Um er að ræða fyrri áfanga byggingarinnar en sótt verður um byggingarleyfi fyrir síðari áfanga síðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Merkja þarf björgunarop (BO) í kaffistofu á grunnmynd.
Ósamræmi er á aðaluppdráttum varðandi útfærslu hurða í stórgriparými og heygeymslu. Samræma þarf grunnmyndir og útlitsmyndir og tryggja að ljósmál viðkomandi hurða sé að lágmarki 1.200 mm.